Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 19
● KRÓNAN veiktist um 0,14% í
5,8 milljarða króna viðskiptum í
gær, þrátt fyrir eins milljarðs króna
inngrip Seðlabankans. Þetta er í
annað skiptið á jafnmörgum dög-
um sem Seðlabankinn grípur inn í
gjaldeyrismarkaðinn en bankinn
keypti krónur fyrir rúma 2 milljarða
í fyrradag.
Fram kemur í fréttum Búnaðar-
bankans í gær að vísitalan hafi
staðið í 122,34 stigum við lok
markaða í gær, eftir að hafa opn-
að í 122,37 stigum. Fyrri inngrip
Seðlabankans í gær hafi átt sér
stað í 122,6 stigum en þau seinni
í 122,37 stigum og verði því ávinn-
ingurinn af inngripum Seðlabank-
ans að teljast minni háttar.
Litlar breyt-
ingar þrátt-
fyrir inngrip
Gengi íslenku krónunnar
● EYÞÓR Arnalds, forstjóri Ís-
landssíma hf., hefur verið til-
nefndur til verðlauna hjá tele.com-
tímaritinu og ComNet Expo. Hann
er tilnefndur í flokki frumkvöðla
eða stjórnenda fyrirtækja sem
hafa verið byggð upp hratt með
góðum árangri. Alþjóðlega fjar-
skiptafyrirtækið Ericsson tilnefndi
Eyþór til verðlaunanna.
Ivan Seidenberg, stjórnarfor-
maður Bell Atlantic, fékk þessi
sömu verðlaun á síðasta ári.
Eyþór Arnalds
tilnefndur til
verðlauna
STUTTFRÉTTIR
KAUPÞING hf. og samstarfsaðilar
undirrituðu í gær kaupsamning
um kaup á meirihluta hlutafjár í
Frjálsa fjárfestingarbankanum hf.,
en viljayfirlýsing þar um var und-
irrituð 31. desember síðastliðinn.
Um er að ræða sölu á tæplega
941,4 milljónum króna að nafn-
verði, eða 77,24% af heildarhlutafé
bankans. Gengi hlutabréfanna í
þessum viðskiptum er 3,80. Kaup-
verðið er því tæpir 3,6 milljarðar
króna.
Hlutur Kaupþings hf. er stærst-
ur í kaupunum, eða 33,1% af heild-
arhlutafé bankans, og hlutur GIR
Capital Investment og Kaupthing
Bank Luxembourg S.A. fyrir hönd
viðskiptavina er 15,0% hvors fyrir
sig. Aðrir kaupendur eru með
lægri hlut. Af hálfu seljenda selur
Vátryggingafélag Íslands mest,
eða 33,63% og Traustfang hf.
21,08%. Hlutur annarra seljenda
er minni.
Kaupendur hlutafjárins áttu
ekki eignarhlut í bankanum fyrir
kaupin og seljendur eiga ekkert
hlutafé í félaginu eftir söluna.
Kaupsamningurinn var gerður
með fyrirvara um samþykki
stjórnar samningsaðila, sem aflétt
verður fyrir helgina.
„Verðið er gott ef samlegðar-
áhrif nást út úr rekstrinum,“ segir
Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoð-
arforstjóri Kaupþings hf. „Við telj-
um að við höfum látið seljendum
bréfanna í hlut hluta af þeim
möguleikum sem felast í samlegð
fyrirtækjanna.“
Bankinn eingöngu
í útlánastarfsemi
Hann segir að stefnt sé að því
að reka Frjálsa fjárfestingarbank-
ann áfram sem sjálfstæðan banka,
sem hafi það megin markmið að
stunda útlánastarfsemi, meðal
annars bílalán, fasteignalán og
framkvæmdalán. Bankinn sé fjár-
hagslega mjög sterkur, með mikið
eigið fé og hátt CAD-hlutfall. Það
hafi komið kaupendum skemmti-
lega á óvart við skoðun á bank-
anum, sem farið hefur fram und-
anfarnar vikur, að sjá þá miklu
þekkingu og þau vönduðu vinnu-
brögð sem viðhöfð hafi verið í
rekstri bankans.
Einhver fækkun starfsfólks
„Við stefnum að því að sameina
undir rekstri Kaupþings þá starf-
semi sem áður fór fram í Fjár-
vangi, þ.e. verðbréfamiðlun, sjóða-
stýringu og fjárvörslu. Það þýðir
að einhver fækkun starfsfólks mun
verða hjá bankanum, en ekki er
ljóst hve mikil sú fækkun mun
verða. Rætt verður við starfsfólkið
á næstu vikum og kannað hverjir
muni geta fengið starf innan
Kaupþings.“
Hreiðar segir að núverandi hús-
næði Frjálsa fjárfestingarbankans
sé of stórt fyrir þá starfsemi sem
eftir verður hjá bankanum. Þau
mál verði skoðuð síðar.
Kaupþing og samstarfsaðilar kaupa meirihluta í Frjálsa fjárfestingarbankanum
!
"
"
"
"
"
"
# $
% & ' # $ !()*
+
, - /& 0
#
-
1 -
2
"
"
"
"
"
"
"
Kaupverð tæpir 3,6
milljarðar króna