Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 56
hann til náms erlendis og
lærði fiskeldi, fyrst í Dan-
mörku í fimm ár og síðan í
eitt ár í Bandaríkjunum, nán-
ar tiltekið í Idaho. Þegar
heim kom hóf hann störf hjá
Laxalóni og heimili hans og
vinnustaður hafa því alla tíð
verið einn og sami staðurinn.
Olafur var á sínum tíma
frumkvöðull að rekstrinum í
Hvammsvík í Hvalfirði og má
segja að við Reynisvatn sé
hann að hrinda í framkvæmd
svipuðum hugmyndum.
Ólafur Skúlason fiskeldisíræðingur hefur byggt upp fjölskylduparadís við Reynisvatn. í
sumar er heitið verðlaunum fyrir fisk nr. 50 þúsund. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
Gamall golfmeistari
Olafur fór ungur að sýsla
við golf og skilgreinir það
OLAFUR SKULASON, LAXALONI
ugmyndir okkar um
rekstur Reynisvatns
eru íyrst og fremst
þær að þar geti fjölskyldan
unað sér við veiði, siglingar
og útreiðar og notið samvist-
anna og náttúrunnar," sagði
Olafur Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Laxins hf., í
samtali við Frjálsa verslun.
Laxinn hf. rekur fiskeldi á
Laxalóni og er með Reynis-
vatn á leigu. A Laxalóni eru
alin 40 tonn af regnbogasil-
ungi árlega og er um það bil
helmingnum sleppt í Reynis-
vatn og almenningi síðan
seld veiðileyfi en hinn helm-
ingurinn er reyktur og seldur
í verslunum í samstarfi við
Utey við Apavatn.
Reynisvatn er lítið stöðu-
vatn rétt ofan við Reykjavík
og í eigu Reykjavíkurborgar.
Aðsókn að vatninu og þeirri
aðstöðu, sem þar er boðið
upp á, hefur aukist jalht og
þétt. Þar er t.d. hestaleiga, litl-
ir bátar, góð hreinlætisað-
staða fyrir fatlaða jafnt sem
ófatlaða og síðast en ekki síst
náttúrufegurð og kyrrð sem
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
er borgarbarninu nauðsyn-
leg. Allt stuðlar þetta að aukn-
um vinsældum Reynisvatns.
Að sögn Olafs var þetta í
fyrstu rekið sem tilraun til
eins árs í senn og hófst 1990.
Samstarfið við borgina hefur
verið mjög gott, að hans
sögn, og borgarráð sam-
þykkti nýlega að gera samn-
ing til lengri tíma og er það
nokkurs konar staðfesting
þess að starfsemin við Reyn-
isvatn sé komin til að vera.
„Kvótakerfið okkar hefur
líka verið vinsælt," sagði
Ólafur. „Það byggist á því að
fyrir eitt veiðileyfi færðu
fimm fiska. Ef þér tekst ekki
að veiða þessa fimm fiska
þann dag þá áttu þá inni.
Þetta er sem sagt fimm fiska
kvóti í vatninu og þú getur
veitt þá þegar þér hentar og
veðrið er gott. Öll íjölskyldan
getur veitt út á eitt leyfi og
þetta hefur notið mikilla vin-
sælda."
Fiskur nr. 50 þúsund
Á síðasta ári veiddust 14.
365 fiskar í Reynisvatni sam-
kvæmt bókhaldinu og hafði
fiskaijöldinn aukist úr 2.388
fiskum árið 1993 sem segir
sína sögu um vinsældirnar.
Dorgveiði niður um ís á vetr-
um nýtur einnig vaxandi vin-
sælda og veiddust 1.721 fisk-
ur með þeim hætti síðasta
vetur. Heildarfjöldi veiddra
fiska í vatninu síðan þessi
háttur var tekinn upp nálgast
óðum 50 þúsund og á þessu
ári verða veitt vegleg verð-
laun þeim veiðimanni sem
landar fiski nr. 50.000.
Ekki má svo gleyma því
að til að auka á spennu veiði-
mannanna er alltaf sleppt
nokkrum löxum í Reynisvatn
sem koma veiðimönnum
þægilega á óvart.
Ólafur er fiskeldismaður
af lífi og sál. Hann er alinn
upp á Laxalóni við Vestur-
landsveg þar sem faðir hans,
Skúli Pálsson, hóf eldi á
regnbogasilungi árið 1950.
Margir þekkja sögu Skúla og
baráttu hans við yfirvöld um
fiskirækt.
Ólafur fæddist 1952 og eft-
ir hefðbundið skyldunám fór
sem sitt helsta áhugamál. í
dag gefst lítill tími til að
sveifla kylfunum en sú var tíð-
in að það var hans líf og yndi.
Ólafur var harður golfleikari
og var lengi í unglingalands-
liðinu í þessari nákvæmnisí-
þrótt og hafði 4 í forgjöf þegar
hann hættí að spila.
„Golfið heillar mig alltaf
en það er opið til miðnættís
í Reynisvatni og stundum
fer hann að taka þegar sólin
sígur og þá vill maður ekki
reka mikið á eftir veiði-
mönnum þótt tíminn drag-
ist á langinn.“
Ólafur hefur gaman af því
að veiða þó að hann geri lítið
af því en lætur sér nægja að
meðhöndla fisk í eldisstöð-
inni. Hann segir að starfið
haldi sér í góðri þjálfun.
„Það er fínt sport að háfa
fisk, 40 tonn tvisvar á ári og
það er mín íþróttaiðkun í
dag.“
Ólafur er kvæntur Hildi
Haraldsdóttur, bókara hjá
Laxi hf. og Griffli, og þau
eiga saman tvö börn, 8 ára
dreng og 15 ára stúlku. 33
mmwmmmets
rmmmsmmi.
56