Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 46
IVIÐTOL
„Auðvitað sakar ekki að vera með
æfingu í hraðskák þar sem hlutirnir
gerast eins hratt og hér. “
Jóhann Hjartarson
„Margir teija það sérgáfu eða
hreinan og kláran galdur að geta
teflt til dæmis blindskák á mörgum
borðum í einu.“
Jóhann Hjartarson
það sameiginlegt að menn þurfa að muna
nokkuð mikið og þjálfa sig í því. Margir
telja það sérgáfu eða hreinan og kláran
galdur að geta teflt til dæmis blindskák á
mörgum borðum í einu, en auðvitað er það
mest þjálfun og vinna,“ segir Jóhann.
„Menn þurfa að hafa skákborðið í kollin-
um og muna hverja hreyfingu en í raun er
það ekkert öðruvísi en til dæmis að geta
munað heilu hlutverkin í leikritum, sem ég
myndi kannski ekki treysta mér til, einfald-
lega vegna þjálfunarskorts.“
Jóhann Hjartarson er lögfræðingur Islenskrar erfðagreiningar. Stiginn ermikið notaður, enda
starfsliðið, sem telur um 250 manns, á þönum um húsið í ýmsum erindagerðum.
ganga beint inn í vísindaskáldsögu. Tölvur
og ókennileg tæki um allt, loftrásir upp af
sumum tækjanna og mikill flöldi manna,
ýmist í hvítum sloppum eða bara venjuleg-
um fötum, á ferðinni. Mannijöldinn í hús-
inu vekur athygli blaðamanns og Jóhann
segir til útskýringar að um 250 manns
vinni á staðnum við ýmis störf.
Frí fyrir Skákina „Ég fékk stórmeistartit-
il 1985,“ heldur Jóhann áfram. „Þá var ég í
skólanum, í lögfræðinni, sem hafði þann
kost að maður réð tíma sínum nokkuð
sjálfur vegna þess að prófin voru bara einu
sinni á ári. Það gerði að verkum að ég gat
eytt nokkuð miklum tíma í skákina. En
hinsvegar tók ég mér
tveggja ára frí frá námi árin
1988 og 1989 til að geta
sinnt skákinni og var þá að
kenna hana líka.“
Er blindskák galdur?
Jóhann segir flesta stór-
meistara hafa verið lög-
fræðinga í eina tíð, fjórir af sex
hafi um tíma verið lögfræðingar að mennt.
„Þetta tvennt, skákin og lögfræðin, eiga
Hraðskák góð æfing DeCode, eða Is-
lensk erfðagreining, er ungt fyrirtæki, rétt
30 mánaða gamalt, og Jóhann segir meðal-
aldur starfsmanna lágan, eða um 35 ár.
„Það ríkir hér mikill erill og góður
starfsandi, enda uppbygging á fullu. Hins-
vegar er þetta sem hér er að gerast eins
langt frá lögfræðinni og hugsast getur,
enda Islensk erfðagreining mjög óvenju-
legt fyrirtæki og oft skrítið fyrir mig að
reyna að setja mig inn í það sem er í gangi.
Hinsvegar eru flest lögfræðimálefni sem
upp koma fremur hefðbundin og því hægt
að vinna þau eins og hjá hveiju öðru fyrir-
tæki. Ég sé um flesta samningagerð hjá
fyrirtækinu og hef yfirumsjón með einka-
leyfum hjá því. Ég er á þeirri skoðun að
rökhugsunin sem skákin þjálfar komi sér
vel í þessu starfi sem öðrum og auðvitað
sakar ekki að vera með æfingu í hraðskák
þar sem hlutirnir gerast
eins hratt og hér.“
Þar með kveðj-
um við Jóhann
Hjartarson, lög-
fræðing íslenskrar
erfðagreiningar,
sem hefur meira en
nóg á sinni könnu,
en virðist eiga létt
með að höndla þá ábyrgð sem á hann er
lögð. H3
aff- Ha°n er giftur
mu ^ngvarsdóttur, j
nstufiilitrúa hjá VI
Þau eiga |vö böf
f,m,n og ellefu ár
46