Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 51
NÆRMYND
Móðir Bjarna var Guðrún Helga
Kristinsdóttir f. 15.2. 1923 í Hafnarfirði,
d. 13.10.1966. Hún átti ættir að rekja
annars vegar til Hafnarijarðar og hins
vegar austur á Skálanes við Seyðisfjörð.
Bjarni er yngstur fimm systkina. Þau
eru: Skúli, lögfræðingur, giftur Sigríði
Lillý Baldursdóttur eðlisfræðingi og
fyrrum varaþingkonu fyrir Kvennalist-
ann.
Jóhanna var gift Jóni S. Guðlaugssyni
kennara en hún lést árið 1995, Ingi-
björg gift Hauki Olafssyni trésmíða-
meistara og Margrét gift Guðmundi
Þórðarsyni múrarameistara.
Bjarni er kvæntur Björgu Arnadóttur
blaðamanni og ritlistarkennara, f. 27.
sept 1957. Hún er ættuð af Austfjörðum
þar sem afi hennar í föðurætt var Bene-
dikt Gíslason, bóndi og rithöfundur á
Hofteigi á Jökuldal. Faðir Bjargar er
Arni Benediktsson, fyrrv. framkvæmda-
stjóri og formaður Vinnumálasam-
bandsins. Móðir Bjargar er Björg Dúfa
Bogadóttir frá Garði í Kelduhverfi og
Grásíðu í sömu sveit. Þau Bjarni og
Björg eiga þijú börn: Boga, f. 6.1.1980,
Ásgeir, f. 9.8. 1983 og Brynju, f. 31.5.
1993.
Þau Bjarni og Björg kynntust í
Menntaskólanum við Tjörnina og hafa
verið óaðskiljanleg allar götur síðan.
Á MÖRKUM SVEITAR 0G BORGAR
Bjarni er alinn upp í Fossvoginum
áður en hann varð að því gróna íbúðar-
hverfi sem hann er í dag. Æskuheimili
Bjarna stóð við Fossvogsblett um það
bil þar sem Réttarholtsvegurinn kemur
yfir hæðina. Áður en íbúðabyggðin var
skipulögð voru þarna nokkur hús á víð
og dreif og svæðið sérkennilegt sam-
bland borgar og sveitar. Bjarni og Skúli,
bróðir hans, voru sendir á næsta bæ til
að kaupa mjólk og egg
því margir íbúanna
nýttu sér landrýmið og
stunduðu smávegis bú-
skap.
Bjarni Júlíusson, fað-
ir Bjarna, var stúdent og hóf á sínum
tíma nám í lögfræði en lauk því ekki.
Hann var þúsundþjalasmiður og fékkst
á þessum árum við viðhald á pijónavél-
um og viðgerðir af ýmsu tagi. Síðar á
ævinni rak hann prjónastofur bæði í
Reykjavík og á Akranesi. Það breyttí
ekki því að systkinin á Fossvogsblettin-
um ólust ekki upp við mikil efni og
lærðu snemma að bjarga sér.
Móðir Bjarna lést þegar hann var að-
eins 10 ára gamall og við það komst
nokkuð los á heimilishaldið þó að það
yrði á sinn hátt tíl þess að þjappa ijöl-
skyldunni saman. Bjarni
varð eftir þetta mjög
handgengin elstu systur
sinni, Margréti, sem
segja má að hafi að
sumu leyti gengið hon-
um í móðurstað á tí'ma-
bili. Bjarni Júlíusson
giftist aftur og seinni
kona hans er Guðrún
Jónsdóttir.
Bjarni var í sveit í
Hvammi undir Eyja-
fjöllum í nokkur sum-
ur og lærði almenn
sveitastörf undir
handarjaðri Magn-
úsar Sigurjónssonar
bónda þar.
Hann hóf síðan göngu sína eftír
menntaveginum í Menntaskólanum við
Tjörnina og lauk þaðan prófi 1976.
DRAUMUR HINS DJARFA MANNS
Meðffam skóla vann Bjarni ýmsa
verkamannavinnu hjá verktakafyrir-
tækjum, stýrði loftpressu og fleira.
Hann var eitt sumar á sjó frá Olafsvík
með Haraldi Guðmundssyni, skipstjóra
á Víkingi SH 177, og var bæði kokkur
og háseti. Hann og nokkrir skólabræð-
ur hans létu sig dreyma um að kaupa
saman gamlan 30 tonna eikarbát og
sigla honum um heimsins höf. I og með
vegna þessara hugmynda og einnig af
áhuga á faginu tók Bjarni tveggja vetra
nám í Vélskóla Islands eftir stúdents-
próf og lauk því á einum vetri á sér-
stakri hraðferð. Það
vakti samt aldrei fyrir
honum að gerast vél-
stjóri heldur var hann
fyrst og fremst að afla
sér atvinnuréttinda á
þessu sviði.
Veturinn eftír venti Bjarni sínu kvæði
í kross og hélt tíl Spánar þar sem hann
nam spænsku við háskólann í
Barcelona. Tilgangurinn var fyrst og
fremst að læra eitthvert rómanskt mál
tíl hlltar. Þótt Bjarni sætí í eðlisfræði-
deild MT á sínum tíma varð honum ljóst
þegar leið á skólagönguna að hann áttí
auðvelt með að læra tungumál.
Eftir eins árs dvöl þar kom hann
heim á ný og settíst á skólabekk í jarð-
fræðideild Háskólans og nam jarðfræði
af miklu kappi eins og hugur hans hafði
um hríð staðið til og var atorkusamur
við námið og tók
mjög hátt próf úr jarðfræði-
deild.
Hann lagði einnig gjörva hönd á
ýmis störf og í fjögur sumur ók hann er-
lendum ferðamönnum um landið á lítílli
rútu sem Magnús Hjartarson leigubíl-
stjóri átti og greip reyndar í að aka leigu-
bíl fyrir hann líka. Bjarni var allt í senn
bílstjóri, leiðsögumaður og viðgerðar-
maður ef á þurftí að halda. Hér kom
tungumálakunnátta hans að góðum not-
um og er haft fyrir satt að hann hafi get-
að leiðsagt á sex tungumálum, ensku,
þýsku, sænsku og spænsku auk dönsku
og norsku.
Á SÖMU BREIDDARGRÁÐU 0G
MÝVATNSSVEIT
Eftir námið í Háskólanum vann
Bjarni á Orkustofnun um þriggja ára
skeið sem mannvirkjajarðfræðingur á
vatnsorkudeild og stundaði einkum for-
rannsóknir fyrir byggingu neðanjarð-
armannvirkja. Árið 1983 fóru þau hjónin
svo tíl Luleá í Svíþjóð þar sem Bjarni hóf
nám í námaverkfræði við tækniháskól-
ann en Björg sótti nám í blaðamennsku
á meðan en hún hafði áður lokið námi
frá Myndlista- og handíðaskólanum.
Björg skrifaði talsvert í blöðin ytra og sá
um útvarps- og sjónvarpsþætti fyrir
sænska ríkissjónvarpið.
Bjarni lauk licentíatprófi í námaverk-
NÆRMYND:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
mv> sem er fyrirtæki »i ,s,ens«a rík
0.44% eru j eiga u svei" " á 48.SI
reku, eöluskrifgfefu j Á a C
mKlsiiry**? 01 »» i
a fyrirtæki og verltsmiAi 'ð,,'CeMe “ samsle
* * hefur þa
' aS ,e,a <*U M% í eigu tesme4a'
51