Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 34
HVAÐ SEGJA ÞAU
UM ÁRAMÓT?
1. Hvaö einkenndi áriö 1997 í þinni atvinnugrein?
2. Hvernig metur þú horfurnar á árinu 1998?
Omar Benediktsson, framkvæmdastjóri Islandsflugs:
Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri
Islandsflugs: „Spái fleiri erlendum ferða-
mönnum á árinu 1998 - og áframhaldandi
fækkun þeirra í hópferðum.“
FV- mynd: Geir Ólafsson.
GENGIÐ SKIPTIR ÖLLU MÁLI
AUKIÐ
FRJÁLSRÆÐI
að er einkum þrennt sem,
að mínu mati, einkenndi
árið 1997 í ferðaþjónust-
unni, frjálsræðið í innanlandsflug-
inu, sem leggja mun grunn að
framtíðinni, óhagstæð gengisþró-
un í ferðaþjónustu og áframhald-
andi breyting á mynstri ferða-
manna.
Með breyttu mynstri á ég við
fækkun í föstum hópferðum en
þar varð hreinlega hrun. Þetta eru
m.a. ástæður þess að ferðaskrif-
stofum gekk illa á árinu.”
„Horfurnar eru, að mínu mati, góðar fyrir árið 1998 en þó ræður gengisþróun miklu
þar um. Þótt upp hafi komið skammtíma vandamál í Þýskalandi eru aðrir markaðir al-
mennt i góðri þróun, sérstaklega sá breski, svo að ef gengisþróun verður hagstæð hefur
það áhrif á verð ferðanna og skilar okkur farþegunum. Gengið skiptir þess vegna öllu fyr-
ir þessa atvinnugrein. Það hefur þó verið þannig í gegnum árin að ef einn markaður finn-
ur fyrir gengisþróuninni kemur annar upp í staðinn. Heildaríjöldinn af farþegunum held-
ur því kannski áfram að aukast en mynstrið breytist. Eg er því bjartsýnn á árið 1998.” 35
/
Þórunn Pálsdóttir, fjármálastjóri Istaks:
STÆRRIVERKEFNI
ukin umsvif í verklegum fram-
kvæmdum voru einkennandi fyrir
árið 1997. Sérstaklega varð aukn-
TEXTI: INGIBJÖRG ÓÐINSDÓTTIR
ing í stærri verkefhum, svo sem við virkj-
anir og stóriðju. Istak er t.d. núna að reisa
álver fyrir Norðurál á Grundartanga og þá
34
Þórunn Pálsdóttir, fjármálastjóri
Istaks: „Líklegt að meðalstór fyrir-
tæki auki byggingaframkvæmdir
sínar á árinu 1998.“
FV- mynd: Kristín Bogadóttír.
hefur Fossvirki Sultartanga sf, sem ístak
er forsvarsaðili fyrir, hafið framkvæmdir
við aðveitugöng og stöðvarhús á Sultar-
tanga. Þá var einnig lokið við að sprengja
Hvaltjarðargöng á árinu og jafnframt er
Istak að vinna við endurbyggingu flugskýl-
is á Keflavíkurflugvelli sem er mjög stórt
verkefni.”
ÁFRAMHALDANDI UPPGANGUR
„Ég tel að horfúrnar fyrir komandi ár
séu góðar og ég sé fram á að áfram verði
uppgangur í byggingaframkvæmdum. Ég
tel líklegt að meðalstór og stærri fyrirtæki
fari að hugsa sér frekar til hreyfings í fjár-
festingum með áframhaldandi uppsveiflu í
efnahagslífinu.” 33
Frosti Sigurjónsson, forstjóri
Nýherja:
VAXANDIÁHUGIÁ
UPPLÝSINGATÆKNI
axandi eftirspurn og áhugi á upp-
lýsingatækni einkenndi árið 1997.
Fyrirtæki lögðu enn meiri
áherslu en áður á að nýta sér upplýsinga-
tækni til að ná fram markmiðum sínum og
Internetið og mikilvægi þess í viðskiptum
óx einnig til muna. Skortur var á tölvufólki
svo laun í greininni hækkuðu að meðaltali