Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FREKAR rólegt er hjá smábáta-
sjómönnum á Akureyri þessa dag-
ana enda ekki fyrr en í marsmán-
uði sem hlutirnar fara að gerast
hjá þeim að nýju. Þeir nota þó
tímann til þess að dytta að bátum
sínum. Aðalgeir Guðmundsson
var einmitt að vinna við bát sinn
Munda EA er ljósmyndari Morg-
unblaðsins var á ferð í Sandgerð-
isbótinni. Aðalgeir sagðist dunda
sér á færum og hann stefnir að
því að setja á flot í mars. Þór-
arinn Þorbjarnarson heilsaði upp
á Aðalgeir við vinnu sína en sjálf-
ur átti Þórarinn eitt sinn trillu
ásamt öðrum en hún er orðin ónýt
og hann því hættur sjósókn.
Morgunblaðið/Kristján
Aðalgeir Guðmundsson dyttar að trillu sinni en hjá honum
stendur Þórarinn Þorbjarnarson.
Dyttað að trillunni
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Svalbarðskirkju kl. 11 á laug-
ardag, 27. janúar. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 21 á sunnudagskvöld.
Kirkjuskóli verður í Grenivíkur-
kirkju kl. 13.30 á laugardag, 27. jan-
úar.
Kirkjustarf
♦ ♦ ♦
SKÁKÞING Akureyrar hefst
laugardaginn 27. janúar nk. með
keppni í yngri flokkum, þ.e. ung-
linga-, drengja-, barna- og
stúlknaflokki. Keppni í A- og B-
flokki hefst daginn eftir, sunnu-
daginn 28. janúar. Teflt er í
Íþróttahöllinni.
Í yngri flokkunum er umhugs-
unartími 25 mín. á keppanda en
rétt til þátttöku eiga öll ungmenni
15 ára og yngri. Keppni á laug-
ardag hefst kl. 13.30 en mótinu
verður fram haldið laugardaginn
10. febrúar. Veitt verða vegleg
verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og
fær sigurvegarinn farandbikar til
varðveislu í eitt ár auk eignabik-
ars. Þátttökugjald er 600 krónur.
Í A- og B-flokki er keppendum
raðað eftir skákstigum. Teflt
verður þrisvar í viku fyrstu vik-
una en síðan tvær umferðir á
viku. Stefnt er að því að tefla alls
7 umferðir og ljúka mótinu 18.
febrúar. Umhugsunartími er 2
klst. á 40 leiki og svo 30 mín. til að
ljúka skák. Um síðustu helgi voru
nokkur skákmót hjá Skákfélagi
Akureyrar og bar þar hæst
öruggur sigur Ólafs Kristjánsson-
ar í 15 mínútna mótinu, þar sem
hann hlaut 6 vinninga af 7 mögu-
legum. Í Akureyrardeildinni sigr-
aði sveit Stefáns Bergssonar
örugglega en auk hans eru í sveit-
inni þeir Guðmundur Gíslason,
Ólafur Kristjánsson, Sigurður Ei-
ríksson, Haki Jóhannesson,
Haukur Jónsson og Ágúst Bragi
Björnsson.
Í sveitakeppni grunnskóla sigr-
aði A-sveit Lundarskóla glæsi-
lega í eldri flokki en sveit Brekku-
skóla sigraði í yngri flokki eftir
harða baráttu við A-sveit Lund-
arskóla. Sveitirnar mættust í síð-
ustu umferð og hafði sveit Lund-
arskóla tveggja vinninga forskot
en sveit Brekkuskóla gerði sér lít-
ið fyrir og vann innbyrðis viður-
eignina með 3,5 vinningum gegn
0,5 vinningum og hafði þar með
sigur í sveitakeppninni.
Skákþing Akur-
eyrar að hefjast
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
Bakpoki
aðeins 1.000 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
AÐ LESA í skóginn og tálga í tré, er
heiti á námskeiði sem Garðyrkju-
skóli ríkisins, Skógrækt ríkisins og
Skógræktarfélag Eyfirðinga efna til
helgina 2. til 4. febrúar næstkom-
andi.
Námskeiðið verður haldið í Gróðr-
arstöðinni í Kjarna. Það stendur frá
kl. 17 til 20 á föstudeginum, 10 til 17
á laugardeginum og frá kl. 10 til 15 á
sunnudeginum. Leiðbeinendur
verða Guðmundur Magnússon,
smíðakennari á Flúðum, og Ólafur
Oddsson, starfsmaður Skógræktar
ríkisins. Unnið verður með ferskan
við beint úr skógi, kenndar gamlar
handverksaðferðir þar sem exi og
hnífar eru notaðir, lesið í eiginleika
viðarins og fjölbreytt notagildi,
geymslu og þurrkun. Í vor verður
haldið framhaldsnámskeið en það
verður auglýst síðar.
Skráning á námskeiðið fer fram í
Kjarna alla virka daga frá kl. 8–15:30
eða í gegnum netfangið;
kjarni@est.is Síðasti skráningar-
dagur er miðvikudaginn 31. janúar.
Námskeið í Gróðrarstöðinni Kjarna
Að lesa í skóginn
og tálga í tré