Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 60
STJÓRNUN
Volvo
Dœmigerðir bílar fyrir
millistjórnendur, bílar á
bilinu 1,5 til 2 milljónir
króna.
kaupa bíl handa honum, hvort
hann afkasti meiru við að fá bíl,
hvort hann verði ánægðari í
staríi, hvort öðrum starfsmönn-
um mislíki - en bíll er jú sýnileg búbót
- og svona mætti áfram telja. Þetta eru í
reynd sömu spurningar og menn spyrja
þegar rætt er um launahækkanir milli-
stjórnenda eða byijunarlaun þeirra. Þess
vegna skýtur beiðnin um bílinn yfirleitt
upp kollinum þegar menn setjast niður og
ræða launamálin.
þær við 20% af kaupverði bílsins. Af 2ja
milljóna króna bíl eru hlunnindatekjurnar
400 þúsund krónur á ári - og þeim tekjum
þarf starfsmaðurinn að bæta við launatekj-
ur sínar þegar hann gerir skattskýrsluna.
Það þýðir fyrir hann viðbótarskatta upp á
um 150 þúsund á ári eða um 13 þúsund
krónur á mánuði. Með öðrum orðum: Það
kostar hann 13 þúsund krónur á mánuði að
aka á bíl fyrirtækisins; en hann sleppur jú
við að kaupa bílinn og reka hann. Fyrir-
tækið greiðir hins vegar engin launatengd
gjöld vegna bílsins til starfsmannsins, eins
og það þyrfti að gera hækkaði það við
hann launin. Rekstur bílsins er eins og
hver önnur útgjöld.
Óskammfeilni Bílar tíl millistjórnenda
Skaftlögð hlunnindi Þótt millistjórnandi
sé á bíl frá fyrirtækinu, sem á og rekur bíl-
inn að fullu, er það ekki svo að bíllinn sé
ókeypis fyrir starfsmanninn. Hann þarf að
telja fram tíl skatts hlunninda-
tekjur vegna notkunar
hans og miðast
Volkswagen
eru morg-
um for-
stjórum
enn svolít-
ið fjarlægt
mál, jafnvel þótt
þeir séu sjálfir á
fyrirtækjabílum. Sumpart stafar það af
því að þeir hafa ekki reiknað kostnaðinn tíl
enda og veifa því bílapeningum. Fyrir for-
stjóra sem þannig hugsar getur það virkað
allt að því óskammfeilni af millistjórnanda
að biðja um bíl; það sé einum of mikið af
því góða! Þetta viðhorf hefur þó verið að
breytast eftír að kröfur millistjórnenda um
bíla urðu algengari. Isinn hefur verið að
gefa sig. Spurningar fyrirtækisins eru auð-
vitað hvort starfsmaðurinn sé þess virði að
Kjötið á beininu
Það fyrsta sem
forstjóri ætti að
gera, komi beiðni
um bíl inn á hans
borð, er að hringja í
bílaumboðin eða eignaleig-
urnar til að fá vitneskju um þá kosti sem
eru í boði.
Bílaumboðin eru í beinum tengslum
við eignaleigurnar og tryggingafélögin og
með nákvæma útreikninga um kostnað,
greiðsludreifingu og verð pakkans. Líkast
tíl hljómar fyrirspurn forstjórans eitthvað á
þessa leið: „Eg á ekki fyrir nýjum bíl handa
starfsmanni mínum og ætla ekki að auka
yfirdráttinn í bankanum. Þið sjáið um ljár-
mögnunina. Hvað kostar bíllinn mig á
Rekstraraleiga
á 5 mkr. forstjórajeppa
yrirtæki leigir forstjórajeppa á um 5 milljónir króna
til þriggja ára. í algengri rekstarleigu þarf það að
greiða fyrir hann um 80 þúsund krónur á mánuði,
eða um tæpar 2,9 milljónir á þremur árum. Síðan á fyrirtæk-
ið eftír að reka bílinn, kaupa bensín og tryggingar. Jeppi, sem
eyðir 20 lítrum á hundraðið, og ekið er 20 þúsund kílómetra á
ári eyðir 4 þúsund lítrum af bensíni á ári eða fyrir um 300 þús-
und krónur. Við bætast tryggingar upp á 120 þúsund á ári.
Bensín og tryggingar eru því samtals um 420 þúsund á ári, eða
35 þúsund á mánuði, eða tæpar 1,3 milljónir á þremur
árum. Leiga og rekstur samtals tæpar 4,2 milljónir á þrem-
ur árum. Eða um 116 þúsund á mánuði fyrir fyrirtækið.
Af þessu sést að stjórnarformaður, sem fær ósk frá forstjóra
sínum í upphafi um 700 þúsund krónur i laun á mánuði, gætí
augljóslega gert gagntílboð upp á um 100 þúsund króna lægri
laun, eða 600 þúsund krónur á mánuði — en að hann fengi 5
milljóna króna jeppa til afhota. Þótt halda mættí að fyrirtækið
tapaði um 16 þúsund á þessu á mánuði er það ekki svo; af 100
þúsund kr. launahækkun tíl forstjórans þarf að greiða um 20
þúsund í launatengd gjöld; launahækkun hans kostar fyrirtæk-
ið 120 þúsund á mánuði en ekki 100 þúsund.
Á mótí þarf forstjórinn að telja fram um 1 milljón á ári í
hlunnindatekjur (20%afkaupverðijeppans) oggreiðaafþeim
um 37 þúsund í skatta aukalega á mánuði, eða um 1,3
milljónir á þremur árum. Það er lægri upphæð en hann þyrftí
að greiða ef hann keyptí bílinn sjálfur og ræki hann að fullu.
Bæði fyrirtækið og starfsmaðurinn hagnast í þessu dæmi.
Rekstrarleiga á 5 mkr. forstjórajeppa. Til 3 ára.
Rekstrarleiga 2,9 mkr. áþremurárum /
Bensín og tryggingar 1,3 mkr.
Samtals: 4,2 mkr. (116 þús. á mán.)
Skattalegt
hagræði - 1,3 mkr.
Samtals kostn v. bíls 2,9 mkr.
Hlunnindatekjur
forstjórans 1,0 mkr. á ári
(20% af virði bíls)
Skattur 450 þús. á ári
eða 37 þús. á mán.
60