Frjáls verslun - 01.04.2000, Qupperneq 36
ÚTFLUTNINGUR
Hlutaféð í X18 ehf. nam 500 þús-
undum króna til að byrja með. I
fyrrahaust var hlutaféð aukið í 107
milljónir króna og nýlega notfærðu
Saga og Sportvörur sér heimild til
að kaupa hlutafé fyrir 50 milljón-
ir til viðbótar þannig að heild-
arhlutafé nemur 157 milljón-
um króna. Sportvörur eiga
40 prósenta hlut í fyrirtæk-
inu, Saga á 40 prósent og
Nýsköpunarsjóður á af-
ganginn, 20 prósent. I sam-
komulaginu við sjóðinn er
gert ráð fyrir að fara á verð-
bréfamarkað fyrir haustið 2001.
„A meðan er hugsanlegt að við förum á svokallaðan gráan
markað því að óneitanlega er mikið hringt í okkur og þrýst á
um að fá keypt bréf svo að við erum að skoða okkar mál. Ef-
laust verður eitthvað gert í því,“ segir hann.
árum um hvaða merki sé að ræða.
Það kostar mikla peninga."
Afhendum þeim efníð í Banda-
ríkjunum mun New York Transit
sjá um dreifmgu og notar fyrir-
tækið kynningarefni frá X18
því að fyrirtækið vill einbeita
sér að einu markaðssvæði í
einu með sömu eða svip-
uðum aðferðum. „Við af-
hendum þeim þetta efni.
Við stjórnum því með
þeim hvað gert er en þeir
sjá um markaðssetninguna,
bera allan kostnað af henni
svo að við þufum ekki að hafa neinar áhyggjur af því,“ segir
hann og játar því að fyrirtækið fari mun fyrr inn á bandarísk-
an markað en ætlunin hafí verið. „Bandaríkjamarkaður var
ekki í okkar áætlunum fyrr en eftir tíu ár. Þess vegna kem-
ur þessi samningur svolítið óvænt upp í hendurnar á okkur.“
Markmið X18 er að halda úti sterku vörumerki.
Markaðssetning erlendis Markaðssetningarfyrirtækið X18
ætlar sér stóra hluti í markaðssetningu og sölu á skóm og er
verið að undirbúa viðamikla markaðsherferð þar sem byrjað
verður í Danmörku. Sú herferð hefst á næsta ári. Gert er ráð
fyrir 60 milljónum króna í auglýsingar í kvikmyndahúsum,
strætisvögnum og helstu tímaritum Danmerkur. Sérstakir
standar merktir X18 Reykjavík verða settir upp í öllum versl-
unum. Svipaðri upphæð verður varið árið 2002 en þá er auð-
vitað gert ráð fyrir að salan hafi aukist á móti svo að hlutfall-
ið verður minna. Árið 2002 hefst markaðsherferð í Bretlandi
og mun hún kosta 200 milljónir króna. í Bretlandi verður
meiri áhersla á sjónvarpsstöðvarnar, til dæmis MTV.
„Við höfum selt skóna í verslanir og þeir seljast mjög vel en
við höfum ekki markaðssett þá í þeim skilningi sem við leggj-
um í orðið markaðssetning," segir Oskar spurður um hvort
ekki sé skrítið að vera þegar farinn að selja vel í Bretlandi og
eiga samt eftir að markaðssetja. „Við eigum eftir að setja
standa í allar verslanir, auglýsa í kvikmyndahúsum, fara í sjón-
varp og tískutímarit. Þetta allt eigum við eftir í Bretlandi. Ég
trúi bara á gríðarlega mikla markaðssetningu á takmörkuðu
svæði í einu þannig að ekki fari á milli mála á einu eða tveimur
- Nú hefur gengið á ýmsu í skóviðskiptum hérlendis. Finnst þér
menn hafa trú á íslenskum skóm, bæði hérlendis og erlendis?
,Já. Erlendis hugsar fólk: Af hverju ekki? Hér innanlands
hafa menn verið svolítið vantrúaðir á að þetta væri hægt en ég
held að yngra fólk hafi trú á því að við getum gert þetta, alveg
eins og við getum búið ýmislegt til í tölvum og komið á ffam-
færi erlendis. Ungt fólk horfir á markaðinn í dag sem eina
heild, ekki eins og áður var þegar maður horfði bara á Island
sem markað eða í mesta lagi Norðurlöndin. Þegar ég fór af
stað var ekki mikill skilningur svona löguðu, menn voru bara
bundnir við markaðinn hér heima. Nú er þetta breytt. Fólk
hefur meiri trú á að geta gert stóra hluti, samanber til dæmis
það sem hefur verið að gerast í tölvuheiminum eða hjá Is-
lenskri erfðagreiningu," svarar hann.
- Heldurðu að það sé hollt og gott fyrir markaðinn að hafa
þetta rekstrarlag, það er að hafa höfuðstöðvarnar hér en láta
framleiða fyrir sig úti í heimi?
,Já. Það er mjög eðlilegt og hagkvæmt og ég vona að það
fari vaxandi ffekar en hitt. Það er ekkert neikvætt við þetta
rekstrarform." HO
Hjá X18 er brautryðjandinn „Genetic" sóli sem minnir um margt á Grófir og sþortlegir skór eru í tísku en X18 framleiðir líka fiöldann
gadda. X18 er vonandi að slá í gegn með þessum sóla. allan afnettum skóm.
36