Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 24
Jóhannes og Ása Karen Ásgeirsdóttir hafa verið gift frá
1962. Þau búa á Seltjarnarnesi.
matvörur í ár íyrir sex milljarða. Ef þessar vörur væru keyptar hjá
samkeppnisaðilum okkar hér á höfuðborgarsvæðinu myndu þær
kosta 7,2 til 8 milljarða.“
ALLIR SAMNINGAR LAUSIR
Um þessi áramót eru allir samningar Baugs, innkaupafyrir-
tækis Bónus og Hagkaups, lausir. Þeir feðgar eru þekktir fyrir
hörku í samningum og hafa mjög oft farið fram hjá hefðbundnu
kerfi innflytjenda og heildsala og flutt inn sjálfir. Sérstakur starfs-
maður Bónus í Danmörku starfar að innkaupum fyrir fyrirtækið
í Evrópu og slíkt fyrirkomulag er einnig komið á laggirnar í Am-
eríku. Ætla þeir nú að losa sig við heildsalana fyrir fullt og allt?
„Nei, það er ekki svo. Það verða opnaðar nýjar verslanir eftir
áramótin, Baugur flytur í nýtt húsnæði og nýr framkvæmdastjóri
tekur við. Þess vegna er full ástæða til að endurskoða alla samn-
inga.
Um áramótin verður og gerð sú breyting að Baugur tekur yfir
öll innkaup, llka þau sem fram að þessu hafa verið í umsjón ein-
stakra verslana. Það verður beitt nýjum aðferðum við lagerhald
og fleira.“
Þeir feðgar segja að undanfarið hafi staðið yfir mat á því hvern-
ig einstakir birgjar standi sig í afgreiðslu og uppsögn samning-
anna tengist því mati.
ÞEIR SEM EKKI STANDA SIG MISSA PLÁSSIÐ
„Þetta er mjög skýrt. Ef þú stendur þig ekki í að afgreiða vöru,
sem þú hefur lofað til okkar, þá missir þú hilluplássið þitt.“
Með þessu fyrirkomulagi og aukinni ábyrgð Baugs í innkaup-
um verða þá heildsalar ekki algerlega úreltir?
„Heildsalar munu aldrei hverfa af sjónarsviðinu. Þeir vinna
að margháttuðu kynningar- og markaðsstarfi og bjóða upp á
mikilvæga þjónustu fyrir verslunina í landinu. En auðvitað er
heildverslunin að þróast. Fyrirtækjum fækkar og önnur stæk-
ka. Þannig styrkir heildverslunin best samkeppnisstöðu sína.
Allt grænmeti og alla ávexti flytjum við hinsvegar sjálfir inn í
Vilji og vandvirkni í verki!
Prentsmiðjan Grafík hf. ■ Smiöjuvegur 3 ■ 200 Kópavogur • Simi: 554 5000 ■ Fax: 554 B
PAPPÍR
FYRIR
ALLAR
GERÐIR
TÖLVUPRENTARA
LJOSRITUNARPAPPÍR
REIKNIVÉLARÚLLUR
FAXRÚLLUR
RAF í
K
UMBROl
SETNING
ÚTKEYRSL
MAC / PC
FILMU OG PLÖTUGERÐ
ÖLL ALMENN
PRENTUN
BÖKBAND
24