Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 3
,, k ' ■ i a
■l 1
... GETUR LÍKA VERIÐ MEST SPENNANDI
Með Voivo S80 hefst nýr og spennandi kafli í langri þróunarsögu. Aldrei áður hefur Volvo lagt
jafnmikla vinnu í hönnun fólksbíls. Volvo S80 er ekki bara öruggasti fólksbíll sem Volvo hefur
nokkru sinni smíðað - hann er einstök upplifun.
Þægindi í hæsta gæðaflokki
Volvo S80 er frábærlega hannaður hvernig sem á hann
er litið, jafnt að innan sem utan. Farþegarýmið er með því
stærsta og vandaðasta sem þekkist. Fjölbreyttar stillingar
á stýri og sæti gera ökumanni kleift að finna hina fullkomnu
akstursstellingu. 1 aftursætinu geta þrír fullorðnir notið
fyllstu þæginda með yfirdrifið rvmi til fóta. Þegar þörf er
á auknu farangursrými má fella niður aftursætisbaldð,
að hluta eða í heild. Bakið á farþegasætinu er einnig hægt
að leggja niður.
Einstakir aksturseiginleikar
Volvo S80 hefur einstaka aksturseiginleika. Undirvagninn
er einn sá fullkomnasti sem framleiddur hefur verið
og billinn helst nánast alveg láréttur við allar aðstæður.
Öflugt ABS hemlakerfi með loftkældum diskum
og EBD átaksdreifingu lágmarkar hemlunarvegalengd.
STC spólvörn tryggir ávallt besta mögulegt veggrip
og DSTC skriðvöm vinnur gegn því að billinn skríði til hliðar.
Feiknarkraftur
Volvo S80 er boðinn með tveimur öflugum og þýðgengum
vélum. Fimm strokka vélin er 2,4 lítra og skilar 170
hestöflum. Hún nýtir eldsneytið sérlega vel og hefur mikinn
togkraft á öllu snúningssviðinu. Volvo S80 T6 er fyrsti bíll
í heiminum með þverliggjandi sex strokka línuvél. Vélin
sldlar 272 hestöflum oglemur bílnum í 100 km hraða
á 7,2 sekúndum. Bíllinn er með nýja Geartronic skiptingu
sem sameinar kosti sjálfskiptingar og beinskiptingar.
Nýr mælikvarði á öryggi
Með Volvo S80 kemur nýr mælikvarði á öryggi fólksbíla.
Af öryggisbúnaði má nefna tvær heimsnýjungar, WHIPS
aftanákeyrsluvörn og IC loftpúðatjöld fyrir hliðarglugga.
Bíllinn er með SIPS hliðarárekstravöm og hliðarloftpúða
i framsætum. Öll fimm sætin eru með þriggja punkta
kippibeltum. Öryggi bama er séstaklega tryggt í Volvo S80,
meðal annars er hægt að fá innbyggðan bamastól í aftursæti.
Fullkomnasta tölvukerfi í fólksbíl
Tölvukerfið í Volvo S80 er það fullkomnasta sem boðið
hefur verið í fólksbíl. Kerfið auðveldar viðhald og gefur
ótrúlega möguleika á uppfærslu búnaðar. Verði bilun í
bílnum birtast ökumanni upplýsingar um rétt viðbrögð á
tölvuskjá í mælaborðinu. Sami skjár getur einnig sýnt
upplýsingar úr aksturstölvu, svo sem bensxneyðslu.
Rafeindastýrð þjófavöm útilokar að bíllinn sé ræstur án
rétta lykilsins.
Búnaður fyrir þá kröfuhörðustu
Staðalbúnaður Volvo S80 hefur hvergi verið sparaður
og aukabúnaðurinn mætir ýtmstu kröfum. Allur búnaður
hefur verið hannaður með öxyggi í huga. Ökumaður getur
til dæmis stjómað hljómtækjum, farsíma og hraðastilli án
þess að taka hendur af stýri. Innbyggður farsími er með
hljóðnema í baksýnisspegli og hátalara í höfuðpúða
ökumanns. Hægt er að gera bilinn að fullkomnum
hljómleikasal með Dolby Surround Pro Logic hljóm-
flutningskerfi með níu hátölumm.
Q,
brimborg
Brimborg • Bíldshöfða 6 • 112 Reykjavlk • Sími 515 7000 • Fax 515 7100 • brimborg.is
vjs / nN v ajH