Frjáls verslun - 01.04.2000, Side 39
að. Þessi hugbúnaður er miðlægur hugbúnaður
sem stjórnar vöruflæði í verslunarkeðjum og hefur
mikið verið seldur til ijarlægra landa, til dæmis
Austurlanda ijær og Ástralíu. í þessu fyrirtæki
starfa sex menn. Þá keypti EJS í fyrrahaust öll
hlutabréf í hugbúnaðarfyrirtækinu Hug. Þetta fyr-
irtæki fæst við almenn viðskiptakerfi, svokallaðar
Axapta-lausnir, og hefur auk þess sérsmíðað sér-
tækar vöruhúsalausnir í sama umhverfi. Þar vinna
um 120 manns. í fyrra eignaðist EJS einnig helm-
inginn í Gæðamiðlun sem verið er að sameina GSP.
Velta EJS-samsteypunnar nam um 3,2 milljörð-
um króna í fyrra. Þar af velti móðurfyrirtækið 2,2
milljörðum, EJS International tæpum 400 milljón-
um og Hugur um 750 milljónum.
Sjálfsbjörgin njóti sín - Nú eruð þið með EJS
Internatíonal. Eruð þið að hugsa eitthvað meira út
fyrir landsteinana?
„Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að þau fyr-
irtæki sem við stofnum í framtíðinni verði stofnuð
annars staðar en á íslandi. Þetta er alþjóðlegur
markaður. Þessi tækni og sú þekking sem starfs-
menn fyrirtækisins hafa aflað sér er alþjóðleg og
við sjáum það auðvitað í þeim verkefnum sem við
höfum unnið að erlendis að við stöndum jafnfætis
erlendum fyrirtækjum. EJS International mun von-
andi halda áfram að braggast og stækka á eigin for-
sendum. Það er hluti af áætluninni að leyfa þessum
fyrirtækjum að bjarga sér án þess að þau þurfi að
taka tillit til hagsmuna móðurfyrirtækisins sem
kynni að hafa aðra hagsmuni en systurfyrirtækið.
Sjálfsbjargarviðleitnin verður að fá að njóta sín,“ Við munum ekki bœta við okkur nýjum verkefnum heldur stofna frekarfyrirtœki í
svarar hann. kringum þau verkefni sem við höfum áhuga á.
I stórum dráttum má segja að hluthafar í EJS
hafi lengst af verið 25, þar af fjórir sem voru stærst-
ir. Það voru þeir Olgeir Kristjónsson, Helgi Þór Guðmunds-
son stjórnarformaður, Bjarni B. Ásgeirsson og Örn Andrés-
son, sem komu inn í fyrirtækið snemma á níunda áratugnum,
og áttu þeir saman 90 prósent. Núna eru hluthafar um 650
talsins og eiga stærstu hluthafar enn meirihluta í fyrirtækinu
þó að sá hlutur hafi minnkað verulega frá því sem áður var.
EJS hefur lýst yfir að það stefni á hlutabéfamarkað en ekki er
fyllilega ljóst hvenær af því verður. Að mati sérfræðinga upp-
fyllir fyrirtækið öll skilyrði og tekur minnst þrjá mánuði frá
því ákvörðun er tekin að ljúka skráningu á verðbréfamarkað.
Olgeir segir að þetta verði að veruleika eigi síðar en á næsta
ári enda liggi fyrir stjórnarsamþykkt um það. „Meira get ég
ekki sagt því að ég veit ekki meira. Það liggur ekki fyrir önn-
ur ákvörðun. Við opnuðum fyrirtækið fyrir fleiri hluthöfum í
fyrra, jukum hlutaféð og keyptum Hug og það var náttúrlega
þáttur í því að fara á hlutabréfamarkað. Þetta var undirbún-
ingur fyrir það, við vorum að gera eininguna stærri," segir
hann.
HÖfum áhuga á Netinu Hlutafé í EJS hf. nam 230 milljónum
króna að nafnverði og við aukninguna í fyrra jókst það upp í
388 milljónir. Þessi aukning var meðal annars gerð til þess að
fjármagna kaupin á Hug en einnig til þess að geta hugsanlega
keypt fleiri fyrirtæki. „Forsenda þess að fyrirtæki gangi vel er
að það stækki. Það er augljóst mál að við viljum ekki bara
stofna fyrirtæki heldur hugsanlega líka kaupa fyrirtæki. Við
erum alltaf að reyna að marka okkur sérstöðu. Samkeppnin
gengur út á það að vera öðruvísi og finna nýtt erindi til að
eiga við viðskiptavinina. Á þessari stundu vitum við ekki
hvort okkur auðnast að finna ótroðnar brautir en við erum
vakandi fyrir ýmsum möguleikum. Upplýsingatæknin er okk-
ar leikvöllur. Við verðum þar. Þróunin er auðvitað að flytjast
Upplýsingatæknin er okkar leikvöllur
„Á þessari stundu vitum við ekki hvort okkur auðnast að finna ótroðnar brautir en
við erum vakandi fyrir ýmsum möguleikum. Upplýsingatæknin er okkar leikvöllur.
Við verðum þar. “
39