Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 48
UNGIR SEM ALDN
HJÁ NÁMSFLOKK
Guðrún Halldórsdóttír, forstöðumað-
ur Námsflokkanna, kennir dönsku
en kemur auk þess víðar við í
kennslu í skólanum.
arabísku eða serbó-króatísku. Guðrún segir
að nú sé ætlunin að tengja matargerðarlist
tungumálanáminu þannig að nemendur fái
kennslu í matargerð þjóðarinnar sem tunguna
talar sem þeir eru að læra. Óvenjuleg nýjung!
Að sjálfsögðu geta svo íslendingar jafnt sem
útlendingar lært íslensku í Námsflokkunum
um leið og aðfluttum börnum eða börnum,
sem hafa dvalist langdvölum erlendis, gefst
kostur á að viðhalda móðurmálinu eða málinu
sem þau hafa þar tileinkað sér.
Meðal annars áhugaverðs frístundanáms
má nefna listasögu, trúarbragðasögu, af-
þreyingarmenningu nútímans leikhúskynn-
ingu. Myndlist og fjölmargt annað hefur not-
ið vinsælda, nú síðast viðgerð gamalla hús-
gagna sem er áhugamál margra um þessar
mundir. Eftir áramót mun meistarakokkurinn
Jörgen Þór Þráinsson leiða karlmenn í allan
sannleikann um matreiðslu sem brúkleg er á
venjulegum heimilum.
KOMIÐ TIL MÓTS VIÐ ÓSKIR
FYRIRTÆKJA OG HÓPA
Guðrún bendir á að hópar, sem æskja
fræðslu um eitthvert tiltekið efni, sem ekki er
á námsskránni, ættu að snúa sér til skólans
og verður reynt að koma til móts við óskir
þeirra. Benda má á að fyrirtæki og stofnanir,
sem hafa meiri samskipti við aðila í einu
landi en öðru, gætu til dæmis sóst eftir
tungumálakennslu í tengslum við þessi sam-
skipti eða fræðslu fyrir starfsfólk sitt um siði
og venjur viðkomandi lands sem myndi án
efa gagnast í áframhaldandi viðskiptum.
Starfsnám fyrir ófaglært fólk (atvinnulíf-
inu er veigamikill þáttur í starfi Námsflokk-
anna. Guðrún segir að gerð hafi verið könn-
un á gildi starfsnámsins og flestir vinnuveit-
endur talið námið hafa orðið til þess að fólk
íslenska fyrir útíendinga er vinsælt fag og það er Ingibjörg Hafstað sem hér
er í hlutverki kennarans. FV-myndir: Geir Ólafsson.
ungar og þar sitja hlið við hlið prófessorar og
fólk með barnaskólapróf. Námsefnið, sem
Námsflokkarnir bjóða upp á, er svo fjölbreytt
að það höfðar til fólks á öllum aldrí, úr öllum
stéttum og þar sitja allir við sama borð. Guð-
rún Halldórsdóttir hefur verið forstöðumaður
Námsflokkanna síðan 1972.
Námsskrá frístundanáms Námsflokka
Reykjavíkur er fjölþætt og flestir finna þar
eitthvað við sitt hæfi. Skiptir þá engu hvort
fólk vill afla sér aukinnar þekkingar á
ákveðnu sviði eða sækja frístundanám til
dægradvalar og til að hvíla hugann í amstri
hversdagsins. Á tungumálasviðinu er hægt
að leggja fyrir sig hvorki meira né minna en
20 erlend tungumál; allt frá dönsku til
□ Idursdreifing nemenda er líklega
ekki meiri í nokkrum íslenskum
skóla en í Námsflokkum Reykjavík-
ur. Þar stunda nám jafnt ung börn sem öld-
48
eeæmmm