Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 55
Sixties
spilar í kvöld frá kl. 24.00 og fram eftir nóttu
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Montpellier, Frakkland, 25. janúar 2001. Hann virtist hálf einmana, mað-
urinn sem var að vaska upp glös í veislutjaldinu við íþróttahöllina í Montpell-
ier. Ljósin úr veislu kvöldsins vörpuðu útlínum hans á tjaldvegginn og teikn-
uðu upp ævintýralega mynd sem beið þess að einhver festi hana á filmu.
Dagbók ljósmyndara
Morgunblaðið/Golli
Skuggaleikur að kvöldi
RÁÐSTEFNA um líkamshreysti,
eða „fitness“, var haldin í KR-heim-
ilinu dagana 20. og 21. janúar.
Hreystifræðum hefur vaxið ásmegin
undanfarin ár og að sögn Unnar
Pálmarsdóttur skipuleggjanda var
aðsókn vonum framar og greinilegt
að það er raunverulegur áhugi fyrir
líkamsrækt og þolfimi hjá land-
anum. Líkamsræktarstöðvar hvað-
anæva af landinu tóku þátt í ráð-
stefnunni og tveir mikilhæfir
erlendir gestir létu sjá sig, Ástralinn
Marcus Irwin, sem er einn virtasti
og vinsælasti þolfimikennari í heim-
inum í dag, og Ceri Hannah frá
Bretlandi, yfirmaður Fitness First-
líkamsræktarkeðjunnar og fyrrum
þolfimimeistari Breta.
Á sunnudeginum var haldinn sam-
eiginlegur líkamsræktartími þar
sem kennarar úr öllum helstu stöðv-
unum kenndu í sameiningu. Einnig
fóru fram margvíslegar kynningar
og haldnir voru fyrirlestrar um mál-
efni eins og einkaþjálfun, sjúkra-
þjálfun og næringarfræði.
Fitness-ráðstefna 2001
Morgunblaðið/Jim Smart
Ceri Hannah sýnir Frónverjum
hvernig á að taka á því.
Magnús Scheving lét sig ekki
vanta. Hér er hann ásamt þeim
Marcus Irwin, Ceri Hannah og
Unni Pálmarsdóttur sem heldur
á Kristóferi Scheving.
Heilbrigð
sál í hraust-
um líkama
ÞEIR ERU eflaust ekki fáir, söng-
fuglarnir sem syngja enn óupp-
götvaðir á göngum félagsmið-
stöðva landsins. Í kvöld gefst
áhugasömum tækifæri á að heyra
nokkra þeirra syngja því í Laugar-
dalshöllinni klukkan 19 hefst hin
árlega söngkeppni Samfés (Sam-
bands félagsmiðstöðva) en þar
keppa 43 keppendur í sönglist frá
jafnmörgum félagsmiðstöðvum
víðsvegar af landinu. Þetta eru níu
fleiri þátttakendur en í fyrra.
Flestir keppandanna eru sigurveg-
arar í þeim undankeppnum sem
haldnar voru í félagsmiðstöðvun-
um á síðustu vikum. Keppnin í ár
er haldin í samvinnu við FM 957,
Popptíví og Búnaðarbankann.
Dómnefndin er skipuð þekktum
hljóðnemavinum sem umboðs-
skrifstofan Prómó smalaði saman
en það eru þau Hreimur úr Landi &
sonum, Villi úr 200 þúsund naglbít-
um, Erpur úr XXX Rottweiler, Íris
úr Buttercup og Birgitta úr Írafári.
Sigurvegarinn frá því í fyrra,
Ragnheiður Gröndal frá Garða-
lundi, tekur lagið og The Mighty
Gareth sýnir listir sínar. Húsið
opnar kl. 18 og telst það ekki
ógáfulegt að mæta snemma þar
sem fullt hefur verið á keppnina
síðastliðin ár.
Söngkeppni Samfés í kvöld
Ragnheiður Gröndal, sigurveg-
ari keppnarinnar í fyrra tekur
lagið í kvöld.
43 þátt-
takendur