Morgunblaðið - 26.01.2001, Page 2

Morgunblaðið - 26.01.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Molde vill fá Bjarna Þorsteinsson/B1 Ísland sektað á HM vegna auglýsinga/B4 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 8 SÍÐUR Sérblöð í dag  Á FÖSTUDÖGUM HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt tvo lögmenn til að greiða konu 1,5 millj- ónir króna í skaðabætur, en rétturinn telur athafnaleysi lögmannanna hafa leitt til þess að konan fékk ekki dæmdar bætur í kjölfar vinnuslyss. Konan veitti öðrum lögmannanna umboð árið 1991 til að gæta hags- muna sinna að því er varðaði bótarétt vegna meiðsla á hendi er hún hlaut við vinnu í frystihúsi á Reykjanesi. Lög- maðurinn aflaði örorkumats og út- reiknings örorkutjóns og krafði tryggingafélag og frystihúsið um bætur. Þeirri kröfu var synjað. Lög- maðurinn lét svo af rekstri lögmanns- stofu sinnar árið 1993 og tók dóttir hans við rekstrinum. Í febrúar 1994 fékk hún gjafsóknarleyfi fyrir kon- una, en höfðaði ekki mál og lýsti ekki heldur kröfu konunnar í þrotabú frystihússins, sem tekið var til gjald- þrotaskipta í ágúst 1994, fyrr en mán- uði frá lokum kröfulýsingarfrests. Hæstiréttur sagði að meta bæri störf lögmannanna beggja fyrir kon- una í heild. Með hliðsjón af þeirri ríku ábyrgð sem lögmenn bæru gagnvart skjólstæðingum sínum hefði aðgerð- arleysi fyrra lögmannsins ekki verið nægilega réttlætt í málinu og telja yrði að síðari lögmaðurinn hefði ekki brugðist nógu skjótt við. Líkur stæðu til þess að konunni hefðu verið dæmd- ar bætur að einhverju leyti, en þar sem lögmennirnir hefðu ekki fylgt kröfum hennar eftir teldist hún hafa orðið fyrir tjóni sökum athafnaleysis þeirra. Dæmdar bætur vegna athafnaleysis lögmanna HÁKON Már Örvarsson, sem á mið- vikudag hreppti bronsverðlaun í matreiðslukeppninni Bocuse d’Or í Lyon í Frakklandi, kemur heim í dag og hyggjast félagar hans í Klúbbi matreiðslumeistara og Kokkafélag- inu Freistingu taka á móti honum í Leifsstöð af því tilefni. Bocuse d’Or er óopinber heims- meistarakeppni matreiðslumeistara og ríkir mikil gleði í röðum íslenskra matreiðslumanna með þennan árangur. Hákon festi í gær plötu með nafni sínu við innganginn að veitingastað Pauls Bocuse í Lyon, sem er einn frægasti veitingastaður veraldar. Í samtali við Morgunblaðið segir Hákon, sem var yfirmatreiðslumeist- ari á Hótel Holti þar til síðasta sum- ar, að framtíðin sé með öllu óráðin en næstu dagana hyggist hann reyna að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Aðstoðarmaður Hákons í keppn- inni, Friðgeir Ingi Eiríksson, var val- inn næstbesti aðstoðarmaðurinn í keppninni. Reuters Hákon Már hampar bronsinu við verðlaunaafhendinguna. Plata með nafninu við veitinga- stað Bocuse  Framtíðin með öllu/58 FLUGUMFERÐARSTJÓRAR samþykktu verkfallsboðun í almennri atkvæðagreiðslu, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins, en óvíst er hve- nær boðað verður til verkfallsins. Almenn atkvæðagreiðsla hefur staðið yfir í Félagi flugumferðar- stjóra að undanförnu um verkfalls- boðun og voru atkvæði talin á mið- vikudag. Loftur Jóhannsson, formaður Félags flugumferðar- stjóra, sagði að ákveðið hefði verið að gera niðurstöðu atkvæðagreiðsl- unnar ekki opinbera að svo stöddu og yrði viðsemjendum gerð grein fyrir niðurstöðunni fyrstum manna þegar þar að kæmi. Í Félagi flugumferðarstjóra eru tæplega eitt hundrað manns og er 32 þeirra skylt að vinna í verkfalli og halda uppi nauðsynlegri öryggis- gæslu komi til verkfalls. Kjaradeilu flugumferðarstjóra var vísað til ríkissáttasemjara um miðj- an nóvember síðastliðinn. Næsti fundur í deilunni er boðaður á mið- vikudaginn í næstu viku. Flugum- ferðarstjór- ar boða verkfall LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Prok- aria lagði í gær inn fjórðu einka- leyfisumsókn sína til einkaleyfa- stofu í Bandaríkjunum. Umsóknin fjallar um ákveðna grunnþætti í aðferðafræði Prokaria sem snúa að því að vinna gen úr náttúr- unni. Jakob K. Kristjánsson, líf- tækniprófessor og forstjóri Prok- aria, segir ekki vera hægt að fara frekar út í inntak umsókn- arinnar þar sem einkaleyfisum- sóknir séu leynilegar í eitt til eitt og hálft ár á meðan verið er að meta nýnæmi og gildi uppfinn- inganna. Það eru opinberir aðilar sem fara yfir umsóknarferlið og samþykkja, ef allt gengur eftir, umsóknina. 100 einkaleyfi næstu 5 árin Að sögn Jakobs stefnir Prok- aria að því að sækja um 100 einkaleyfi á næstu fimm árum og segir hann ganga vel að vinna að því markmiði enda sé líftækniiðn- aðurinn í örri sókn. „Einkaleyfin eru auðvitað misjafnlega mik- ilvæg en við teljum að þetta hafi sérstaklega mikið gildi þar sem það fjallar um sjálfa grundvall- artæknina sem við byggjum fyr- irtækið á,“ sagði Jakob og kvaðst bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins og benti á að einkaleyfaverndin væri forsenda þess að hægt væri að hagnýta þekkinguna í líf- tækniiðnaðinum. Fjármálaráðherra með fyrstu blönduna Prokaria stundar erfðarann- sóknir á nýjum tegundum örvera með hagnýta eiginleika þar sem megináherslan er lögð á rann- sóknir hitakærra örvera og veira úr íslenskum hverasvæðum. Prokaria opnaði nýja 900 m² rannsóknaraðstöðu í gær en hjá fyrirtækinu starfa nú 24 starfs- menn. Geir H. Haarde fjármála- ráðherra opnaði rannsóknarstof- urnar formlega með fyrstu efnablönduninni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Prokaria sækir um fjórða einkaleyfið RAGNAR Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður segist allt eins eiga von á að hann muni höfða dómsmál til að fá að sjá minnisblað sem fór frá forsæt- isráðuneytinu til lögfræðinganefnd- ar sem samdi frumvarp til breytinga á almannatryggingalögum. Frum- varpið var samið í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli Öryrkjabanda- lagsins. Úrskurðarnefnd upplýs- ingamála hefur úrskurðað að Ragn- ar eigi ekki rétt á að fá að sjá þetta minnisblað. Ragnar sagði að fram kæmi í skip- unarbréfi nefndarinnar og í skýrsl- unni sem nefndin sendi frá sér að með skipunarbréfinu hefði fylgt minnisblað. Hann sagðist hafa óskað eftir að sjá þetta skjal en forsætis- ráðuneytið hefði hafnað því. „Ég hef ástæðu til að ætla að í þessu fylgi- skjali gætu verið leiðbeiningar eða fyrirmæli til nefndarinnar um hvað hún eigi að gera við dóm Hæstarétt- ar eða hvernig ætti að standa að túlkun hans.“ Ragnar benti á að í upphafi skýrslu lögfræðinganna kæmi m.a. fram að nefndin ætti að fjalla um hvort það ætti yfir höfuð að greiða nokkuð til öryrkja og í því sambandi væri vísað í minnisblaðið. Hann sagðist ekki vita hver hefði samið minnisblaðið en sagðist vera þeirrar skoðunar að hann ætti rétt á að sjá það á grundvelli upplýsingalaga. Minnisblaðið hefði að vísu verið lagt fram í ríkisstjórninni sem vinnugagn en það hefði síðan verið sent til lög- fræðinganefndarinnar. Ragnar sagðist reikna með að hann yrði að fara með málið fyrir dómstóla til að fá dóm um það hvort hann ætti rétt á að fá að sjá þetta skjal. Íhugar málsókn á grund- velli upplýsingalaga Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður SÆGRÆN þykk ljósrák sást á norðvesturhimni yfir Reykja- vík í ljósaskiptunum kl. 17:48 í gær. Sjónarvottur sagði rákina hafa verið líka stjörnuhrapi nema margfalt breiðari og hún hefði brunnið fljótt upp. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur sagði að trú- lega væri um loftstein að ræða en töluvert hefði sést af loft- steinum í janúarmánuði og t.d. hefðu tvo daga í röð sést þrír loftsteinar hvorn daginn, sem teldist einstakt. Loftsteinar brenna upp í gufuhvolfinu og ekki þarf nema um hnefastóran stein til að gefa frá sér mjög mikla birtu. Undur á himni FRESTUR til að sækja um stöðu dómara við Hæstarétt Íslands rann út á miðnætti í nótt. Samkvæmt upp- lýsingum frá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu verður tilkynnt síðar í dag hverjir sóttu um. Um er að ræða stöðu Hjartar Torfasonar sem ósk- aði eftir því í lok síðasta árs að láta af embætti. Hjörtur hefur verið hæsta- réttardómari frá miðju ári 1990 og var áður settur dómari til skamms tíma árið 1988. Nýr dómari mun taka við 1. mars næstkomandi samkvæmt skipun dómsmálaráðherra. Laus staða hæstaréttardómara Frestur runninn út

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.