Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Page 36

Frjáls verslun - 01.05.1999, Page 36
Jón Björnsson, framkvœmdastjóri Hagkauþs, segir að þrátt fyrir gagnsemi auglýsinga séu verslanirnar sjálfar besta auglýsingin. „ Við fáum á annað hundrað þúsund manns til okkar á mánuði og kaþþkostum að viðskiþtavinir okkar fari ánœgðir út. Þannig aug- lýsum við okkur best. “ Hallur Helgason, einn eigenda Loftkastalans, bjó til auglýsinguna fyrir 10-11 þarsem leikararnirÁrni Tryggvason og Bessi Bjarnason koma við sögu sem flugvélasmiðir. Auglýsingin þykir frumleg. Hallur gerði einnig fyrri sjónvarþsauglýsingu 10-11: „Ég versla í 10-11 og er snöggur að því. “ Árna og Bessa á sviði Loftkastalans í Fjór- um hjörtum eftír Olaf Jóhann Olafsson. „Þetta eru miklir fagmenn og tökur tóku aðeins einn dag,“ upplýsir Hallur. Hann segir að leigja hafi þurft tækjabúnað frá út- löndum þar sem upptökubúnaður- inn sem til þurfti hafi ekki verið til á íslandi þegar auglýsingin var gerð, en fýrir áhugasama var hún tekin upp á 35 millimetra filmu en ekki myndband eins og oftast tíðkast. „Þessari auglýsingu er ekki ætlað að trekkja fólk inn í búðina um næstu helgi heldur erum við að byggja upp langtímaímynd verslunarinnar," segir Hallur að lokum. Bubbi og Hagkaup En stórmarkað- irnir halda áfram að auglýsa með hefö- bundnum hætti. Hagkaup hefúr lengi verið fýrirferðamikið á auglýsingamark- aði og auglýst jöfnum höndum í ljós- vakamiðlum og á prenti. Imyndaauglýs- ing, sem sungin var af Bubba Morthens, vakti talsverða athygli, ekki síst iyrir þá staðreynd að Bubbi söng. í henni var áhersla lögð á gott andrúmsloft, gæði var- anna og hagstætt verð. Mikið vatn hefúr runnið til sjávar síðan enda snarfækkaði Hagkaupsverslununum þegar Nýkaup varð tíl. Kynningarmál Hagkaups eru í föstum skorðum, heilsíða er birt í Morgun- blaðinu á föstudögum þar sem sérstök til- boð eru kynnt og einu sinni í mánuði er sérstöku Hagkaupsblaði dreift inn á heim- ilin þar sem bæði eru auglýstar vörur úr matvöru- og sérvörudeild. Gréta ÖSP Gréta Ösp Jóhannesdóttir hjá íslensku auglýsingastofunni segir að fyrir nokkru hafi talsverðum tíma verið eytt í að búa til fastan ramma á tilboðsaug- lýsingar Hagkaups og því gangi vinnsla hverrar og einnar hratt og örugglega fyrir sig. Hún segir að að markaðsstefna félagsins felist í því að bjóða meira úrval af vörum á lægra verði heldur en annars staðar þekkist. Hægt sé að gera öll innkaup í Hagkaup og það tryggi lægra verð. Staða Hagkaups er önnur en þeirra stórmarkaða sem hér er fjallað um því vöruúrvalið er annað og meira. „Stór hlutí af veltu Hagkaups er af sölu sérvöru og við leggjum mikla áherslu á hana,“ segir Jón. Þrátt fyrir gagnsemi auglýsinga í ijölmiðlum segir Jón að verslanirnar sjálfar séu besta auglýsingin. „Við fáum á annað hund- rað þúsund manns til okkar á mánuði og kappkostum að viðskiptavinirnir fari ánægðir út. Þannig auglýsum við okkur best.' jón Sæmundsson hjá ^f^^Ssmeð Bógómil Manna sem bjó aðrarleiðirí Font í aðalhlutver i.. þjómstuna sem vetti er sjónvarþt 0S*™g *agdiö er létt og sýnir að það er i verslununum- n u gaman að versla t Netto. lagt hafi verið upp með að gera útlit auglýsinganna þannig úr garði að þær væru auðþekkjanlegar, ekki þurfi að horfa eða lesa lengi til að finna út að auglýsandinn sé Hagkaup. Jón Björns- son, framkvæmdarstjóri Hagkaups, segir Kjöt og Nóatún Nóatún leggur áherslu á kjötborðið hjá sér og býður upp á ýmis tilboð á kjöti. Þau hafa, ásamt öðrum tilboðum, verið kynnt í helgarblöðum Morgunblaðsins. Jón Þorsteinn Jónsson, markaðsstjóri Nóatúns og sá sem sér um auglýs- ingamál þess, segir að hugmynda- vinnan fari að mestu fram innan fyr- irtækisins en auglýsingastofa sjái um tæknilegar útfærslur. Hann bendir á að mesta salan eigi sér stað um helgar og því eðlilegt að þá séu vörur boðnar á sérstökum kjörum. Jón Þorsteinn segir Nóa- tún auglýsa í blöðum, útvarpi og sjónvarpi en ekki vera mikið í útgáfu sér- blöðunga. „Útvarpið er mjög sterkur miðill þegar auglýsa þarf lækkað verð á einstök- um vörum með litlum fyrirvara. I blöðum er gott að auglýsa sérstök tilboð sem eiga sér stuttan líftíma og svo höfum við birt 36

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.