Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 81
Qg er ekki heltekinn af bíladellu sjálfur en
það er erfitt annað en að fá væga dellu
þegar maður vinnur við þetta,“ segir
Björn Víglundsson, markaðsstjóri Toyota á ís-
landi.
„Núna ek ég Toyota Rav 4 en ég reyni að
prófa sem flesta af okkar bílum því hluti af því að
markaðssetja vöru er að þekkja hana sjálfur.“
Björn er markaðsstjóri Toyota og hefur verið
það síðastliðið ár en hann var auglýsingastjóri
áður og hefur starfað hjá Toyota rúm þrjú ár eða
frá því að hann útskrifaðist úr University of
Tampa í Florida með stjórnun og markaðsfræði
sem aðalfag.
Um þessar mundir er ekki erfitt að selja bíla,
að hans sögn, því eftirspurn eftir nýjum bílum
fyrstu mánuði ársins var suma mánuðina 80-90%
meiri en sömu mánuði í fyrra.
„Það er okkar stefna að eiga yfirleitt á lager
bíla sem svarar til sex vikna sölu. Við seldum alla
okkar bíla upp í vetur og vorum komnir með
mánaðar afgreiðslufrest. Ég man varla eftir öðru
eins.“
Björn segir að fylgst sé grannt með áhrifum
auglýsinga á markaðinn og samsvörun milli aug-
lýsingamagns og sölu. Það er gert með sérstök-
um, reglubundnum mælingum sem eru kallaðar
Hugskot og felast í því að kanna hvaða auglýsing-
um fólk hefur tekið eftir.
„Okkar auglýsingar koma undantekningarlít-
ið best út úr þessum mælingum. Við erum að sjá
að 15-37% svarenda nefna okkar auglýsingar og
viljum halda því þannig og helst að auka það.
Með þessum mælingum fýlgjumst við einnig
með auglýsingum keppinautanna og áhrifum
þeirra. Sá hópur sem við lítum þó á sem okkar
helsta keppinaut er sá sem segist ekki taka eftir
neinum auglýsingum.
Við getum einnig fullyrt að Toyota gætir hag-
kvæmni í auglýsingum því við erum í 2.-3. neðsta
LAND CRUISER
Björn Víglundsson er markaðsstjóri Toyota ogsegist vera með vott afbíladellu.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
Björn Víglundsson, Toyota
sætí umboðanna sé borinn saman auglýsinga-
kostnaður á hvern seldan bíl.“
Björn segir að í þeirri miklu bílasölu sem hef-
ur verið á íslandi undanfarin misseri hafi meðal-
aldur íslenska bílaflotans lækkað nokkuð en
hann hefur verið milli 9 og 10 ár en í nágranna-
löndum okkar er meðalaldur bílaflotans milli 6
og 7 ár. Nýlega birtust tölur um minni mengun
frá bílaumferð í Reykjavík sem staðfesta þá þró-
un sem er að verða hvað varðar útblástur bíla og
mengunarkröfur. Björn segir að auknar kröfur
séu í farvatninu og eftír aldamótín komi á mark-
aðinn bílar sem mengi margfalt minna
en nú er miðað við.
„Þessvegna má segja að það sé
nauðsynlegt fyrir þjóð, sem annt er um
umhverfi sitt og hreina náttúru, að aka
ekki um á úr sér gengnum bílum.“
Þessi endurnýjun hefur sín áhrif á
markað með notaða bíla og Björn telur
að Islendingar muni fara að afskrifa bíla
sína hraðar en þeir hafa gert.
„Samanburður sýnir að nýjir bílar
hérlendis eru 30-40% ódýrari en í sum-
um nágrannalöndum okkar en þriggja
ára gamlir bílar miklu dýrari."
Björn telur líklegt að umboðin eigi
um helming notaðra bíla á markaðnum
og hafi þvi einhverja stjórn á þvi að
verðið hrapi ekki niður úr öllu valdi.
Björn er kvæntur Helgu Arnadóttur,
deildarstjóra hjá Flugleiðum, og þau
eiga eina dóttur, nýfædda, sem tekur
allan frítíma foreldranna.
„Að því frátöldu er golf mitt helsta
áhugamál." 53
TEXTI: PÁLL ASGEIR flSGEIRSSON
81