Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Page 53

Frjáls verslun - 01.11.1997, Page 53
frá Macalester College í St. Paul í Minnesota árið 1987. Gamall kennari Hreggviðs úr Sam- vinnuskólanum segist muna eftir honum sem líflegum og spurulum nemanda sem hafði lifandi áhuga á námsefninu og var námsmaður í góðu meðallagi. Hreggvið- ur tók virkan þátt í félagslífi skólans og var vinsæll meðal skólafélaga sinna þar sem hann þótti glaðvær og gamansamur. Hann var um tíma formaður Nemendafé- lagsins. STARFSFERILLINN Árið 1987-1988 starfaði Hreggviður sem sölufulltrúi hjá Cargill Incorporated í Jacksonville í Flórída. Cargill er einn stærsta einkafyrirtæki í heiminum og stærsti framleiðandi landbúnaðarafurða í Bandaríkjunum en hlutverk Hreggviðs var að selja afurðirnar til Austurlanda nær og ijær. Hann kom heim til Islands og starfaði sem markaðsstjóri hjá bílaumboðinu Brimborg árin 1988 til 1991. Þá hélt hann enn í víking vestur og nú settist hann á skólabekk í Harvard háskólanum og lauk þaðan MBA prófi árið 1993. Harvard er ótvírætt meðal virtustu skóla á sviði viðskipta og ijármála. Örfáir ís- lendingar hafa sótt nám þangað en Hreggviður er sá eini sem er með MBA í rekstrarhagffæði írá Harvard. Eftir að náminu í Harvard lauk fór Hreggviður að vinna hjá McKinsey- &Company í Stokkhólmi. McKinsey bauð honum fyrst sumarvinnu og síðan fast starf. Þetta er eitt af virtustu ráð- gjafaríyrirtækjum heims og gríðarlega eftirsótt að komast í starf hjá því. Með próf úr Harvard og meðmæli frá McK- insey hefði Hreggviður eflaust getað val- ið úr störfum í Bandaríkjunum. Þangað vildi hann fara eftir starfið í Stokkhólmi því hann kunni aldrei eins vel við sig í Svíþjóð eins og vestan hafsins. Hreggvið langaði til þess að nýta hæfileika sína í landi tækifæranna, Ameríku, en þannig sá hann það samfélag fyrir sér. Þetta var að mörgu leyti erfið ákvörð- un og afdrifarík. Eflaust hefði Hreggvið- ur átt kost á ýmsum störfum í Ameríku en valið stóð einnig um það hvort ijöl- skyldan ætti að setjast að erlendis eða snúa heim aftur til ættjarðarinnar. Ymis fyrirtæki höfðu áhuga á að fá Hreggvið i vinnu þegar það fréttist að hann væri á heimleið og Islenska út- Ilreggviður Jónsson er sjötti sjónvarpsstjóri Stöðvar tvö á ellefu árum. Hann er m.a. menntaður í Samvinnuskólanum og Harvard. FV-myndir: Geir Ólafsson. varpsfélagið var eitt þeirra. Margir vina hans undruðust val hans á sínum tíma. Þá stóð félagið á töluverðum tímamótum þar sem Chase Manhattan bankinn var að fjármagna kaup hluthafa á meirihluta- eign í félaginu. Hreggviður mun hafa FYRSTU LAUNIN12 ÁRA Fyrsta launaða starfið, sem Hreggviður gegndi, var við byggingu frystihússins á Þórshöfn þegar hann var 12 ára gamall. Síðar var hann í vegavinnu og fiskvinnslu og stundaði sjómennsku. metið það sem kost að þessi umskipti væru að verða og var tilbúinn til þess að taka áhættu og sá jafnframt ýmsa mögu- leika í starfinu sem honum féllu vel. FJÖLSKYLDAN Hreggviður er giftur Hlín Sverrisdótt- ur, f. 27. ágúst 1965 á Selfossi. Foreldrar hennar eru Sverrir Siguijónsson, húsa- smiður í Þorlákshöfn, og Álfhildur Stein- björnsdóttir. Hlín er menntaður skipu- lagsfræðingur og landslagsarkitekt frá Macalester College og Cornell Uni- versity í Bandaríkjunum og starfar hjá 53

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.