Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1999, Side 67

Frjáls verslun - 01.05.1999, Side 67
MARKAÐSMÁL geisladiska, hlutabréf og slíka hluti en minna er um verslun með gosdrykki eða ferskar matvörur og vafamál er að slíkur varningur verði nokkru sinni seldur gegn- um netið. E-bay er mjög vel þekkt uppboðsfyrir- tæki í Ameríku, aðeins örfárra ára gamalt. Það var stofnað á Netinu og þar er stafrænt markaðstorg í gangi allan sólarhringin. All- ur heimurinn býður í hvaðeina sem þar er selt en E-bay er að mörgu leyti helðbundið uppboðsfyrirtæki í líkingu við Sotheby’s nema hvað það er hvergi til nema á Netinu. Þetta fyrirtæki veltir milljörðum dollara; hlutabréf í því eru í háu verði og upphafleg- ir stofnendur löngu orðnir steinríkir. Netið útrýmir öllum landamærum. Amazon.com selur 20% af bókum sínum til erlendra viðskiptavina en þeir eru allir jafn langt í burtu, hvort sem þeir eru í Súdan eða Grímsnesinu. Þetta landamæraleysi segja spámenn að muni einnig smátt og smátt gera allan heiminn að einu verð- svæði, sé á annað borð selt á Netinu. Verslun með hlutabréf gegnum Netið eykst hröðum skrefum í Bandaríkjunum og er talað um að verðabréfasalar í þeirri mynd sem þeir þekkjast nú séu tegund í út- rýmingarhættu. Flugleiðir i fremstu röð Á þessu eru auð- vitað takmörk enn um sinn því ólíklegt verður að telja að öll viðskipti geti farið fram á Netinu. Rannsókn sem Ernst & Young gerði meðal 850 neytenda í Amer- íku 1998 leiddi í ljós að 64% þeirra sem nota Netið rannsaka tilboð í ólíkar vörutegund- ir þar áður en farið er að versla í raunveru- leikanum. Framsýn fyrirtæki kappkosta því að bjóða vörur sínar bæði í netheimum og kjötheimum. Á Islandi færast viðskipti á Netinu í vöxt eins og annars staðar í heiminum. Flugleiðir eru meðal þeirra fyrirtækja sem hafa verið fljót að tileinka sér þessa viðskiptahætti. Margir þekkja Netklúbb Flugleiða sem sendir tölvupóst til 30 þús- und viðskiptavina í viku hverri með gylli- boðum um lág fargjöld sem venjulega eru háð tveimur skilyrðum. Að keypt sé gegn- um Netið og staðgreitt með engum fyrír- vara. Steinn Logi Björnsson, fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, sagði í samtali við Frjálsa verslun að Flugleiðir sæju gríðarlega möguleika í viðskiptum á Netinu og unnið væri hörðum höndum að því að gera þau enn aðgengilegri en þau eru í dag. Helga Margrét Ferdinandsdóttir hjá Máli og menningu segir undirtektir við bókabúð M&M á Netinu hafa verið nægilega góðar til þess að nú hafi verið opnuð ný og endurbœtt útgáfa af henni. mmi Þorsteinn Ólafsson, starfsmaður Landsbréfa, segir undirtektir viðskiþtavina hafa verið góðar og telur að Netið eigi eftir að breyta viðskiptaháttum með hlutabréf „Enn sem komið er fer hluti af viðskipt- unum fram í tölvupóstformi og á það við um allra lægstu tilboðsfargjöld og pakka- ferðir. 011 önnur sala fer fram beint í gegn- um fúllkomið bókunarkerfi Flugleiða þar sem ganga má frá pöntun á flugi, bílaleigu- bíl og hótelgistingu.” Steinn sagði að á fyrsta Ijórðungi þessa árs hefðu Flugleiðir selt 6% af öllum sínum farmiðum í heiminum gegnum Netið en á Bandaríkjamarkaði hefði þetta hlutfall farið upp í 8% af seldum miðum. Þetta er fjórfalt meira en selt var á fyrsta fjórðungi ársins 1998. „Eg er í ljósi þessarar reynslu tilbúinn til þess að trúa öllum þeim sem spá tíföld- un netviðskipta á næstu örfáu árum.“ Á ráðstefnu í Brussel nýlega fengu Flugleiðir viðurkenningu fyrir að vera það flugfélag sem hefur tekið forystu í þvi að nýta sér Netið í viðskiptum sínum og skutu þeir þar grónum og framsæknum flugfélögum eins og Lufthansa ref fyrir rass. 67

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.