Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 59
„Ég vil bíl til afnota, fremur en beina launahækkun. “ Þessi setning verður sífellt algengari hjá millistjórnendum þegar þeir ræða kjör sín við yf-
irmenn sína. Þeir vilja bíl sem fyrirtœkið á og rekur aðfullu, bæði í vinnu- ogfrítíma þeirra. Þannig losna þeirsjálfir við að kauþa bíl fyrir um
1,5 til 2 milljónir og binda fé sitt sem þeirgeta notað til annars. Á mótigreiða þeir hlunnindaskatta afnotkun bílsins ognema þeirum 13 þús-
und á mánuði af2ja milljóna króna bíl. Og þetta er ekki eins dýr kostur fyrir fyrirtœkin og margir kynnu að halda.
Þeir hafa sífellt minni áhuga á að fá ein-
hverja snuddu í formi bílapeninga og þurfa
að skrá hverja ferð í akstursdagbækur. Það
þykja tóm óþægindi.
StÖðUtákll Það er ýmislegt fleira sem býr
að baki kröfunni um bíl til afnota. Bíllinn er
visst stöðutákn millistjórnenda innan fyrir-
tækja. Öllum þykir eðlilegt að forstjóri hafi
dýran bíl til afnota, yfirleitt 4 til 5 milljóna
króna jeppa. Forstjórabílar eru tvímæla-
laust stöðutákn; ekki bara út á við heldur
ekkert síður innan fýrirtækja. Ætla verður
að millistjórnandi, sem einnig er kominn á
góðan fýrirtækjabíl, telji sig hafa færst
skörinni hærra innan fyrirtækisins - að
hann hafi færst nær forstjóranum og finni
fyrir vikið meira til sín. Gamla „snobb-el-
ementið" kemur einnig við sögu. Það kitlar
hégóma margra millisljórnenda að geta
ekið á fýrirtækjabíl í útileguna - og þá
helst sem veglegustum - og geta laumað
því að kunningjunum að fyrirtæki hans
eigi bílinn. í augum þeirra fær hann meiri
vigt. Þeir hugsa sem svo: Fyrst hann er
kominn á bíl frá fýrirtækinu, rétt eins og
forstjórinn, hlýtur hann að vera á beinu
brautinni!
Eígnalelgurnar
Eignaleigurnar Glitnir, Lýsing
og SP-fjármögnun bjóða upp á
alhliða þjónustu við fjármögnun
bíla, atvinnutækja og atvinnu-
húsnæðis. Bílaumboðin eru í
viðskiptum við fjármögnunar-
leigurnar. Þess má geta að
þegar fyrirtæki gera samning
við bílaumboð um bíl handa
millistjórnanda á rekstrarleigu
þá gera umboðin baksamninga
við eignaleigurnar.
TEXTI: Jón G. Hauksson
MYNDIR: Geir Ólafsson
Ygglubrún?
Bíll gæti í fyrstu virst mun dýrari kostur og jafnvel kallað fram ygglubrúnir á
forstjórum sé beðiö um hann. Hvaða fyrirtæki liggur enda með 2 milljónir á
lausu inni á heftinu til að kaupa bíl handa starfsmanni sínum og annast síð-
an reksturs bílsins að fullu? En ekki er allt sem sýnist. Bíll handa milli-
stjórnanda er ekki eins dýr kostur og ætla mætti í fljótu bragði.
59