Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 39
Það eru nokkrar víntegundir í
svokölluðum reynsluflokki og eru þau
vín þá seld í fjórum vínbúðum. Þær eru
í Kringlunni og Heiðrúnu í Reykjavík, á
Eiðistorgi á Seltjarnarnesi og á Akur-
eyri. Mér sýnist að stundum birtist vín,
sem eru á sérpöntunarlistanum, allt í
einu á reynslulistanum. Það er því viss-
ara að kanna hvort vín á sérpöntunar-
listanum sé mögulega í reynslusölu.
Það, sem er hins vegar athyglisvert, er
þau vín sem eru á sérpöntunarlistanum
- en þar kennir margra grasa, og ef vel
er gáð má finna ýmislegt forvitnilegt.
Það verður þó að segjast eins og er að
það er meira úrval af áhugaverðum
rauðvínum en hvítvínum.
FORViTNILEG
HVÍTVÍN
Af þeim hvítvínum,
sem ég rak augun fyrst
í má t.d. nefna Bering-
er Private Reserve
Chardonnay 1995.
Þetta er magnað vín frá
Kaliforníu — eikin var
yndisleg og djúpt og
langt eftirbragð. Vínið
er þó heldur ungt, gæti
verið tilbúið—já, jafn-
vel á næsta ári. Verðið
er frábært aðeins kr.
3.400,-, sem sagt góð
kaup. Raunar má
segja að Beringer sé
afar ábyggilegt íyrir-
tæki og vínin frá því
allajafna traust og
vönduð. Sú var tíðin
að Islendingar drukku
einhver ósköp af sæt-
um þýskum vínum sem
frekar minntu á ávaxta-
safa en léttvín — þessi
vín hafa, sem betur fer,
verið að hverfa. En það
hafa ekki komið nein
áhugaverð þýsk vín í stað-
inn — því miður.
Frá Mosel koma mörg
frábær vín sem eru hreint
út sagt stórkostleg. Bern-
kastler Lay Riesling Kab-
inett 1995 frá Dr. Loosen
er sérlega ljúft og vel gert
Moselvín. Framleiðandinn,
Dr. Loosen, er nokkurs konar
Sigmar B. Ilauksson fer yfir sérlista ÁTVR og ráðleggur fólki í kaupum á
hvítvíni og rauðvíni.
trúboði fyrir Moselvínin, hann hefur
unnið frábært starf í Bretlandi í
kynningu á hinum ljúfu Moselvín-
um. Þetta er margbrotið vín, af því
er milt ávaxtabragð með góðum
kryddkeim. Frábært vín til að
drekka á þorranum þegar
norðanhríðin ber gluggana.
Verðið er viðunandi, kr.
1.420,-.
Næsta vín var, að mínu
mati, áhugaverðasta
hvítvínið á sérpöntunar-
listanum. Chablis
Grand Cru Les Clos
1993 frá Joseph Drou-
hin. Verðið er hreint út
sagt frábært, kr. 3.180.
Þetta vín hefur alla
kosti hinna yndislegu
Chablis vína. Chablis,
sem tilheyrir Burg-
undarhéraði, er að-
eins um 4000 hektar-
ar. Þess má geta að í
Burgund eru Grand
Cru vínin aðeins 2%
af heildarfram-
leiðslu og Chablis
Áhugaverð-
asta hvítvínið á sérlist-
anum, að mati Sigmars,
er Chablis Grand Cru Les
Clos 1993. Verðið er
3.180 krónur flaskan
vínin eru nú 17%
af heildarvínfram-
leiðslu í Burg-
und.
Vínakrarnir í
Burgund eru
samtals 24.000 hektarar, og eru árlega
að jafnaði framleiddar 160 milljónir
flaskna af víni í héraðinu. Þar af eru 24
milljónir flaskna frá Chablis. En nóg
um tölfræði að sinni. Það sem gerir
þetta Chablis frá Joseph Drohin svo
áhugavert er hið ferska og nánast full-
komna Chardonnay bragð og að vínið
er í fullkomnu jafnvægi. Það er tilbúið
til drykkjar núna en mun þó halda
áfram að þroskast og batna næstu þijú
árin. Af þeim hvítvínum, sem ég vildi
mæla með að lokum, er t.d. Corton
Charlemagne Grand Cru 1.991 á
kr. 4.460,-. Þetta er eitthvert áhuga-
verðasta hvítvínið í öllu Burgundarhér-
aði, stundum kallað vín fyrir sérvitr-
inga. Þetta stórbrotna vín er pressað úr
Chardonnay þrúgunni — afar kraftmik-
ið og flókið. Engir unnendur
Chardonnay ættu að láta hjá líða að
prófa þetta vín; það er einstök upplifun
og ekki síst forvitnilegt.
ÚRVALS RAUÐVÍN
Eins og áður sagði eru rauðvínin á
sérpöntunarlistanum áhugaverðari og
fjölbreyttari en hvítvínin. Mér hefur því
ekki gefist tækifæri til að prófa nema
hluta þeirra. Fyrst vil ég mæla með sér-
lega góðu Merlot víni frá Beringer í
Kaliforníu, Beringer Meriot Howell
Mountein 1991 á kr. 2.810,-. Þetta
er án efa besta Merlot vínið sem er á
boðstólnum í Ríkinu. Þetta vín þarf að
39