Frjáls verslun - 01.05.1999, Blaðsíða 45
VIÐTÖL
Engjateigi 5 • 105 Reykjavík • Sími 581 2141
1ýá,QýGafithildi
„Auðvitað er fólk hrætt við áhættuna og það má ekki
gleyma því að sjaldnast er hægt að fá hvorutveggja, enga
áhættu og mikinn hagnað.“
Margeir Pétursson
syni og Margeiri Péturssyni, að vera reffilegir í framkomu. Hvort
það er skákinni að þakka eða bara almennu lífsljöri skal ósagt látið,
en það er skemmtileg tilviljun samt. Jón er viðskiptafræðingur að
mennt, af fjármála- og endurskoðunarsviði, og hóf störf hjá OZ eft-
ir að hafa unnið á endurskoðunarskrifstofu í nokkur ár.
„Ég var við atvinnumennsku í skák í átta ár, tók m.a. þátt í alþjóð-
legum skákmótum, kenndi skák, bæði við Skákskóla Friðriks Ólafs-
sonar á sínum tíma og síðar Skákskóla Islands, og skrifaði skák-
pistla í DV og ýmis skáktímarit," segir Jón.
Nýtist vel Jón segir sérstöðu OZ mikla og mikið um að vera í fyr-
irtækinu.
„Hér er vel menntað fólk og duglegt og það sem hér er gert
minnir um margt á skákina," segir hann. „Kannski á ég auðveldara
með að skilja það sem hér er í gangi vegna bakgrunnsins í skákinni
og það mætti ætla að skákin þroskaði með manni rökhugsun, ein-
beitingu og sjálfstæð vinnubrögð, a.m.k. þar tíl annað kemur í ljós.
Þetta eru allt þættír sem nýtast mönnum vel, ekki hvað síst í við-
skipta- og ijármálaheiminum þar sem gjarnan þarf að sjá fyrir leiki
annarra og taka snöggar ákvarðanir."
Skákin er orðin mikil fræðigrein nú að sögn Jóns og þörf á viða-
mikilli þekkingu til að geta stundað hana. „Skákin er sambland lista,
vísinda og íþrótta og nýlegar rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt
fram á samband á milli góðrar námsgetu og skákiðkunar."
Mikíl vlnna Fjármálastjóri stórs fýrirtækis, sem vex hröðum
skrefum, hefur nóg að gera. Jón segir marga starfsmenn fyrirtækis-
ins leggja mikið á sig, enda áhuginn mikill á þeim verkefnum sem
verið sé að vinna að. „Þetta er líkt og í skákinni, menn vilja sökkva
sér niður í viðfangsefnin og gleyma þá stund og stað.“ B3
Lögfræðingurinn
Jóhann Hjartarson er lögfrœdingur
Islenskrar erföagreiningar
ann byrjaði að tefla sex ára gamall, fékk eins og svo marg-
ir aðrir áhuga á skákinni þegar þeir félagar Fischer og
Spassky tefldu hér á landi 1972. Skákbakterían hefur ekki
yfirgefið hann síðan og hann telur ekki líklegt að hún geri það úr
þessu. Jóhann Hjartarson er fyrrum stórmeistari í skák og atvinnu-
maður en vinnur nú hjá einu nýjasta stórfyrirtæki landsins, íslenskri
erfðagreiningu eða DeCode.
„Ég er fæddur 1963 í Reykjavík og hef búið hér alla tíð,“ segir Jó-
hann þar sem við sitjum inni á skrifstofu hans á Lynghálsinum. Ör-
yggisráðstafanir eru nokkrar í húsinu, eins og gefur að skilja, enda
verið að vinna með viðkvæma hlutí og alla gesti verður að skrá inn
og út. Jóhann sýnir okkur rannsóknarstofu og það er eins og að
45