Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 80

Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 80
FÓLK Guðrún Helga Brynleifsdóttir er lögfrœðingur og rekstrarhagfrœðingur sem er sér- hcefð í skattarétti. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. Guðrún segir að mjög aukin eftirspurn sé úti á markaðnum eftir lögfræðingum með þekkingu á skattarétti. Fáir standa Guðrúnu á sporði í þeim efn- um eftir rúmlega 10 ára starf hennar hjá ríkisskatt- stjóra. Hún er að setjast hinum megin við borðið. Eft- ir að hafa gætt hagsmuna ríkisins um árabil gætír hún nú réttar skattþegnanna. „Skattaréttur hefur verið stórlega vanmetínn hjá lögmönnum. Það er mjög mikilvægt í öllum rekstri að vera með skattamálin á hreinu. Bæði tíl þess að breyta rétt en ekki síður tíl þess að nýta til fulls þær heimildir og möguleika sem skattalöggjöfin býður upp á. Skattalöggjöfin er mjög flókin og tekur sífelld- um breytingum og þess vegna er nauðsynlegt að vera mjög vakandi í þessu fagi. Við höfum mýmörg dæmi um það undanfarin ár að fýrirtæki hafi farið ákaflega illa út úr skatteftirlití og fengið háa bakreikninga og sektír. Það er oft vegna rangrar túlkunar á lagaákvæð- um eða rangrar ráðgjafar." Guðrún bendir einnig á að aukin og vaxandi al- þjóðavæðing og sameiningar í íslensku viðskiptalífi kalli á aukna þekkingu lögmanna og auki í raun þrýst- ing á stjórnvöld um að laga íslensk skattalög að al- þjóðlegu umhverfi og gera tvísköttunarsamninga við fleiri lönd. Aukin samkeppni og hraði í viðskiptalífinu kallar á sérhæfðari þekkingu á öllum sviðum, ekki síst á sviði skattamála. „Svo má ekki gleyma þeim þættí sem lýtur að eft- irfití skattayfirvalda með skattskilum fyrirtækja en slík mál enda oft í ágreiningi fyrir yfirskattanefnd eða dómstólum landsins. Þar reynir í vaxandi mæli á að málsmeðferð sé vönduð og i höndum fagmanna, enda oft miklir hagsmunir í húfi.“ Guðrún er vel menntuð tíl að sýsla við skattalög því hún er lögfræðingur frá HI, 1981, en lærði síðan rekstrarhagfræði við Lundarháskóla í Svíþjóð og lauk prófi 1987. Hún starfaði hjá skattyfirvöldum í Svíþjóð um hríð en réðst tíl ríkisskattstjóra 1988. Guðrún Helga Brynleilsdóttir, Lögfræðistofu Reykjavíkur nmskiptin frá því að starfa fýrir hið opinbera og tíl þess að vinna í einkageiranum eru, að mínu viti, ekki svo mikil. Það er ekki mikill eðlismunur á þessum störfum. Þó er hann sá að í starfi minu hjá ríkisskattstjóra reyndi mjög mikið á mannaforráð og stjórnun en hér á ég samskiptí beint við við- skiptavinina,“ segir Guðrún Bryn- TEXTI: PflLL flSGEIR flSGEIRSSON leifsdóttír, lögfræðingur og rekstrar- hagfræðingur, en hún er nú meðeig- andi Lögfræðiskrifstofu Reykjavíkur eftir langan starfsferil hjá Ríkisskatt- stjóra og var Guðrún reyndar vararík- isskattstjóri síðustu árin. „Frá faglegu sjónarmiði er ég auð- vitað að vinna við það sama hér og áður; að fást við lögfræði, og mun ég sérhæfa mig í skattaréttí." mmmmmmmmmmmmmm Guðrún er gift Gunnlaugi A. Jónssyni guðfræði- doktor og þau eiga tvö börn, 21 árs dóttur og 16 ára son. Guðrún segist eyða frítíma sínum með ijölskyld- unni. „Við hjónin göngum oft í okkar fallega umhverfi á Seltjarnarnesinu og njótum þess líka mjög að ferð- ast og ekkert land finnst mér áhugaverðara en ísrael. Ef ég vil virkilega slaka á finnst mér best að njóta þess að horfa á góðar bíómyndir. Þá gleymir maður stund og stað og er mikil hvíld í því.“ S3 mmmmHm 80
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.