Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 29
Jón G. Hauksson.
Þorgeir Baldursson.
Benedikt Jóhannesson.
ÚTNEFNDIR HAFA VERIÐ
1988:
Jóhann Jóhannsson og
Sigtryggur Helgason, eigendur
Brimborgar.
1989:
Þorsteinn Már Baldvinsson
og brœðurnir Þorsteinn og
Kristján Vilhelmssynir, eigendur
Samherja.
1990:
Pálmi Jónsson í Hagkauþ.
Dómnefnd Frjáhrar verslunar
Guðmundur Magnússon. Magnús Hreggviðsson. Skúli Þorvaldsson.
ÚTNEFNT í TÍUNDA SINN
1991:
Feögarnir Þorvaldur Guð-
mundsson og Skúli Þorvaldsson.
1992:
Þorgeir Baldursson, forstjóri
Prentsmiöjunnar Odda.
1993:
Hjónin Ágúst Sigurðsson og
Guörún Lárusdóttir, eigendur
Stálskiþs í Hafnarfirði.
1994:
Sighvatur Bjarnason,
framkvœmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Eyjum.
1995:
Ossur Kristinsson, uþþfinninga-
maður og eigandi Ossurar hf.
1998:
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri
og aðaleigandi Hraðfrystihúss
Eskifjarðar.
1997:
Feðgarnir Jóhannes Jónsson
og Jón Asgeir Jóhannesson,
kauþmenn í Bónus.
tnefning feðganna Jóhannesar Jónssonar og Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, kaupmanna í Bónus, er tíunda
útnefning Fijálsrar verslunar á Mönnum ársins í við-
skiptalífinu - á jafn mörgum árum. Þeim feðgum - og fjöl-
skyldum þeirra - fylgja árnaðaróskir frá Frjálsri verslun með
útnefninguna - sem þeir eru einstaklega vel að komnir.
Tilgangurinn með útnefningu á Mönnum ársins í við-
skiptalífinu er að vekja athygli á því sem vel er gert í íslensku
viðskiptalífi - og hvetja athafnamenn og fyrirtæki til dáða.
Dómnefnd Fijálsrar verslunar er skipuð sömu mönnum
og á síðasta ári.
Þeir eru: Magnús Hreggviðsson, fyrrverandi eigandi
Frjálsrar verslunar - formaður nelhdarinnar, Benedikt Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, útgefanda
Fijálsrar verslunar, Þorgeir Baldursson, forstjóri Prent-
smiðjunnar Odda, Guðmundur Magnússon, prófessor í
hagfræði, Skúli Þorvaldsson, eigandi Hótel Holts, og Jón G.
Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar. 53
TVG-ZIMSEN
Látið TVG-Zimsen
sjá um flutninginn
frá upphafi til enda
>Reykjavík:
Héðinsgötu 1-3 • S(mi 5 600 700 • Bréfslmi 5 600 780
Akureyri:
Oddeyrarskáli, 600 Akureyri • Slmi 462 1727 • Bréfslmi 462 7227
Netfang TVG-Zimsen er: http://www.tvg.is
29