Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 9
unni, þ.á.m. stýring gjaldeyrisáhættu. Mikil
áhersla hefur verið lögð á það hjá Landsbank-
anum að gera fyrirtækjum kleift að stjórna
áhættu í rekstri sínum og mikil þekking hefur
byggst upp á afleiðum, framvirkum samning-
um, skiptasamningum og vilnunum en slík
viðskipti eru fyrirferðamikil í starfsemi við-
skiptastofu Landsbankans."
Viðshipti við lífeyrissjóði og fagfjárfesta
Viðskiptastofa sér einnig um samskipti
Landsbankans við lífeyrissjóði og aðra fag-
fjárfesta og sinnir allri þjónustu við þessa að-
ila á sviði verðbréfa- og bankaviðskipta. Auk
almennra verðbréfaviðskipta má nefna þætti
á borð vió sölu gjaldeyris, afleiðuviðskipti,
innheimtuþjónustu, fjármögnun einstakra
viðskipta og fleiri þætti sem gera þjónustu
við þennan viðskiptavinahóp heildstæða.
í viðskiptastofu er rannsókna- og grein-
ingarteymi sem vinnur í nánum tengslum við
aðra sérfræðinga hennar. Haldið er utan um
upplýsingar um erlenda og innlenda markaði
og beitt nýjustu upplýsingatækni við söfnun
og nýtingu þeirra til ákvarðanatöku. Upplýs-
ingar eru sendar til viðskiptavina okkar í
formi markaðsyfirlita og skýrslna, svo sem
samantekt um erlenda gjaldeyrismarkaði svo
og innlenda skuldabréfa- og hlutabréfamark-
aði.
Ráðgjöl varðandi skuldastýringu og
sérhæfð fjármálaráðgjöf
Nýlega hóf viðskiptastofa LÍ að veita ráð-
gjöf varðandi sérhæfða skuldastýringu fyrir
fyrirtæki. f stuttu máli er hér um er að ræða
áhættumat erlendra skulda og til hvaða að-
gerða unnt sé að grípa til þess að lágmarka
þessa áhættu svo og að lækka fjármagns-
kostnað. Mikið þróunarstarf er unnið á þessu
sviði, meðal annars f samvinnu við Háskóla
íslands.
„Sífellt er verið að aðlaga og samhæfa
nýjar fjármálaafurðir fyrir íslensk fyrirtæki,
svo sem skuldabréfa- og hlutabréfaafleiður
og loks má nefna nýja deild innan Landsbank-
ans, fjármálaráðgjöf, en Stefán H. Stefáns-
son er forstöðumaður hennar. Til fjármálaráð-
gjafarinnar er stofnað til að geta veitt við-
skiptavinum þjónustu á sviði verðmats fyrir-
tækja, samruna- og sameiningaráðgjafar,
verkefnafjármögnunar og fleiri flóknari við-
skipta.
Ráða má af viðbrögðum viðskiptavina að
Yfirmenn viðskiptastofu Landsbankans, f. v. Tryggvi Tryggvason, Gunnar Andersen, Davíð
Björnsson og Brynjólfur Helgason.
Starfsmenn fyrirtœkja- og sveitarfélagaþjónustu viðskiptastofunnar að störfum.
þessi breyting á þjónustunálgun við þá hefur
tekist vel. Umfang starfseminnar hefur vaxið
hröðum skrefum og Landsbankinn hefur
treyst stöðu sína sem stærsti bankinn í þjón-
ustu við atvinnulífið," segir Davíð Björnsson
að lokum.
r
Landsbanki Islands
Viðskiptastofa Landsbankans
Laugavegi 77 • 101 Reykjavík
Sími: 560 6000 • Fax: 560 3199
ltlllMMMIIIl.1
9