Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Síða 44

Frjáls verslun - 01.11.1997, Síða 44
Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson, hefur ekki lengur samning við auglýsingastofu heldur hefur hann ráðið tvo starfsmenn tíl fyrirtækisins sem annast auglýsingar. HÖFUM LOSAÐ OKKUR VIÐ MILLIUÐ - spörum bæði tíma ogpeninga, segir Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar. ið höfum losað okkur við millilið og því fylgir að maður sparar bæði tíma og peninga,“ segir Jón Snorri Snorrason, fram- kvæmdastjóri Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf., en Öl- gerðin hefur tekið upp ný vinnubrögð í vinnslu á auglýsingum. Nú eru tveir starfsmenn hjá Ölgerðinni sem sjá alfarið um öll mark- aðsmál og gerð auglýsinga. Þeir eru studdir af sérstökum vinnuhópi inn- an fyrirtækisins sem kemur að hugmyndavinnunni. Þetta er framhald af tilraun sem Ölgerðin gerði í þessu efni síðastliðið haust og var fram haldið nú í vor með ráðningu þessara tveggja starfs- manna sem báðir eru sérmenntaðir í auglýsingagerð og markaðsffæðum. Auk þess keypti Ölgerðin nauðsynlegan tölvubúnað til þess að gera ein- faldar auglýsingar. „Ef við viljum gera sjónvarpsauglýsingar, útvarpsauglýsingar eða láta prenta plaköt eða bæklinga þá förum við beint til undirverktakanna, sem auglýsingastofurnar nýta, eins og t.d. í prentsmiðjur og kvikmyndafyrir- tæki. Þannig spörum við tíma og milliliðakostnað. Boðleiðir eru skýrari og hægt að vinna einfaldar auglýsingar mun hraðar en áður. Með þessu erum við ekki að útiloka samstarf við auglýsingastofur í framtíðinni en eins og sakir standa höfum við aðeins samstarf við auglýs- ingastofu um birtingar." Með þessu er Ölgerðin að feta í fótspor nokkurra stórra fyrirtækja sem hafa sína eigin starfsmenn í auglýsingagerð. Þetta á við um Heklu, Vífilfell og fleiri en enginn hefur enn gengið eins langt og Ölgerðin. Þessi fyrirtæki virðast því eiga það sameiginlegt að hafa losað sig úr viðjum auglýsingastofanna. Ekki verður séð annað en hinar grónu auglýsinga- stofur séu þarna að missa töluverð viðskipti þvi þessi þrjú fyrirtæki, sem hér eru nefnd, eyða um 200 milljónum árlega í auglýsingar og markaðs- mál. „Eg hef stundum líkt vinnubrögðum á auglýsingastofum við arkitekta- stofúr. Mér finnst skrýtið ef auglýsingastofur eru einu fyrirtækin á mark- aðnum sem útboð og samkeppni þeim fylgjandi ná ekki til. Það er liðin tíð að þjónustufyrirtæki geti litið á viðskiptavinina sem sína eign en það virð- ast sumar auglýsingastofurnar gera,“ sagði Jón Snorri að lokum. Þarna hefur niðursveifla í efnahagslífinu haft sín áhrif því upp úr 1990 máttu hlutir helst ekki kosta neitt og við þurftum að laga okkur að því eins og aðr- ir. Við óþvingaðri markaðsaðstæður hefði ávinning- urinn ef til vill skipst í öðrum hlutföllum milli okkar og viðskiptavinanna." TRYGGÐ 0G LAUSLÆTI Fá stór fyrirtæki í hverri grein hafa sett mark sitt á umhverfi auglýsingastofanna. Hvað með tryggð þessara stóru kúnna við sínar stofur? „Hún er auðvitað misjöfh en ég hygg að meira sé um tryggð en lauslæti ef svo má að orði komast. Þessu hefur stundum verið líkt við hjónaband og til þess að vel gangi þurfa báðir aðilar að vera ánægðir. Það er mjög eðlilegt að viðskiptavinir séu ekki á flakki því það tekur tíma fyrir báða aðila að finna sig í samstarfinu svo hægt sé að spila þann borðtennis sem þarf að vera í gangi milli auglýsingastofu og við- skiptavinar. Menn ijárfesta í slíkum samböndum á báða bóga og því eðlilegt að menn séu tregir til þess að slita slíkum samböndum." Ef þú lítur í huganum yfir stærstu viðskiptavinina á íslenskum markaði. Hafa þeir sýnt sinni auglýs- ingastofu tryggð síðustu 10 ár? ,Ætli það sé ekki í kringum 60% þeirra sem eru búnir að vera hjá sömu stofu í 10 ár eða lengur. Það er sagt að ekki sé hollt fyrir auglýsingastofur að byggja tilveru sína of mikið á einum stórum við- skiptavini. Slíkt er áhættusamt en það eru samt mörg dæmi um að menn hafi sloppið lifandi frá slíku samstarfi. Eg hef persónulega upplifað slíkt fyrir um 15 árum þegar Flugleiðir sögðu upp samstarfi við okk- ar auglýsingastofu. Það varð hvorugum að fjörtjóni því staðreyndin var sú að svona samstarfi er ekki að ástæðulausu líkt við hjónabönd. Stundum er skilnað- ur besta lausnin fyrir báða aðila.“ Halldór er ekki óvanur því að sjá um stóra við- skiptavini því stofa hans hefur árum saman annast allar auglýsingar fyrir Mjólkursamsöluna, Markaðs- nefnd mjólkuriðnaðarins og Osta- og smjörsöluna. EKKI UPP Á MILLI HJÓNA I greinum, sem Fijáls verslun hefur skrifað um einstakar auglýsingaherferðir undir heitinu „Sagan bak við herferðina“, hafa á þessu ári komið fram dæmi um að auglýsingastofur hafi selt stórum við- skiptavinum, sem ekki eru í viðskiptum við þá, hug- myndir að auglýsingum og jafnvel auglýsingaher- ferðum. Boðar þetta ný vinnubrögð í auglýsingaiðn- aðinum? „Það vona ég ekki. Þetta er, að mínu viti, alger undantekning. Stofurnar hafa fram til þessa virt þau sambönd sem eru milli þeirra og kúnnanna og ekki haft frumkvæði að því að komast upp á milli aðila. Um þetta hefur verið heiðursmannasamkomulag.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.