Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
NÝIR „KOMMISARAR”
Tveir menn verða mjög í sviðsljósinu í fjármálaheiminum á
næsta ári; þeir Bjarni Ármannsson, forstjóri Fjárfestínga-
banka Islands, og Páll Kr. Pálsson, forstjóri Nýsköpunarsjóðs.
Þótt þeir séu líflegir og öflugir keppnismenn í viðskiptum
verður afar erfitt íyrir þá að ná fram góðri arð-
semi í rekstri þessara nýju ríkisfyrirtækja sem
taka formlega tíl starfa nú um áramótín. Bjarna
og Páls bíður erfitt verk - þótt stjórnmálamenn
lítí raunar allt öðrum augum á hugtakið arð-
semi en íjárfestar á hlutabréfamarkaði.
Það sorglega við tílkomu Fjárfestíngabanka
Islands og Nýsköpunarsjóðs er að ríkið ryðst
fram af enn meiri kraftí á fjármálamarkaðnum.
Nú þurfa talsmenn einkaframtaksins á Alþingi
að sýna í verki að þeir vilji minnka hlut ríkisins
á fjármálamarkaðnum; selja banka og gera
cinkaframtakinu hærra undir hölði. Það er
ótrúlegt að það skuli aðeins vera einn einkabanki á Islandi.
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra hefúr að visu heimild tíl
að selja 49% í nýja Fjárfestingabankanum. En takið eftir því
að Finnur ætíar ekki að láta þá sölu ganga í gegnum einkavæð-
ingarnefiid - láta bjóða hlutínn út Það vekur tortryggni. Verð-
ur nýjum eigendum „pólitískt” stýrt inn í Fjárfestingabank-
ann?
Almennt gera fyrirtæld og fjármálastofnanir á hlutabréfa-
markaði kröfú um 15% arðsemi eigin fjár. Hvorki Fjárfestínga-
bankinn né Nýsköpunarsjóður munu ná þeirri arðsemi. Iit-
um á dæmið hjá Fjárfestingabankanum. Efnahagsreikningur
hans nemur rúmum 53 milljörðum króna og eigið fé um 8
milljörðum. Miðað við 15% arðsemi þarf bankinn að skila
1.200 milljóna króna hagnaði á ári!!! Utílokað. Hann nær
varla þeirri upphæð í tekjum. Þetta eru rökin: Vaxtamunurinn
- álagning á lán - í flármálafyrirtækjum er núna í kringum 1%
og gefur því 530 milljóna króna tekjur miðað við 53 milljarða
útlán. En þá á eftir að draga rekstrarkostnað frá - kannski upp
á 300 milljónir. Eftir stendur því hagnaður upp á um 230
milljónir en ekki 1.200 milljónir!
Þetta er ástæðan fyrir því að Bjarni Armannsson og félag-
ar í Fjárfestingabankanum keppast við að víkka út starfsem-
ina - og vera annað og meira en heildsölubanld.
Þá bráðvantar þjónustutekjur. Bankinn hyggst
því bjóða heildarþjónustu við fyrirtæki, eins og
gjaldeyrisstýringu og verðbréfaviðskipti, þannig
að fyrirtæki þurfi ekki að snúa sér annað. Og
bankinn ætlar að velja sér góð fyrirtæki - bestu
fyrirtæki landsins! Svo skemmtilegur, líflegur
og harður er Bjarni að bankastjórar og spari-
sjóðsstjórar eru ókyrrir. Vissulega verða þeir
ekki bara áhorfendur, þeir munu mæta Bjarna
og félögum af hörku.
Nýsköpunarsjóður býður áhættufjármagn og
hefur 6 milljarða tíl ráðstöfunar í upphafi. 15%
krafa um arðsemi eigin fjár krefst 900 milljóna hagnaðar á
ári!!! Það verður útílokað að ná því marki. Þótt Páll Kr. Páls-
son segi annað þá verða vandræði Nýsköpunarsjóðs að finna
verkefni því að Islendingar hafa enga þolinmæði til að taka
þátt í áhættusömum nýjungum sem þurfa nokkrar umferðir í
íjármögnun áður en dæmið skilar árangri - en þá verður hlut-
ur margra hluthafa orðinn ansi útvatnaður. Hættan er því sú
að Nýsköpunarsjóður - nota bene; ríkið - blandi sér inn í
„venjulegan atvinnurekstur” fyrr en varir, líkt og hentí Þróun-
arfélagið. Þar með verður sjóðurinn orðinn að eins konar
„gjafasjóði” eða „atkvæðaveiðasjóði”.
Bæði Fjárfestíngabanki Islands og Nýsköpunarsjóður eru i
eigu ríkisins. Þeir eru því nýir fulltrúar ríkisins á fjármála-
markaði. Það er það dapurlega. Vonandi verða þessir sjóðir
einkavæddir sem fyrst þannig að hinir frisku menn sem stýra
þeim verði ekki „kommisarar” of lengi.
Jón G. Hauksson
ISSN 1017-3544
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 58. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfii Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - UÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir - UMBROT: Ágústa
Ragnarsdóttir. - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105
Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 -ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með
kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- - DREIFING í bókaverslanir og söluturna
á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími: GSM 89-23334. - FILMUVINNA, PRENTUN OG
BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafi'k hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
6