Frjáls verslun - 01.04.2000, Page 81
Húsið er klœtt áli í tveimur gráum litum, dökkum og Ijósum. Gluggar eru margir og því bjart inni en þess gætt að hafa „sólstoþþ gler“ á
suðurhliðum. Engin gluggatjöld eru í húsinu og segir arkitektinn sþurningu um hvort þess þurfi. Að minnsta kosti verður látið reyna á það
hvort þess þarf. Verslunin er í vesturhlutanum og er sérinngangur í liana þótt einnig sé innangengt. í anddyri hússins er mjög fallegt
móttökuborð og öll aðstaða þar hin glœsilegasta, eins og raunar í húsinu öllu.
ehf., verkefnisstjóri hússins. „Á ganginum, sem er um það bil
60 fm, eru lyftur og tvö fundarherbergi, u.þ.b. 50 fm, og þar
er gler alveg niður í gólf beggja megin."
Hús A er klætt með ljósri álklæðningu, en hús C er með
dökkri sléttplötuálklæðningu sem sérpöntuð var erlendis frá.
Á fyrstu hæð tengibyggingar er aðalinngangur, mötuneyti og
stór matsalur með fullkomnu eldhúsi. I miðjum salnum er
felliveggur sem skiptir honum í tvennt ef nota þarf salinn í
minni einingum.
„Það eru um það bil 1.400 fm af gleri í gluggum hússins og
er um það bil helmingur þeirra timbur/álgluggar. í tengi-
byggingunni eru álgluggar og í framhliðinni er stærsti glugg-
inn um það bil 400 fm I allri suðurhliðinni er sólstoppgler sem
gerir að verkum að hægt er að vinna fyrir innan gluggana þótt
sólin skíni. Gluggarnir eru allir settir í eftir á og standa þeir
út úr húsinu og ná ekki nema 3 sm inn í fals sem gert er í
steypuna," segir Björgvin.
Það var grafið fyrir húsinu niður á fast, 4-5 metra niður fyr-
ir botninn, þannig að holan varð um 9 metrar að dýpt frá mal-
biki. Gert er ráð fyrir því að húsið þurfi að þola sjávarföll og
því er platan mjög styrkt og útveggir þykkari en gengur og
gerist en rúmlega 200 tonn af steypustyrktarstáli fóru í kjall-
arann.
Húsið er byggt á púða og steypt upp á hefðbundinn hátt en
Björgvin segir þá vinnu hafa tekið heldur lengri tíma en áætl-
að var, enda um stórt verkefni að ræða en miklu þurfti að
dæla burtu af vatni á meðan verið var að vinna í grunninum.
„Það hafa farið rúmlega 200 vinnudagar í húsið og af þeim
líklega um 140 eingöngu í að grafa og steypa upp,“ segir
hann. Lofthæð er mikil. Um 4 metrar á fyrstu
hæð og 3.60 á öðrum hæðum en þessi loft-
hæð er m.a. nauðsynleg til að koma fyrir
Benedikt Jóhannesson, stjómarformaður Nýherja, óskaði starfsmónnum
Nýherja til hamingju með þennan áfanga og velfarnaðar á nýjum stað
ogfœrði fyrirtœkinu brauð, salt og smáþening að gömlum sið.
81