Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 45
Markaðurinn skiptist þannig milli ATVR og veitingahúsanna að á síðasta ári voru alls seldar 8,9 milljónir lítra, og þar af rétt rúmlega 2,1 milljón lítra á veit- ingastöðum - eða um 23%. HVERÁ HVAÐ? Sú breyting varð á markaðnum fyrir skömmu að eignarhaldsfélag Vífilfells, Háahlíð ehf., keypti 80% í bruggverk- smiðju Víking á Akureyri. Vífilfell, blandar sér þess vegna núna af meiri krafti í baráttuna um bjórinn en nokkru sinni fyrr. Víking keypti síðan verksmiðju Sólar hf. í Þverholti í Reykjavík en það kemur lítið við umfjöllunarefni þessarar greinar sem er bjórmarkaðurinn og hvernig hann breytist. EGILLFÆR AUKNA PRESSU Fram til þess tíma að Víking verk- smiðjan skipti um eigendur var Ölgerð- in Egill Skallagrímsson ótvírætt stærst á bjórmarkaði og hafði skýra forystu. Fyrirtækið hafði á árinu 1996 32.6% hlut- deild af markaðnum og seldi samtals rúmlega 2.907 þúsund lítra. Næst á eftir Agli kom svo Víking með 24.4% hlut. Víf- ilfell hafði litla markaðshlutdeild fyrir kaupin á Víking eða 5.6%. Eftír kaupin yfirtekur Víking fi'amleiðslu og sölu á þeim bjór sem Vífilfell hafði áður og verður því væntanlega með 30% mark- aðshlutdeild. Þannig heldur Egils áfram gríðarlega sterkri stöðu á markaðnum með stærsta heildarhlutdeild einstakra fyrirtækja og einnig með mest selda bjórinn. Það, að helstí keppinauturinn stækkar svo snögglega og nær næstum því sömu stærð, hlýtur að þó að auka samkeppnina. Þessi tvö fyrirtæki, Egils og Víking, eða Vífilfell verða því samtals með meira en 2/3 af markaðnum. Þetta er athyglis- vert í ljósi þess að fyrir eru þessi tvö fyr- irtæki í gallharðri samkeppni í gos- drykkjaframleiðslu. Með kaupum Vík- Samanburður á sölu 15 vinsælustu bjórtegunda fyrstu 4 mánuðina 1996 og 1997 í þúsundum lítra. Tegund 1996 1997 Egils Gull 467.233 409.512 Tuborg Grön 303.278 366.022 Viking 267.861 309.498 Becks 189.597 200.888 Heineken 154.494 162.049 Holsten 153.727 144.966 Thule 157.623 117.111 Löwenbrau 89.121 90.569 Prins Kristian 75.983 80.647 Grolsch 13.283 76.216 Budweiser 87.889 73.616 DAB 36.483 54.185 lce bjór 67.604 37.786 Carlsberg 8.494 22.059 Warsteiner 23.470 13.106 ing á Sól er Vífilfell í raun að bæta veru- lega markaðsstöðu sína á þeim markaði vegna þess að með í kaupunum fylgir gosdrykkjaverksmiðja Sólar sem hefur séð um framleiðslu og átöppun á gosi fyrir stóra viðskiptavini eins og Hag- kaups-Cola og Bónus Cola. Þeir sem þekkja tíl á markaðnum telja að í kjölfarið fylgi ótvírætt aukin samkeppni og harðari milli þessara tveggja stærstu aðila. Alls eru sjö framleiðendur og heildsalar með fleiri en eina tegund af bjór á markaðnum. Egill er með Egils Gull, Tuborg, Dökkan, Sterkan og Sér- bjór og flytur inn Carlsberg, Guinness og Kilkenny. Víking var með Víking, Thule, Löwenbrau, Ice og Sérbjór en nú bætast við hinn ástralski Foster og hinn sænski Pripps sem Vífilfell var með. Ætlun Háuhliðarmanna er að auka hagkvæmni reksturs Víkings með því að sá bjór, sem áður var fluttur inn af Vífilfelli og dreift, flytjist norður til Akur- eyrar og verði báðar tegundirnar brugg- aðar þar, Pripps og Fosters. Þetta staðfesti Baldvin Valdimarsson, framkvæmdastjóri Viking, og taldi einnig líklega einhveija endurskoðun á vöruvalinu en ekki yrði samt fækkað tegundum í sölu. Hann sagði að Löwen- brau gerði ekki athugasemdir við þessa ráðstöfun þar sem ekki væri um annan þýskan bjór að ræða. „Það verða einhveijar breytingar en við munum að sjálfsögðu halda okkar markaðshlutdeild," sagði Baldvin. „Mér finnst markaðurinn vera óþroskaður og þar er einhvers konar tómarúm ríkjandi. Um þessar mundir virðist sala á bjór dreifast á stöðugt fleiri vörumerki eftír því sem úrvalið eykst,“ sagði Baldvin. „Islensk fyrirtæki vilja gjarnan fá að keppa á jafnréttisgrund- velli við innflutning því ég er viss að við myndum þar hafa betur.“ En hvernig bregst stærsti keppinaut- urinn við? „Ölgerðin hefur um langt skeið verið stærst á þessum markaði og við munum að sjálfsögðu stefiia að því að halda því. Þessar breytingar þýða skarpari skil á markaðnum og mér sýnist að stærri og hagkvæmari einingar ættu að geta orðið okkur til góðs í samkeppni við innflutn- inginn," sagði Jón Snorri Snorrason framkvæmdastjóri Egils um stækkun Víking og áhrifin á markaðinn. FLEIRITEGUNDIR 0G DREIFÐARI NEYSLA Lengi framan af var bjórmarkaðurinn í nokkuð föstum skorðum en á því varð í rauninni mikil breyting í lok ársins 1995 þegar einkaleyfi ÁTVR til heildsölu á bjór og áfengi var afnumið. Það hafði þá breytingu í för með sér að langflest ef ekki öll veitingahús hættu að kaupa bjór á kútum af ÁTVR og fóru að kaupa hann beint frá framleiðanda eða heildsala. Við þetta dróst bjórsala í ÁTVR saman um tæp 12%, strax fyrsta árið en hefur ekki minnkað síðan en alls virðist hlutur veit- ingastaða í bjórsölu vera í kringum 23%. SLEGIST UM KRÁRNAR Framleiðendur og innflytjendur bjórs slást af hörku um krárnar og „kaupa sér einka- leyfi” á þeim með ströngum og bindandi samningum sem ganga undir heitinu „lykla- gjöld”. Þeir taka oft verulegan þátt í að koma krám á laggirnar með því að leggja til bar- borð, stóla, kælikistur, innréttingar, ódýr glös, glasamottur, krana og kúta - og viðhald og þjónustu á þeim - jafnvel eru húsaleiga og auglýsingar greiddar. Það er augljóst að það er ekki bara slegist á krám - heldur ekkert síður um þær. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.