Frjáls verslun - 01.04.2000, Síða 73
Höfðaborg að utan. Glerið og álklœðningin er frá BYKO. Enn á eftir að ganga frá ýmsu utanhúss, s.s. lóð og bílastœðum, en Ijóst
er að húsið er eitt affallegri húsum borgarinnar og nýtur sín vel, bœðifrá Borgartúni og Sœbraut.
Hið umtalaða hús Ríkissáttasemjara og fleiri stofnana:
Höfðaborgin
Höfðaborg heitir það, nýja húsið
sem ríkissáttasemjari ásamt
sex öðrum stofnunum er að
flytja í við Borgartúnið. Húsið hefur
sterka heildarmynd, er glæsilegt á
að líta og vekur fremur upp tilfinn-
ingar um glæsihús stórfyrirtækis í
erlendri stórborg en hús fyrir ríkis-
stofnanir á íslandi. Byggingarfélag-
ið Eykt byggði húsið og Höfðaboeg ehf. á það, en ríkið hef-
ur það á leigu næstu 20 árin. Þetta þykir hagkvæmur kostur
en með þessu losnar ríkið við öll umsvif vegna hússins og
umhverfis. Bygging hússins hefur tekið ótrúlega stuttan
tíma, eða um 14 mánuði frá því framkvæmdir hófust. Það er
um 9.000 fm. að stærð og því fylgja óvenju mörg bílastæði
eða eilt stæði á hverja 25 fm eða svo sem hlýtur að teljast
kostur í landi þar sem nær allir fara á bíl í vinnuna.
fll og steinn að Utan Teiknistofan ehf., Ármúla 6, hannaði
húsið í samvinnu við byggingafyrirtækið Eykt, en mikil og
góð samvinna er á milli fyrirtækjanna og hefur Teiknistofan
teiknað flest hús Eyktar þótt þetta sé
hið stærsta. Hjá Eykt vinna um 90
manns og hefur fyrirtækið þannig
flesta þræði í eigin hendi og getur
stjórnað verkinu á hagkvæmasta
hátt hverju sinni.
Það fyrsta sem vekur athygli er
dökk steinklæðningin utan á hús-
inu. Náttúrusteinn, grár og sterkleg-
ur. Ásamt steininum er álklæðning á húsinu og þannig verð-
ur húsið nær viðhaldsfrítt að utanverðu. Gler er einnig áber-
andi, en þess var gætt við hönnun hússins að sem flestir
starfsmanna hefðu gott útsýni án þess að finna fyrir sólar-
geislunum. Því var valið sólarstopp gler í hæsta gæðaflokki,
gler sem ekki er litað heldur alveg tært.
Frábært útsýni Húsið er brotið upp í þrjár einingar. Suður-
norður hús, miðrými og austur-vestur hús. Inni við setur
glerhúsið í miðjunni sterkan svip á húsið. Þar eru glerlyftur
og tvær brýr á hverri hæð gera starfsfólki auðvelt fyrir að
fara á milli húsanna. Húsið er hannað á þann veg að auðvelt
Nýttglæsihús vekurathygli vib Borgar-
tún 21. Húsiö er klætt áli og steini.
Margir gluggar eru einkennandi fyrir
húsið og hleypa þeir mikilli birtu inn.
Eftir Vigdísi Stefánsdótlur Myndir: Geir Ólíifsson
73