Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Qupperneq 58

Frjáls verslun - 01.05.1999, Qupperneq 58
STJÓRNUN Cfi ifi 1 híH“ hE{J VI 1 Ull! Þessi setning er ordin algeng kjá millistjórnendum. Það færist mjög í vöxt að þeir fari fram á að fá bíl til afnota hjá fyrirtækjum fremur en beina launa- hækkun! En hvað kostar þetta fyrirtækin? Þetta er ekki eins dýr kostur og œtla mœtti í fljótu bragði! g vil bíl!“ Þessi setning er orðin al- geng hjá millistjórnendum þegar þeir ræða kjör sín við yfirmenn sína. Þeir kjósa í auknum mæli bíl til af- nota fremur en beinar launagreiðslur; bíl sem fyrirtækið á og rekur að fullu, bæði í vinnu- og frítíma þeirra. Þá kvað orðið mjög erfitt að fá millistjórnendur til að færa sig á milli íyrirtækja nema þeir fái bíl - og hvað þá hafi þeir haft bíl til umráða áður! En hvort er ódýrara fyrir fyrirtæki, að láta millistjórnanda fá bíl eða t.d. 50 þúsund króna launahækkun í formi pen- inga? Bíll gæti í fyrstu virst mun dýrari kostur og jafnvel kallað fram ygglubrún á forstjórum sé beðið um hann. Hvaða fyrir- tæki liggur enda með 2 milljónir á lausu inni á heftinu til að kaupa bíl handa starfs- manni sínum og annast síðan rekstur bíls- ins að fullu? En ekki er allt sem sýnist. Þegar öllu er á botninn hvolft er bíll handa millistjórnanda ekki eins dýr kostur og ætla mætti í fljótu bragði. Munurinn liggur ekki hvað síst í launatengdu gjöldunum; 50 þúsund króna launahækkun á mánuði þýðir f reynd 60 þúsund króna hækkun séu launatengdu gjöldin reiknuð með. Mörg fyrirtæki leysa bílamálið með svo- nefndri rekstrarleigu; þau leigja einfald- lega bíl til tveggja eða þriggja ára af bíla- umboðunum eða eignaleigunum. 2ja millj- óna króna bíll í rekstrarleigu kostar fyrir- tæki um 33 þúsund krónur á mánuði að viðbættum um 20 þúsund krónum á mán- uði að reka hann; alls um 53 þúsund krón- ur á mánuði! Það er minna en 60 þúsund króna launahækkun - ekki satt? Bíll til millistjórnanda er því eitthvað sem for- stjórar ættu jafnvel að nefna að fyrra bragði þegar kemur að hefðbundnum við- ræðum við millistjórnendur um kaup þeirra og kjör. Jafnframt ættu forstjórar og stjórnir fyrirtækja að sefja fyrirtækjum sínum ákveðna stefnu starfsmanna. bílamálun Sækjum og sendum Ýmsar ástæður liggja að baki þeirri beiðni millistjórnenda að fá bíl frá fyrirtækjum. Þeir losna sjálfir við að kaupa bíl fyrir um 2 milljónir og binda þannig fé sem þeir gætu notað til annars; sömuleiðis losna þeir við að reka bíl. Lífsstíll flestra ljölskyldna er orðinn þannig að þörf er fyrir tvo bíla á heimili - jafnvel þrjá ef margir unglingar, sem hafa bílpróf, eru á heimilinu. Langflestir kannast við svonefnda „sækjum og sendum“ þjón- ustu; en hún felst í því að foreldrar snattast með börn sín nánast hvert sem þau fara. Fyrir þrjátíu árum komu börn og ung- lingar sér sjálf á íþróttaæfingar; núna hafa þau Lukkuleg með lykil. Lífsstíll flestra fjöl- skyldna er núna þannig að það er þörf fyrir tvo bíla á heimili. Bíll frá fyr irtœkinu er líka stöðutákn fyrir stjórnendur, þeir hafa fœrst skör- inni hærra, nær forstjórum sínum — sem undantekning- arlítið eru á lúxusjepþum. einkabílstjóra - foreldrana - til að aka sér á æfingar og sækja sig líka. Hvað sem fólki kann að finnst um þennan lífsmáta þá er hann stíll dagsins i dag - og hann kallar ein- faldlega á fleiri en einn bíl á heimili. Þá má ekki gleyma því að báðir foreldrar vinna núna langoftast úti. Þegar einn bíll er í heimili verður oft mikið kvabb og argaþras þegar það hjónanna, sem fyrr er búið í vinnu, vill láta ná í sig og skutla sér heim. En yfirleitt er það þegar verst stendur á hjá hinum í vinnunni. Séu bæði á bíl verða þægindin meiri og „litlar heimsstyrjaldir" vegna bíla- mála verða úr sögunni. Hver kann- ast ekki lika við það að fá hringingu frá unglingnum á heimilinu um hvort ekki sé í lagi að hann mæti á vinnustaði foreldra sinna til að fá fjölskyldubílinn lánaðan? Allt þetta hefur leitt til þess að bíll frá fyrirtæk- inu er orð- inn að verðmiða í kjarabar- áttu milli- stjórnenda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.