Frjáls verslun - 01.04.2000, Qupperneq 12
□ etta hefur komið af sjálfu sér. Við höfum reynt að
byggja upp góðan starfsanda, haft að leiðarljósi
að mönnum líði vel á vinnustaðnum og leitast við
að virkja hæfileika hvers og eins. Allir starfsmenn vita um
gengi fyrirtækisins frá degi til dags og skrifstofan er opin
þannig að menn geta komið beint til okkar til að ræða mál-
in,“ segir Guðmundur Gylfi Guðmundsson, rekstrarstjóri
og efnafræðingur hjá Tandri hf.
Framleiðslu- og innflutningsfyrirtækið Tandur hf. var
valið fyrirtæki ársins 2000 samkvæmt viðhorfskönnun
meðal félagsmanna í VR. Könnunin mælir traust starfs-
manna tíl fyrirtækisins, stolt og starfsanda á vinnustað.
Tandur hf. er fjölskyldufyrirtæki á sviði hreinlætís fýrir
matvælaiðnaðinn. Starfsmenn eru 16 talsins.S!]
Frá vinstri: Sverrir Sigfússon, stjórn-
arformadur og framkvcemdastjóri
Heklu, Sigurður Orn Einarsson, fv.
skrijstojustjóri Seðlabanka Islands, og Sigfús Sigfús-
son, forstjóri Heklu.
FRÉTTIR
Tilkynnt var um fyrirtœki ársins að viðstöddu fjölmenni.
Magnús L. Sveinsson, formaður VR, afhendir Guðmundi Gylfa Guð-
mundssyni, rekstrarstjóra Tandurs, viðurkenninguna.
Myndir: Geir Olafsson
□ ekla bauð nýlega til sérstakrar forsýn-
ingar í húsakynnum sínum vegna komu
eins glæsilegasta bíls sem fluttur hefur
verið tíl landsins. Nýr Mitsubishi Pajero, bíll sem
hefur vakið heimsathygli fyrir nýstárlega og
glæsilega hönnun, einstaka aksturseiginleika og
ríkulegan búnað, var afhjúpaður við fjölmenni í
húsakynnum Heklu. [£j
Nýr Mitsubishi Pajero var afhjúpaður hjá Heklu að viðstöddu jjölmenni.
Myndir: Geir Olafsson.
Eggert K. Magnússon, eigandi Frón, og Benedikt
Geirsson, framkvœmdastjóri hjá Spron.
12