Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 53
DAGBÓK
Útsala!
10—50% afsláttur
Úlpur
Kápur
Jakkar
Pelskápur
líta út sem ekta
Opið laugardaga
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Mikið af fatnaði í
stórum númerum
Jakkar frá kr. 4.500
Stuttir jakkar frá kr. 5.900
Síðir jakkar frá kr. 6.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 990
Kjólar stuttir og síðir
Blússur
Alltaf eitthvað nýtt
Fataleiga Garðabæjar
sími 565 6680.
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14.
Seljum næstu daga
lítið notaða kjóla
Ármúla 20, sími 5811384
Opið
virka daga
kl. 10-18
Laugardaga
kl.11-14
Speglar í úrvali
Lími upp og plasta
myndir og kort.
Stærð allt
að 1,24 x 2,0 metrar
JAFNVEL á opnu borði er
ekki einfalt að sjá vinnings-
leiðina í fjórum hjörtum suð-
urs, en hún er til og góður
spilari í banastuði gæti fund-
ið hana í hita leiksins við
borðið.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ G83
♥ Á
♦ ÁDG83
♣ 8542
Vestur Austur
♠ ÁD965 ♠ K
♥ G543 ♥ 96
♦ 105 ♦ K97642
♣ G6 ♣ 10973
Suður
♠ 10742
♥ KD10872
♦ --
♣ ÁKD
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 hjarta
1 spaði Dobl * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Þannig gengu sagnir á
einu borði í lokaumferð
Reykjavíkurmótsins á
sunnudaginn. Vestur lá lengi
yfir útspilinu og valdi loks
laufgosann. Nú er hin blátt
áfram og kannski besta leið
að taka á hjartaás, henda
spaða niður í tígulás, trompa
tígul og vona svo að hjarta-
gosinn komin í hjónin. Það
myndi gefa tíu slagi.
En vestur á trompslag, svo
þessi spilamennska mis-
heppnast. Hyggjum nú að
öðrum möguleikum. Fyrst er
að velta fyrir sér útspili vest-
urs. Hann kom ekki út með
spaða, svo varla á hann ÁKD,
ÁK eða KD. Austur á líklega
stakt mannspil, sennilega
kónginn. Sú staðreynd gefur
spilinu nýja vídd og tíglinum
merkingu. Ennfremur ber að
hafa í huga að vestur þurfti
að hugsa lengi um útspilið,
svo varla er laufgosinn stak-
ur. Að þessu athuguðu er
ekki fjarri lagi að spila þann-
ig: Taka á hjartaás og fara
heim á lauf! Skilja sem sagt
tígulásinn eftir í blindum.
Spila svo KD í hjarta og
laufdrottningu. Það skiptir
ekki máli hvort vestur
trompar eða bíður einn hring
– ef hann trompar ekki, spil-
ar sagnhafi honum inn á
trompgosa næst.
Hvað á vestur þá að gera?
Ekki má hann leggja niður
spaðaás, svo mikið er víst. Og
ef hann spilar smáum spaða á
kóng austurs, getur austur
vissulega spilað lauftíu, en
suður hendir bara spaða í
slaginn og lætur austur spila
tígli upp í gaffalinn. Þriðji og
skásti kostur vesturs er því
að spila tígli. Þá lætur sagn-
hafi drottninguna og tromp-
ar kóng austurs. Spilar svo
smáum spaða og austur verð-
ur á sama hátt að gefa blind-
um tvo tígulslagi.
Fann einhver þess leið?
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STAÐAN kom upp á Skák-
þingi Reykjavíkur sem lýk-
ur 31. janúar næstkomandi.
Hvítu mönnunum stýrði
Valgarð Ingibergsson
(1.590) gegn Stefáni Arn-
alds (1.910). Þó að
hvítur hafi vænlega
stöðu og skipta-
muni yfir verður
hann að tefla að fí-
tónskrafti til að
innbyrða vinning-
inn. Síðustu leik-
irnir voru 30. ...e6-
e5 31. fxe5 Dxe5 og
með þessu hyggst
svartur leika næst
Bf8-d6. Þessi áætl-
un lítur vel út en
gengur hún upp?
32. Hxf8! Skemmti-
leg flétta sem
svörtum hefur yfirsést þar
sem eftir 32. ...Kxf8 33.
Dc5+ Kg7 34. Dxb5 varð
hvítur sælum manni yfir og
tókst að nýta það sigurs
nokkru síðar. 9. umferð
Skákþings Reykjavíkur fer
fram í kvöld, 26. janúar, kl.
19.30 í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur. Áhorf-
endur eru velkomnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hrókur alls fagnaðar
og möguleikarnir eru þín
megin meðan þú stenst
þá freistingu að ýkja alla
skapaða hluti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þess er beðið í ofvæni að þú
segir skoðun þína á ákveðnum
hlutum svo þú skalt taka til
máls og gæta þess að vera
nægilega skýrmæltur til þess
að allir viti hvað þú ert að fara.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt auðvelt með að fá aðra
á þitt band en þarft að gæta
þess að afvegaleiða engan
með háskalegu tali um menn
og málefni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það sem kann að virðast
hindrun nú getur í raun og
veru orðið þér til framdráttar
síðar ef þú gætir þess að sinna
öllum formsatriðum fyrst.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er ekki hægt að velta
hlutunum endalaust fyrir sér.
Að því kemur að þú verður að
taka ákvörðun og hefjast
handa því að öðrum kosti
kemur þú engu í verk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er óráðlegt að láta skapið
hlaupa með sig í gönur þótt
hlutirnir gangi ekki átaka-
laust upp. Stilltu þig og segðu
ekkert að vanhugsuðu máli.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki undan síga þótt
þér finnist að þér sótt úr öll-
um áttum. Öll él birtir upp um
síðir og þolinmæðin þrautir
vinnur allar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er svo sem ekki ástæða til
að óttast áhættuna en þó þarf
hún að vera innan skynsam-
legra marka til þess að for-
svaranlegt sé að taka hana.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Beittu helst rökum þegar þú
vilt fá aðra á þitt band. Það
hefnir sín alltaf að slá ryki í
augu fólks með ódýrum sjón-
hverfingum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er komið að því að þú upp-
skerir laun erfiðis þíns en það
er enginn tími til þess að velta
sér upp úr hlutunum því á
miklu ríður að halda tafar-
laust áfram.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki undir höfuð leggj-
ast að tjá þakklæti þitt þegar
það á við því ekkert er leið-
inlegra en vanþakklátt fólk
sem gengur á lagið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ágætt að sækja góð ráð
til sér eldri manna þótt það sé
engan veginn einhlítt að þér
henti að fara eftir þeim. En
þau sýna þér fleiri hliðar á
málum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fólk dáist að því hversu
skipulagður þú ert og þú skalt
ekkert vera feiminn við að
segja öðrum sem vilja vita frá
starfsaðferðum þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Erla
Erla, góða Erla,
ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð!
Æskan geymir elda
og ævintýraþrótt.
Tekur mig með töfrum
hin tunglskinsbjarta nótt.
Ertu sofnuð, Erla?
Þú andar létt og rótt.
- - -
Hart er mannsins hjarta
að hugsa mest um sig.
Kveldið er svo koldimmt,
ég kenndi í brjósti um mig.
Dýrlega þig dreymi,
og drottinn blessi þig
Stefán frá Hvítadal
50 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 26.
janúar er fimmtugur Birgir
Reynisson, húsasmíða-
meistari. Eiginkona hans,
Ragnhildur Bjarnadóttir
verður fimmtug 26. apríl nk.
Af því tilefni eru þau stödd
á Flórída.
Ljósmynd/Nína
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í 17. júní sl. í Dóm-
kirkjunni af sr. Pálma
Matthíassyni Lovísa Lúð-
viksdóttir og Magnús Lár-
usson.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessir duglegu piltar héldu nýlega tombólu til styrktar
Rauða Krossi Íslands. Þeir heita Ágúst Atli Atlason, Magn-
ús Ingvar Magnússon og Arnar Ingi Ragnarsson.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 26. jan-
úar, verður sextugur Sigur-
jón Reykdal, vélstjóri, Sjáv-
argötu 20, Reykjanesbæ.
Hlutavelta