Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 40
fiVki TMHttl
'/<90*
tlr«.rt DUIXIMAINE
^NNAY
CALIf
CAOWK
rj»ouiu*y
' Kor/£ C0WS0U£:
'^ondc
ger
.«'3*1
Dr. vOOvSEK
blis-Les Clos
GRAND CRU ’ Sj
1995 'Æ
Ikrnkaslclcr Lo>' "
Ricsliny Kaliinctt trockcn
Áhugaverðustu hvítvínin á sérlistanum, að mati Sigmars.
drekka strax. Næst eru þar risarnir frá
Bordeaux sem koma frá sama fyrirtæk-
inu, Baron Philippe De Rotschild.
Þessi vín eru Chateau Clerc Milon
1992 á kr. 4360,-, Chateau
d’Armaihac 1992 á kr. 4.200,- og
loks Chateau Mouton Rothschild
1987 á kr. 14.840,-. Öll eru vínin úr
Pauilac hreppi.
Vitaskuld eru öll þessi vín frábær á
sinn hátt. Eg geri þó varla ráð fyrir því
að margir vínáhugamenn kaupi sér
kassa af Chateau Mouton Rotschild
á 178.000 krónur, en hins vegar vil
ég svo sannarlega mæla með
Chateau d’Armaihac 1992 á 4.200
krónur. Þetta er mikið vín og sannur
fulltrúi Pauilac, hefur til að bera alla
kosti góðs Bordeaux víns. Þetta verð
er allt í lagi — vínið er tilbúið til
drykkjar en mun stöðugt batna næstu
árin — það verður frábært aldamóta-
árið 2000.
Þá vil ég sérstaklega benda á vínin
frá Chapoutier bræðrunum sem
koma úr Rónardalnum. Upp úr 1970 og
fram undir 1990 var einhver lægð í
Chapuotier vínunum. Það hefur breyst
síðan bræðurnir Marc og Michel tóku
við fyrirtækinu af föður sínum. Vín
þeirra bræðra hafa orðið feikna vinsæl
á síðari árum, enda eru gæði vína þeir-
ra eins og best verður á kosið. Þetta
eru sólbrennd vín, mögnuð -
þeim er einhver óskiljanlegur
kraftur. I þeim má finna fjólu-
eða blómaangan og kryddað
bláberjabragð með keim af
svörtum pipar. Þetta eru
vín sem á einhvern hátt
passa Islandi svo vel.
Cote-Rotie 1994 kost-
ar 3.400,-. Þetta vín á
einstaklega vel með
lambakjöti og hvítlauk,
en einnig hreindýri.
Það á þó eftir að
þroskast og verða
enn betra. Hermita-
ge 1993 er á kr.
2.640,-. Það er úr-
vals vín með villi-
bráð, rjúpum og
gæs — já, hvers
vegna ekki með
kalkún sem er
borinn fram með
kryddaðri fyll-
ingu? Það er
gaman að bera
þetta vín sam-
an við annað
Hermitage
vín sem einn-
:onT*o
Cote-Rotie 1994
kostar 3.400 krónur
flaskan. Þetta rauðvin á
einstaklega vel við með
lambakjöti og hvítlauk -
og einnig hreindýri.
ig er á sérpöntunarlistanum. Hermit-
age La Chapelle 1992 firá Paul
Jaboulet, þetta vín er fínlegra og við-
kvæmra en það frá Chapoutier; sem
sagt tvö öndvegis vín en þó ólík. Þá vil
ég benda á afar fínlegt — hreint ynd-
islegt vín frá Joseph Drouhin í
Burgund, Gevrey-Chambertin
Champeaux 1991 á kr. 3.980,-
sem verður að segjast eins og er að er
fínt verð miðað við gæði. Þetta er
kvenlegt vín, fínt og milt - unaðslegt
að drekka eitt og sér, tilfinningin min-
nir á sumar og sól.
Þá vil ég nota tækifærið og mæla
með risa frá Ástralíu, risa í tvöfaldri
merkingu þess orðs. Þetta er vín sem
kemur frá öflugu fyrirtæki og er ein-
nig stórt vín. Hér á ég við Pen-
folds Bin 707
Cabernet Sauvignon
1994 á kr. 6.260,-.
Já, þetta er ekki ódýrt
vín en það er þó vel þess
virði, hver dropi. Þetta er
frábært Cabernet vín en
þó með öllum sérein-
kennum áströlsku vín-
anna. Það er svo sannar-
lega hægt að mæla með
þessu víni með kvöld-
verðinum á nýárskvöld
árið 2000. Breskur vín-
sérfræðingur sagði fyr-
ir skömmu að þetta
vín væri kóróna ástral-
skrar víngerðar. Síð-
asta vínið sem ég mæli
með, er svo sannarlega
vel varðveitt leyndar-
mál á sérpöntunarlistan-
um, en það er Torres
Gran Coronas Mas La
Plana 1989 á kr.
3.680,- sem er hreint út
sagt frábært verð. Þetta
vín er frá hinni frægu
Torres fjölskyldu í Pene-
des, Barcelona á Spáni.
Höfundur þess er mesti vín-
gerðarmaður Spánar um
þessar mundir, Miguel
Torros. Mas La Plana er gert
úr Cabernet Sauvignon þrúg-
um. Vínið er dimmrautt að lit
og einkar ljúft á bragðið. Af því
er kirsuberja- og bláberjabragð
og svo fínlegt eikarbragð. Mér
40