Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 54
Borgarskipulagi. Þau eiga tvö börn, son, sem heitir Leifur og fæddist í Ameríku á 30 ára af- mælisdegi föður síns, 18. júní 1993, og Ölmu Rún sem kom í heim- inn 2. janúar 1997. Hreggviður og Hlín kynntust fyrst þegar Hreggviður keppti fyrir hönd Samvinnuskólans í Morfís ræðukeppninni en Hlín var dómari. Þau fóru saman til Ameríku og lærðu bæði við Macalester. Hann er ekki mjög virkur þátttakandi í hefðbundnum heimilisstörfum en sinn- ir uppeldi barnanna af alúð. Knattspyrna er eitt hans helsta áhugamál og hann horfir á leiki í sjónvarpinu þegar hann hefur tíma til. Hreggviður er áhangandi Manchester United en hefur einnig feng- ist við að leika knattspyrnu sjálfur. A yngri árum keppti hann í fótbolta á heimaslóðum en fékkst einnig við þjálfun hjá Ungmennafélagi Langnesinga. Hann stundar enn innanhússknattspyrnu sér til skemmtunar. VINIRNIR Vegna þess að Hreggviður lærði er- lendis og dvaldist þar langdvölum eru flestir vinir hans og kunningjar hér heima tengdir fyrsta hluta námsferils- ins. Þeir eiga það flestir sameiginlegt að hafa setið á skólabekk í Samvinnuskól- anum. Nefna má Óskar Sigmundsson, starfsmann SH í Hamborg, Árna Krist- insson, frænda Hreggviðar og starfs- mann í Kaupfélagi Skagfirðinga, Þórð Bachmann, sölustjóra hjá Plastprent, Arna Ólaf Hjálmarsson hjá Samkeppnis- stofnun, Jakobínu Guðmundsdóttur, íþróttakennara sem vinnur hjá Island Tours og Heiðdísi Jónsdóttur fatahönn- uð meðal vina Hreggviðar frá þessum tíma. Mikill vinur Hreggviðar er Hannes Smárason, ijármálastjóri hjá Islenskri erfðagreiningu, en þeir Hreggviður kynntust úti í Boston og voru síðan báð- ir að vinna hjá McKinsey. Gunnar Rafn Birgisson, deildarstjóri hjá SL, er vinur Hreggviðar og félagi frá Minnesota. Hreggviður heldur tengslum við fjölda erlendra skólabræðra, einkum úr Harvard. Hreggviður ásamt Páli Magnússyni firéttastjóra. VEIÐARNAR Fjölskylda Hreggviðar er samheldin og hann rækir mikið og gott samband við Jóhann og Rafn, bræður sína. Jóhann og hann eru i nær daglegu sambandi og hafa lík áhugamál. Jóhann Jóhannsson, aðaleigandi Brimborgar, er móðurbróðir Hreggviðar en sá systkinahópur er mjög stór og sam- heldinn. Hreggviður rækir mjög sam- skipti við þann hluta íjölskyldunnar og Jóhann er náinn vinur hans og ráðgjafi. Góð tengsl eru einnig við tengdafjöl- skylduna sem býr í Þorlákshöfn. Veiðar eru meðal áhugamála Hregg- viðar en hann gengur til rjúpna á hverju hausti á heimaslóðum með bræðrum sínum. I haust veiddu þeir félagar vel en þá fór Páll Magnússon fréttastjóri með þeim en hann er rómaður veiðimaður og þeir Hreggviður ná vel saman á því sviði. I tómstundum sínum sinnir Hreggvið- ur hölskyldu sinni, enda lítill tími til ann- ars þegar' börnin eru ung. Hann hefur gaman af hreyfingu ýmiskonar og bregður sér stundum út að skokka eða fer í líkamsrækt í World Class. STJÓRNANDINN Mörgum finnst Hreggviður kaldur og Ijarlægur við fyrstu kynni en þeir, sem þekkja hann vel, nota orð eins og jafn- lyndur, duglegur, hreinskiptinn, opin- skár og einbeittur til að lýsa honum nán- í SKUGGA JÓNS ÓLAFSSONAR Jón Ólafsson er umdeildur maöur og hefur oft gustað um hann í opinberri umræðu. Hreggviður hefur ekki farið varhluta af því þar sem þeir hafa unnið mikið saman og Hreggviður verið náinn samstarfsmaður hans. ar. Ávinnustað þyk- ir hann eiga gott með samskipti við fólk og eiga nokk- uð gott með að stjórna. Stjórnsemi er eiginleiki sem margir, sem þekkja Hreggvið, nefna þegar hann ber á góma. Hann er stjórnsamur að eðl- isfari og er fullyrt að hann sæki þá eiginleika í móðurættína. Jóhann, bróðir hans á Þórshöfii, hefur oft verið talinn stjórnsamur og stundum um of en kunnugir segja að Hreggviður gefi honum ekkert eftir en fari betur með stjórnsemi sína og kunni betur að klæða hana í diplómatískan búning. ÍMYNDIN Hreggviður hefur unnið náið með stærstu hluthöfum Islenska útvarpsfé- lagsins, eins og Jóni Ólafssyni og Sigur- jóni Sighvatssyni. Samstarfið við þá hef- ur gengið ágætlega. Jón Ólafsson er umdeildur maður og hefur oft gustað um hann í opinberri um- ræðu. Hreggviður hefur ekki farið var- hluta af því þar sem þeir hafa unnið mik- ið saman og Hreggviður verið náinn samstarfsmaður hans. Fyrr á þessu ári komst Hreggviður í fréttirnar þegar hann var skipaður stjórn- arformaður Stöðvar 3. Helgarpósturinn hélt því fram um það leyti að hann hefði beitt brögðum í viðskiptum með hluta- bréf norður á Þórshöfn árið 1996.1 þeirri umtjöllun má segja að Hreggviður hafi goldið samstarfsins við Jón sem augljós- lega var skotspónn blaðsins. Vinir Hreggviðs segja að þótt dómur hafi fallið honum í hag í málaferlum gegn Helgarpóstinum þá hafi óhjákvæmilega fallið blettur á ímynd hans við umrædd blaðaskrif. Þannig sýnir nærmyndin af Hreggviði Jónssyni okkur ungan mann sem hefur aflað sér fyrsta flokks menntunar og er á unga aldri tekinn við stjórnartaumum í fyrirtæki, sem er risi á sínu sviði, oft gustar um og er mikið í sviðsljósinu. Það þarf áreiðanlega stáltaugar á köflum til að stýra sýningunni á Lynghálsinum en Hreggviður sýnist hafa metnaðargirni, hæfileika og menntun tíl þess. SD 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.