Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 63
( MAT SIGMARS
Holtlð, Grllllð og Perlan; þau bestu.
Vlð TJörnlna og Þrír Frakkar hjá Úlfari;
framúrskarandi fiskveitingastaöir.
La Prlmavera; góður, ítalskur staður.
Jómfrúln; eitt besta smurbrauð í Evrópu.
Hótel Borg; sterk áhrif frá Kaliforníu.
Óðlnsvé; mjög traustur staður.
Asíuveltlngahúsln; mikil stöðnun.
áfram iðju sinni. Erlendir ferðamenn
forðast veitingahúsin, m.a. vegna þess
að það er að verða þekkt í þeim löndum,
sem flestir ferðamenn koma frá til Is-
lands, að á íslandi séu veitingar dýrar og
hér sé dýrasti bjór í heirni.
1997 - MINNIGÆÐI, LÆGRAVERÐ
Veitingahúsarekstur á Islandi er nú
að taka á sig nokkuð fastmótaða mynd.
Yfir sumartímann eru það erlendu
ferðamennirnir sem skipta mestu máli
fýrir greinina. Á haustin eru villibráðar-
vikurnar orðnar fastur liður og að þeim
liðnum taka jólahlaðborðin við. Yfir
sumartímann bjóða veitingamenn gjarn-
an rétti dagsins á mjög lágu verði, jafn-
vel lægra en gerist í nágrannalöndun-
um. Sömu sögu má segja um jólahlað-
borðin, samkeppnin eykst og verðið
lækkar. Laun og verð hráefnis og ann-
arra aðfanga hafa hins vegar ekki lækk-
að. Þess vegna reyna veitingamennirnir
að spara eftir föngum.
Þetta heíur haft það í för með sér að
gæði hinna svokölluðu sumarmatseðla
hafa minnkað og gæði jólahlaðborðanna
hafa snarminnkað. Jólahlaðborðin eru
sem sagt mun fátæklegri og rninna í þau
lagt en áður var, fyrir já svona þremur
árum síðan. Það skal þó tekið fram það
þetta á ekki við um öll veitingahús en ör-
ugglega meirihluta þeirra. Undantekn-
ingarnar eru hinsvegar villibráðarvik-
urnar. Þar haía gæðin aukist, enda mat-
reiðslumenn æ betur að komast upp á
lagið með að matreiða villibráð, og þá
Sigmar B. Haaksson
skrifar reglulega um
íslensk veitingahús í
Frjálsa verslun.
Perlan.
t A
Hótel Saga.
ÞAU ÞRJÚ BESTU
Eins og undanfarin ár eru Hótel Holt og Grilliö á Hótel Sögu bestu veitingahús
landsins. Nú hefur hins vegar sú breyting oröiö á að Perlan er komin að hlið þessara
veitingahúsa.
getur villibráð aldrei verið ódýr.
Eftir áramótin taka svo við árshátíðir
en þeim hefur þó verulega fækkað frá
því sem áður var. Æ fleiri fyrirtæki og
félög halda nú árshátíðir sínar erlendis.
Ferðaskrifstofur geta nú boðið sérlega
hagstæðar pakkaferðir eða á bilinu 25-
30.000 krónur á manninn, þ.e.a.s. flug
og gistingu á góðum hótelum. Þar sem
verð á veitingum, einkum áfengi, er gott
víða erlendis þá kjósa stöðugt fleiri
starfsmannafélög að halda árshátíðir
sínar í útlöndum. Fólkinu gefst svo kost-
ur á að versla og fara í leikhús, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þarna missa íslensku
veitingahúsin vænan spón úr aski sín-
um, og ekki síður íslensk verslun og svo
auðvitað ríkið. Tíminn frá janúar og
fram í mars er því íslenskum veitinga-
húsum afar erfiður.
ÍSLENSKIR MATREIÐSLUMENN
í STÖÐUGRISÓKN
Ekki var hægt að greina neinar
stærri breytingar eða nýjungar í íslensk-
um veitingahúsarekstri á árinu. Mikil-
vægasta breytingin er þó sú að íslenskir
mafreiðslumenn eru stöðugt að verða
betri fagmenn. Það má m.a. þakka þátt-
töku þeirra í matreiðslukeppnum hér
63