Frjáls verslun - 01.04.2000, Qupperneq 24
FORSÍÐUGREIN
Skynet Telematics.com er á
OTC:BB hlutabréfamarkaðn-
um í Bandaríkjunum - sem er
undirmarkaður NASDAQ.
Þegar inn á markaðinn er
komið á Netinu er hsegt að
finna fyrirtækið undir
Skyi.ob. Þá er hægt að slá
inn www.Skamp.co.uk á
Netinu til að finna frekari
upplýsingar um búnaðinn og
fyrirtækið.
málaheimi Lundúna. Hann rak um tíma
fjárfestingarfyrirtæki og kom að fjár-
mögnun allt að 80 fyrirtækja, þar á meðal
Hard Rock Café, á alþjóðavísu.
„Tom kom að fyrirtækinu nokkrum
mánuðum áður en ég íjárfesti fyrst í því.
Bara það eitt að hann kæmi að fyrirtækinu
fyrir rúmum tveimur árum sem 40% hlut-
hafi gaf þvi ákveðið vægi. Hann ákvað að
stýra fyrirtækinu sjálfur og trúir mjög á við-
skiptahugmynd þess. Hann heiúr þróað það
í að verða alhliða þjónustufyrirtæki fyrir öku-
menn sem byggist á upplýsinga- og íjar-
skiptatækninni. Hann hefúr lagt áherslu á að
geta boðið pakka, hafa Skami>teldð sem fjöl- " ■
hæfast, til að geta fengið sem mestar tekjur af
þjónustunni. Skynet Telematics.com er með viðskiptahugmynd-
ina og þjónustuna en hefur samið við Comroad í Þýskalandi um
framleiðslu á sjálfum Skamp-búnaðinum en hefur viðskiptasamn-
inga við fleiri eins og td. Casio.“
En hvemig atvikaðist það tíl að þú settíst í stjórn Skynet Telemat-
ics.com í síðastliðnum mánuði ?
„Tom Wilmot var í Reykjavík fyrir um ári. Hann hafði heyrt um
mig og fjárfestingar Islendinga í fyrirtækinu. Hann hringdi í mig
og bauð mér að hitta sig á Hótel Sögu til spjalls. Við ræddum þar
saman nokkuð lengi. Eftir þetta höfum við verið í ágætu sambandi.
Eg heimsótti hann og forráðamenn fyrirtækisins á bílasýningu í
London í október sL og aftur þegar ég var í London í lok janúar. Það
er mikið að gerast í fyrirtækinu og það hefur haldið áhuga mínum
á því. Eg hef öðruvísi bakgrunn en margir aðrir; læknir með mik-
inn áhuga á tækni sem og reynslu af gerð og sölu hugbúnaðar á
erlendum mörkuðum. Ég held að það hafi vakið athygli hans og ef-
laust hefúr það líka haft áhrif
að hann er íslenskur í
aðra ættina og þótt
ánægjulegt að sjá
fjárfestingar okk-
ar í því - og ef til
vill fúndist eðli-
legt að hópur-
inn ætti fúll-
trúa í stjórn-
inni. Það varð
að minnsta
kosti úr að
þeir buðu mér
að setjast í
stjórn fyrirtæk-
isins.“
Valþór á sjálfur töluverðan hlut í Skynet
Telematics.com en hópurinn í heild á yfir
10%. Auk einstaklinga eru nokkrir fagfjár-
festar á íslenska fjármálamarkaðnum hlut-
hafar. Þónokkrir hafa keypt bréf beint af
markaðnum í gegnum Netið eða verðbréfa-
stofúr. Alls er talið að um 300 íslendingar
eigi núna í fyrirtækinu en fjöldi hluthafa í
því er um 900. íslendingar eru því hátt í
þriðjungur allra hluthafa. íslenski stimpill-
inn er raunar enn sterkari þar sem Bretinn
Tom Wilmot er íslenskur í aðra ættina.
Fleiri fyrirtæki Fjárfestingahópurinn sem
Valþór tengist á orðið í fjölda erlendra fyr-
irtækja. Mörg eru í byrjun á hinum svonefnda
gráa markaði ytra en stefna á markað eða eru þegar skráð á NAS-
DAQ-markaðnum eða undirmörkuðum hans. „Hópurinn á í
International Strategy (www.ezyfind.com). Þetta fyrirtæki er
með nýstárlega netgátt líkt og Yahoo en það kemur frá Ástraliu
og er þegar komið í alþjóðlega dreifingu; vex hratt og dafnar. In-
finite Technology (ITCS) er annað er sérhæfir sig í tölvulausnum
fyrir grafíska vinnslu eins og fyrir tölvukvikmyndir (video), þrí-
víddarmyndir, sýndarveruleika og svo framvegis. Inn í þetta fyr-
irtæki eru komnir lykilmenn í nokkrum stórum og þekktum fyr-
irtækjum, eins og Texas Instruments. Fyrirtækið vinnur lausnir
og framleiðir fyrst og fremst fyrir aðra framleiðendur, þ.e.
„business to business". Þetta fyrirtæki er á Nasdaq. Þá á hluti af
hópnum í hafnfirska fyrirtækinu Brunnum sem framleiðir ís-
þykknivélar. Það er með góða tækni á alþjóðavísu sem ég hef
mikla trú á. Brunnar hafa verið í fjárhagslegum vandræðum og
staðið fremur illa en þar eru núna komnir nýir stjórnendur og ný
stjórn. Við ætlum að taka höndum saman og gera sem mest úr
þessu, rétta dæmið við. Þetta verður spennandi en um leið krefj-
andi verkefni og ekki er séð fyrir endan á öllum erfiðleikum enn-
þá. Að endingu má nefna spennandi íslenskt-enskt hugbúnaðar-
fyrirtæki, Memphis Ltd, sem er enn á gráa markaðnum en er
með góða hugbúnaðargerð og spennandi framtíðarhoríur."
Hvemig metur þú hinar miklu lækkanir sem orðið hafa á Nas-
daq markaðnum að undanförnu?
„Ég tel að þarna hafi verið um eðlilega leiðréttingu að ræða í
mörgum tilvikum. Mörg fyrirtæki eru ekki komin nægilega
áleiðis hvað varðar að vinna grunnvinnuna við að byggja sig upp
en engu að síður hafði verð þeirra rokið upp. Þegar upp er stað-
ið er það hagnaður fyrirtækja sem telur og til lengdar er ekki
bara hægt að selja nafúið dotcom eða annað sýndarverðmæti.
Ég hef hins vegar mikla trú á tækni- og upplýsingageiranum í
framtíðinni og tel að mörg fyrirtæki í þeim geira eigi eftir að
sanna sig og ná árangri, önnur heltast úr lestinni eins og gengur."
Með sveitablóð í æðum Eiginkona Valþórs er Anna Sigurbjörg
Gilsdóttir, frá Neskaupstað, hjúkrunarfræðingur. „Ég kynntist
henni í Templarahöllinni á menntaskólaárunum. Fór þangað til
að dansa og þar byrjaði dansbakterían hjá okkur. Dans hefur
alltaf verið sameiginlegt áhugamál okkar beggja. Við byrjuðum
að búa þegar ég var í fimmta bekk í MR Við eigum tvo syni og
„Það kannast margir við mig svona," sagði Valþór þegar þessi mynd var
tekin. Eins oggejur að skilja eru símtölin mörg og löng vegna fjármála og
fjárfestinga.