Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Qupperneq 73

Frjáls verslun - 01.11.1997, Qupperneq 73
•................ fram allt hinn al- menni leikhús- gestur, á heimt- ingu á, að fái að spreyta sig við bestu aðstæður. Eg hef t.d. sagt það oftar en einu sinni, og mun segja það jafn lengi og þörf krefur, að mér er fullkomlega óskiljanlegt, að jafn fær maður og Halldór E. Laxness hafi ekki enn fengið inni í Þjóðleikhúsinu. Þó að Halldór hafi ekki heldur hlotið náð fyrir augum Þórhild- ar, eftir að hún tók við í Borgarleikhússinu, hefur hún með nýjum áherslum í leikstjóravali að nokkru náð að bæta fyrir slælega frammistöðu starfsbróður síns í Þjóðleikhúsinu (sbr. grein mína um Borgarleikhúsið í 2. tbl. Fjölnis). En nú þarf að taka mun bet- ur á, því að með örfáum undantekningum hafa fæstir hinna nýju leikstjóra gert garðinn frægan á þessu ári. Baltasar Kormákur hefur þannig haft nóg að gera við að reka eigið leikhús og fylla upp i vinnuskyldu sína sem leikari við Þjóðleikhúsið - þó að ég sé hræddur um, að hann verði leikhúsinu seint jafii nýtur þegn sem leikari og leikstjóri - en vissulega er hann nú á kafi í Hamlet, svo að við þurfum vonandi ekki að hafa áhyggjur af honum í bili. Þjóðleikhússfjóri boðar glæsilegt leikár Það var óvenju mikill völlur á Stefáni Baldurssyni, þegar hann kynnti verkefna- skrá Þjóðleikhússins í haustbyriun. Áferðarfagur kynningar- bæklingur var gefinn út og því hampað óspart í fjölmiðlum, hversu glæsilegt úrval verkefna væri í boði. Að sönnu munu fæst- ir sæmilega sjóaðir leikhúsmenn hafa trúað því, að honum tækist að framkvæma þessa áætlun út í ystu æsar, enda hefur það kom- ið á daginn; ekki bólar enn á tveimur leikritum sem boðuð voru í nóvember, Ijölskylduleik á stóra sviðinu og frönskum gamanleik á litla sviðinu. Að sjálfsögðu má alltaf búast við því, að áætlanir í leikhúsi gangi úr skorðum, t.d. vegna óvenju mikillar eða lítill- ar aðsóknar. I þessum tilvikum verður þó ekki séð, að neitt slíkt hafi átt sér stað, sem bendir til, að leikhúsið hafi hér orðið uppvíst að full mikilli auglýsingamennsku - og satt best að segja kæmi mér einnig mjög á óvart, ef stórveldin Shakespeare, Olafur Haukur, Bertolt Brecht og Birgir Sig- urðsson rúmuðust öll á stóra sviðinu í vor. Það er slæmt, ef Þjóðleikhúsið stendur ekki við fyrirheit sín gagnvart áhorfendum; auðvitað verður fullur trúnaður að ríkja milli þjóðarinnar og helsta leikhúss hennar. Eg hef ítrekað gagnrýnt Stefán Baldursson fyrir að leggja litla rækt við klassíkina, og skal því verða fyrstur manna til að fagna þeirri yfirbótarviðleitni .............-• sem hann sýn- ist nú ætla að hafa í frammi. Mér finnst hún að vísu helst til síðbúin í leik- hússtjóratíð sem er brátt á enda. Það hefur verið afar tilvilj- anakennt, hvað af eldri leikbók- menntum hefur ratað upp á svið Þjóðleikhúss- ins undir hans stjórn; grísku leikskáldin hafa t.d. ekki hlotið náð fyrir augum hans og ekki heldur Moliére, meistari meistaranna í gamanleiknum (ég tel ekki með hina stórskringilegu uppfærslu Rimas Tuminas á Don Juan) eða Strindberg. Aðeins tvö verka Shakespeares hafa verið flutt og bæði lögð í hendurnar á Guðjóni Pedersen, sem hefur margsinnis sýnt og sannað, að hið eina sem hann getur gert við Svaninn frá Avon er að reyta af honum ijaðrirnar. Villiöndin hef- ur eitt verka Ibsens komist inn í leikhúsið og þá bretti Stefán Baldursson sjálfur upp ermarnar og reytti fuglinn. Einnig hefur mjög lítið verið gert að þvi að taka fram eldri skáldverk eftír aðra en heimsmeistarana; verk sem geta þó enn átt til okkar margvíslegt erindi og skipta miklu máli fyrir hið al- menna menntunar- og fræðsluhlutverk, sem leikhúsinu er skylt að rækja. Skækja John Fords var einkar gott dæmi um þetta; annað, að vissu leyti ekki ósvipað, var Fáviti Dostojevskís, þar sem Hilmir Snær lagði okk- ur að fótum sér. Bæði fengu verk þessi af- bragðs undirtektir áhorfenda, þó að margir heföu tæpast spáð þeim miklu gengi fyrirfram. Dirfska sú og frumleiki, sem þessar sýningar báru vitni um, hafa verið of sjaldséð í tíð Stefáns Baldurssonar. En þá er skylt að muna, að forveri hans í stóli leikhússtjóra, Gísli Alfreðsson, var afar veikur stjórnandi og lengst af sáttur við að láta alla listræna áhættu eiga sig. Stefán hefur sannariega hrist upp í leikhúsinu, rekið á braut þá lognmollu sem þar ríkti fyrir. Hann hefur glöggt leikhúsauga og honum hefur yfirleitt tekist að sneiða hjá verkum sem henta ekki kröftum hússins. Engum dylst, að bæði leikendur og leikstjórar leggja sig alla fram undir forystu hans; að menn komast ekki upp með það sleifarlag, sem fyrrum var algengt í leikhúsinu. Gallinn er aðeins sá, að fagmennskan fer allt of sjaldan í alvöru leikskáld- skap og fæðir af sér list sem snertir mann í raun og veru. Til hvers í ósköpunum að flytja verk eins og M Butterfly, Sannan karlmann, Kiabbasvalirnar - svo ég nefni fáein verk af handahófi - eða ís- lensku leikritin, sem ég drap á í síðasta tölublaði Fijálsrar verslunar? A sama tíma hafa sum af fremstu og áhugaverðustu leikskáldum sam- tíðarinnar ekki sést á sviðinu: Havel, Pinter, Úr leiksýningu ársins: Að eilífu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. 73
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.