Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 25

Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 25
STJÓRNMÁL neytinu - þótt auðvitað sé ýmislegt gert þar án þess að það sjáist. Það er hins vegar ekkert stórmál sem hefur brotið á, kannski einna helst Smugudeilan. Til gamans má geta EKKIPOPPARI Halldór er traustur - og traustir merm eru ævinlega góðir í samstarfi. Ég held að flestir geti verið mér sammála um að hann sé fremur hægur maður. Það verð- ur örugglega seint sagt um Halldór að hann sé einhver poppari. - Guðlaugur Þór Þórðarson þess að fyrir síðustu kosningar var Halldór frekar stór- yrtur um þá deilu og taldi lítið og auðvelt mál að bjarga málunum með „vinum okkar Norðmönnum”. Síðan hef- ur hann sjálfur dregið í land með það. Einkunn: Eg gef honum þrjár og hálfa stjörnu, ekki síst vegna þess hve góður hann er í samstarfi. Þeir Davíð ná vel saman. Það er forsenda þess að stjórnin nær árangri.” FRIÐRIK SOPHUSSON ★★★ Árni Gunnarsson um Friðrik Sophusson íjármálaráð- herra og varaformann Sjálfstæðisflokksins: „Kostir hans eru þeir að hann kemur vel fyrir og hann er skipu- lagður. Hann hefur lengi látið til sín taka innan flokksins og til gamans má geta þess, fyrst hann er fjármálaráð- herra, að fyrir mörgum árum stóð hann fyrir slagorðinu: Báknið burt. Friðrik hefur ferskan blæ yfir sér og er góður í mannlegum samskiptum. Hann hefur hins veg- ar verið í afar erfiðu hlutverki sem varaformaður Sjálf- stæðisflokksins - þar hefur hann verið miklu meira í hlutverki sáttasemjara en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Fyrir minn smekk er hann full- mikið til hægri í stjórnmálum - full- mikill boðberi frjálshyggjunnar. Helsta afrek Friðriks sem flár- málaráðherra í þessari ríkisstjórn - sem og þeirri fyrri - er hið nýja verklag sem hann hefur innleitt í fjár- lagagerðina. Hann Friðrik Sophusson fjármálaráð- setur öðrum ráðu- herra. „Skipulagður en velur sér neytum fyrir í sparn- of marga já-menn.” aði Og notar til þess svonefnd rammafjáriög. Hann segir sem svo: „Til að ná þessu markmiði verðið þið að spara svo og svo mikið.” Með þessu hefur honum tekist að fá samráðherra sína til að axla mun meiri ábyrgð á sparnaðinum við gerð fjárlaga en áður hefur þekkst. Helsti galli Friðriks er hve gjarn hann er á að taka hluti nærri sér - hann persónu- gerir nokkuð starf sitt sem íjármálaráðherra. Þá finnst mér galli hvað hann hefur einsleita hjörð ráðgjafa í kringum sig. Hann velur sér ekki samstarfsfólk með nægilega pólitíska breidd - það eru of margir já-menn í kringum hann. FERSKUR Friðrik hefur ferskan blæ yfir sér og er góður í mannlegum samskiptum. Hon- um hefur tekist að fá samráðherra sína til að axla mun meiri ábyrgð á sparnað- inum við gerð fjárlaga en áður hefur þekkst. - Árni Gunnarsson Sem varaformaður í Sjálfstæðisflokknum hefur hann staðið sig vel - ekki síst vegna þess að það er erfitt að vera númer tvö í þeim flokki, svo aðsópsmikill sem Dav- íð er. Stundum hefur sá orðrómur komist á kreik að Friðrik sé á leið út úr ríkisstjórninni. Eg tel að svo verði ekki. Það munu örugglega einhverjir aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fara út úr stjórninni á undan hon- um. Einkunn: Eg gef Friðrik þijár stjörnur.” GUÐMUNDUR BJARNASON ★★ Guðlaugur Þór um Guðmund Bjarnason, landbúnað- ar- og umhverfisráðherra, og varaformann Framsóknar- flokksins: „Guðmundur er afar geðþekkur maður - og það er hans helsti sfyrkur. Það er örugglega sárafáum ÓGÖNGUR Þrátt fyrir alúðlega framkomu, sem fleyt- ir mörgum ansi langt, finnst mér eins og að Guðmundur hafi lent í hálfgerðum ógöngum í of mörgum málum - og sem hafa ekki gefið neitt tilefni til vandræða- gangs. - Guðlaugur Þór Þórðarson illa við hann. Almennt hefur hann verið sæmilega far- sæll sem þingmaður og ráðherra. Á móti kemur að hann virkar ekki mjög kraftmikill og það er hans helsti 25

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.