Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 21
Jóha n mÍlU 1 SÍnUm Ec°nline sendibí, maður vera orðinn of gam- all til þess að gera nokkuð af viti og ég held að eng- inn þori að ráða sem und- irmann þann sem hefur verið yfirmaður jafn lengi og ég. Eg var í hálfu starfi hjá Kaupmanna- samtökunum þetta ár og einbeitti mér að því verkefni að koma á sölu burðarplastpoka. Hugmyndin um Bónus blundaði í hug- skotinu. Eg hafði starf- að í verslun í 25 ár, farið víða um erlendis og séð starfsemi annarra verslana og tekið virkan þátt í samtökum kaup- manna í nágrannalöndunum,“ segir Jóhannes og bendir á gull- merki frá öllum kaupmannasamtökunum á Norðurlöndunum, nema Islandi. FÉKK LÁNAÐ HJÁ MÖMMU Þeir feðgar létu síðan til skarar skiíða vorið 1989. Þeir höiðu eina milljón milli handa til þess að byrja með, Jón Asgeir fékk lán- að veð hjá Ola frænda sínum í Olís en Jóhannes fékk lánað fé hjá móður sinni. „Við vissum í raun ekki hvernig viðtökurnar yrðu. A þessum tíma var Hagkaup nýflutt inn í Kringlu svo við sáum að plássið var til á markaðnum og ein stærsta tækninýjung þess tíma, strika- merkin, var að ryðja sér til rúms. Við ætluðum að koma upp lág- verðsmarkaði sem við gætum báðir lifað af með svona kannski tvo starfsmenn. Eg man að við reiknuðum með að við þyrftum að selja fyrir 7 milljónir á mánuði til að dæmið gengi upp. Það fór svo að við seldum fyrir 7 milljónir fyrstu vikuna og tæpar 30 milljónir fyrsta mánuðinn. Það voru tveir starfsmenn í þessu með okkur og engar keðjuhugmyndir í gangi.“ FYRSTIR í STRIKAMERKIN Bónus varð fyrst íslenskra smásöluverslana til að taka upp strikamerkingar á hillum og við kassana. Verslunin var þá, eins og nú, aðeins opin takmarkaðan tíma á dag og stærsta breytingin var ef til vill sú að fólkið sótti vörurnar sjálft í kælinn. Lykilatriðið var strikamerkjakerfið og tölvukerfi búðarinnar sem kom í hlut Jóns Ásgeirs að sjá um og koma á laggirnar. Þetta var í kringum páska og það vildi svo heppilega til, að sögn þeirra feðga, að það var kennaraverkfall svo Jón gat unnið með föður sínum í verkefn- inu frá sex á morgnana til miðnættis eins og var algengur vinnu- tími á þessum árum. „Þetta var geggjun. Við þurftum að loka þrisv- ar fyrsta daginn aí því að tölvukerfið hrundi. Það kunni enginn neitt á þessa nýju tækni. Auk þess var bílastæðið hér fyrir utan ekki einu sinni mal- bikað og fólkið var að festa innkaupakerrurnar í drullupollunum," segir Jón Ásgeir þegar þessir æsilegu tímar eru rifjaðir upp. „Við sóttum okkar fyrirmyndir fyrst og fremst til Aldi og Netto keðjanna en þetta með kælinn, sem fólkið gengur sjálft inn, er okkar °g ferðast hugmynd. Við höfö- um reyndar prófað þetta um tíma uppi í Austurveri þegar þar var rekinn Spari- markaður í kjallaranum og vissum þess vegna að fólki fannst þetta ekk- ert mál. Nú vitum við að sumir kunningjar okkar erlendis hafa tekið þetta upp að okkar fyrirmynd.“ Þeir feðgar höfðu um hríð horft í kringum sig eftir hentugu húsnæði og reyndu að komast inn uppi á Ártúnshöfða og einnig í Faxafeni þar sem er reyndar Bónus í dag. En Skútuvogur 13 varð fæðingarstaður Bónus og það var ánægjulegur áfangi þegar þeir feðgar eignuðust nýlega húsið þar sem verslunin er og ævintýrið byrjaði. „Hingað kemur fjöldi fólks sem hefur verslað við okkur ein- mitt hérna frá fyrsta degi. Þetta fólk heldur tryggð við okkur og kemur hingað þótt miklu stærri Bónusverslun sé hér skammt frá, í Holtagörðum. Hér eru okkar höfuðbækistöðvar, hérna eru skrif- stofurnar, hér fara allir verðútreikningar fram og héðan er fyrir- tækinu stjórnað. í Skútuvoginum slær hjarta fyrirtækisins og svo verður áfram. Það stendur til að reisa 9000 fermetra hús fyrir Baug hérna í næsta nágrenni. Það verður tekið í notkun fyrri hluta næsta árs. Þaðan verður öllum vörum dreift í verslanir Bón- us og Hagkaups.“ KEPPINAUTARNIR SVÁFU Á VERÐINUM Jóhannes og Jón Ásgeir eru sammála um að fyrstu árin hafi þeir sjálfir ekki áttað sig til fulls á því hve verðmætt fyrirtæki Bón- us var orðið. Það hafi keppinautarnir ekki heldur gert en miklu fremur talið dagana þangað til Bónus færi yfir um. „Við bjuggumst við að keppinautarnir myndu tryllast þegar við tókum til starfa en í þijú ár létu þeir okkur að mestu afskipta- lausa og ég held að þeir hafi varla áttað sig á því hvað þetta gekk vel. Skömmu áður en við opnuðum sagði forstjóri stærsta keppi- nautarins að það væru að minnsta kosti þijú ár þangað til strika- merki kæmu inn í matvöruverslunina. Við vorum lengi einir með þetta og það var eins og enginn kaupmaður sæi hagnaðinn af þessu. Með hjálp strikamerkjakerfisins getum við séð afkomuna á hverjum degi. Annars værum við sjálfsagt báðir orðnir heilsulaus- ir af áhyggjum. I dag erum við með fimmtu kynslóðina af skönnum og kassakerfi á tæp- um níu árum svo þú sérð hvað framfarirnar eru örar. Af hugbúnaðinum er verið að smíða fiórðu kynslóðina. Hugbúnaður okk- ar er sérhönnuð útgáfa af Fjölni sem Streng- ur hefur búið til í samvinnu við okkur. Hann hefur þegar verið tekinn í notkun af mörg- um fyrirtækjum." Jón Ásgeir hefur verið potturinn og pannan i umræddri hugbúnaðarsmíð og ATTA ARA SENDILL „Ég man fyrst eftir mér átta ára gömlum í sendibíl frá Matardeild SS í Hafnarstræti við að hjálpa til við heimsendingar fyrir jól. Þar vann faðir minn og þar vann ég við hlið hans og undir hans stjórn framan af.“ 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.