Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 27 Gallerí Stöðlakot Sýningu Harðar Jörunds- sonar lýkur á sunnudag. Á sýn- ingunni eru vatnslitamyndir málaðar á sl. ári. Galleríið er opið daglega frá kl. 14-18. Gallerí Nema hvað Náttúrubörn, sýning Gunn- hildar Hauksdóttur og Páls Banine í Gallerí Nema hvað Skólavörðustíg 22c, lýkur nú á sunnudag. Galleríið er opið frá kl. 14-18 á laugardag og sunnudag. Sýningum lýkur ERIK Clasuen er Íslendingum víst góðu kunnur fyrir kvikmyndir sínar. Seinasta mynd sem ég sá eftir hann var De Frigjorte sem sýnd var í sjón- varpinu, og hafði ég bara ansi gaman af. Hún er að vissu leyti ekki ósvipuð Slip hestene løs. Í báðum tilvikum segir frá manni á miðjum aldri sem lendir í tilvistarkreppu og þarf að leggja út fyrir sig hvað líf hans hefur verið, hvað sé þýðingarmest fyrir hann og hverju hann vilji breyta. Hér er það hann Bent A. glugga- þvottamaður og fyrrverandi hnefa- leikakappi. Hann á þroskaheftan strák, fyrrverandi eiginkonu og gaml- an félaga Sigfried, sem er ekki allur þar sem hann er séður, og snýst líf Bents A. mest um þetta fólk. En þá kynnist hann mun yngri konu, móður sráklings sem brýtur spegilinn af nýja fína bílnum hans. Þetta er rómantísk gamanmynd út frá sjónarhorni sextugs manns, sem er skemmtileg nálgun. Nema kannski það að persónulega hafði engan áhuga á því að hann og Vibeke, unga ástin hans, myndu ná saman. Bent A. er bara ekkert sérlega heillandi, frek- ar aumkunarverður náungi, þótt hann geti verið sniðugur og geðþekk- ur á tíðum. Clausen er óhræddur við að gera grín að Bent A., að hann sé bæði eldri og minni en Vibeke, og ekki síður að karakternum hans. Hann er frekar lítill karl í sér, sem hefur sig upp yfir aðra minnimáttar. Hann gerir þroskaheftum syni sínum grein fyrir því að hann geti hvorki orðið gluggaþvottamaður né hnefa- leikakappi. Við sjáum nú til með það. Og lýgur til að gera sig meiri í augum annarra. Þar klikkar Clausen. Þessi mynd er býsna skondin á köflum og í henni er míkið af gríni sem ég vil kalla ósköp góðlátlegt. Og stundum létt hallærislegt. Mér finnst Clausen reyna að kom- ast yfir of mörg málefni í þessari mynd sinni. Hann hefði mátt einbeita sér algjörlega að Bent A. og reynt að gera hann meira heillandi. Og sleppa því að blanda vandamálum Sigfrieds vinar hans og dóttur hans inn í þessa mynd. Bæði er það frekar viðkvæmt mál sem er varla réttlátt að tæpa á si- sona í „forbifarten“. Þetta kemur málinu ekkert við, auk þess að koma með tvíbenta siðferðishlið á Bent A. Slip hestene løs er ágæt mynd og góðlátleg um raunsæjar persónur, en ekki alveg nógu góð yfir heildina. Eig- inlega svolítið barnaleg. Góðlátlegur lítill karl KVIKMYNDIR R e g n b o g i n n Leikstjórn og handrit: Erik Clau- sen. Aðalhlutverk: Erik Clausen, Marianne Frost, Bjarne Henriksen, Elith Nulle Nykjær og Ricky Vends. Sandrews 2000. SLIP HESTENE LØS  Hildur Loftsdótt ir ÓLAFUR Sveinn Gíslason heldur fyrirlestur um verk sín á Laugar- nesvegi 91, mánudaginn 29. janúar kl. 12.30, í stofu 21. Ennfremur fjallar hann um ýmis verkefni sem hann hefur unnið á undanförnum ár- um á stöðum víðsvegar um Evrópu. Verkin eru unnin í samvinnu við fólk sem býr á viðkomandi stöðum. Ólafur Sveinn stundaði myndlist- arnám í Hamborg þar sem hann býr nú og starfar sem myndlistarmaður. Nýr vettvangur er yfirskrift nám- skeiðs sem hefst 7. febrúar, í Skip- holti 1, stofu 308. Halldór Ásgeirs- son myndlistarmaður er kennari og viðfangsefnið er hvort hægt sé að skapa nýjan vettvang fyrir mynd- list. Könnuð verða ókunnug svæði og aðferðir og hinn „verndaði og gefni listheimur“ skoðaður. Þátttak- endur verða beðnir um að koma með hugmyndir og úrlausnir. Námskeiðið Leikstjórn, sem hefst 17. febrúar, er ætlað fólki sem hefur reynslu af leikhúsvinnu. Kennari er Rúnar Guðbrandsson leikstjóri. Kennt verður í Listaháskóla Ís- lands, leiklistardeild, Sölvhólsgötu 13. Áferðarmálun Áferðarmálun nefnist námskeið sem hefst 16. febrúar. Kennari er Victor G. Cilia myndlistarmaður. Kennt verður í LHI, Skipholti 1, stofu 112. Fjallað verður um áferð- armálun sem notuð er í leikmyndum í leikhúsi og kvikmyndum. Fyrirlestur og námskeið í LHÍ NANNA Hermansson, fyrrverandi borgarminjavörður, heldur fyrirlest- ur með litskyggnum í fundarsal Nor- ræna hússins á laugardag kl. 14. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina: „Sjást norræn einkenni í Stokk- hólmi?“ og mun Nanna segja frá nor- rænu samstarfi í gegnum tíðina og hvernig það birtist í götumynd Stokkhólmsborgar m.a. í goðastytt- um, höggmyndum og byggingum. Nefna má merki um herferð Dana 1657. Stokkhólmur var höfuðborg Finnlands og merki finnsku kirkj- unnar sjást frá fornu fari. Konungs- stytta minnir á sambandið við Noreg og íslensk einkenni koma fram í götuheitum og hverfanöfnum. Stytta Sigurðar Guðmundssonar, Sjáan, stendur í borginni á góðum stað. Nanna Hermansson er íslensk í móðurætt og tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri 1960. Að loknu námi í Svíþjóð og Noregi vann hún í Kaupmannahöfn og í Þórshöfn í Færeyjum. Nanna var borgarminjavörður í Reykjavík 1974-1984, en fór þá til Svíþjóðar og starfaði sem lénsminjavörður í Sörmland (Suðurmannalandi) uns hún tók við embætti borgarminja- varðar í Stokhólmi 1992 til ársins 2000. Nanna Hermansson er nýráðin sem verkefnisstjóri hjá menningar- deild Stokkhólmsborgar og hefur umsjón með norrænu menningar- samstarfi í borginni. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis. Fyrirlestur um norræn einkenni í Stokkhólmi HÖNNUNARSAFN Íslands stóð fyrir ljósahönnunarsýningunni Lys- fortællinger í Listasafni ASÍ, seint á sl. ári, í samvinnu við alþjóðlegan hóp hönnuða og nokkur íslensk fyr- irtæki. Í framhaldi af þessari sýn- ingu veitti GH heildverslun, Garða- torgi 7, sem sérhæfir sig í ljósa- búnaði, eina Íslendingnum á sýningunni, ljós- og leikmynda- hönnuðinum Aðalsteini Stef- ánssyni, styrk að upphæð 50.000 krónur til að þróa áfram ýmsar hugmyndir sínar sem tengjast um- hverfislýsingu. Aðalsteinn Stefánsson starfar í Kaupmannahöfn, en ásamt sam- starfsmönnum sínum í Lysfortæll- inger er hann einnig á ferð og flugi um meginland Evrópu. Gísli Holgeirsson, forstjóri GH heildverslunar, og Aðalsteinn Stefáns- son við eitt verka hins síðarnefnda, vegglampann Blender. Ljósaverslun styrkir ljósahönnuð ÆFINGAR eru hafnar í Þjóðleik- húsinu á leikritinu Vilji Emmu eft- ir breska leikskáldið Davið Hare í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafns- sonar og leikstjórn Vigdísar Jak- obsdóttur. Þetta er hennar fyrsta leikstjórnarverkefni við Þjóðleik- húsið en hún hefur leikstýrt áhugaleikhópum og aðstoðað leik- stjóra við ýmsar sýningar í Þjóð- leikhúsinu. Höfundurinn David Hare er eitt þekktasta leikskáld samtímans í hinum enskumælandi heimi, en hann er m.a. höfundur að Bláa her- berginu og Ofanljósi sem sýnd hafa verið hér nýlega. Viðfangsefni leikritsins er listin, ástin og lífið og fjallar það um vin- sæla leikkonu sem stendur á tíma- mótum í lífinu. Emma einkadóttir hennar verður ástfangin af ungum manni sem er fulltrúi fjöldamenn- ingar sjónvarps og kvikmynda. Árekstur tveggja heima virðist óhjákvæmilegur. Leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Elva Ósk Ólafsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Þóra Friðriks- dóttir, Arnar Jónsson og Bjarni Haukur Þórsson. Höfundur leikmyndar og bún- inga er Hlín Gunnarsdóttir, lýs- ingu hannar Ásmundur Karlsson og aðstoðarmaður leikstjóra er Guðný María Ragnarsdóttir. Frumsýning er fyrirhuguð í apr- íl á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikhópur Þjóðleikhússins sem stendur að sýningunni á Vilja Emmu. Vilji Emmu í Þjóðleikhúsinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.