Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 17
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
SKAUTAÍÞRÓTTIN nýtur hylli
meðal margra Akureyringa, eink-
um kannski og sér í lagi þeirra af
yngri kynslóðinni. Krakkarnir nýta
sér hina góðu aðstöðu í Skautahöll-
inni til að renna sér fram og til
baka eftir svellinu og ekki annað að
sjá en ungviðið á myndinni skemmti
sér hið besta. Börnin voru á nám-
skeiði þar sem farið var í undir-
stöðuatriði íþróttarinnar og hafa
eflaust ekki verið lengi að ná þeim.Morgunblaðið/Kristján
Skemmta
sér á
skautum
TÆPLEGA 300 milljónum króna
verður varið til framkvæmda gatna-
gerðar á vegum Akureyrarbæjar á
þessu ári samkvæmt framkvæmda-
áætlun sem samþykkt var á fundi
framkvæmdaráðs bæjarins fyrr í vik-
unni. Bæjarráð fjallaði um áætlunina
á fundi í gær og þar var samþykkt að
taka hana til endurskoðunar í mars-
mánuði næstkomandi.
Göngugatan endurbyggð
Guðmundur Guðlaugsson deildar-
stjóri framkvæmdadeildar sagði að
aldrei hefði jafnmiklu fé verið varið til
framkvæmda og nú í ár. „Þetta er það
hæsta sem við höfum séð. Það liggur
fyrir fjöldi verkefna og menn vilja sjá
hlutina ganga hraðar fyrir sig. En
þrátt fyrir að áætlunin sé há eru
vissulega eftir nokkur verkefni sem
brýnt væri að taka fyrir,“ sagði Guð-
mundur.
Ráðist verður í fjölmörg verkefni í
sumar að því er fram kemur í áætl-
uninni. Alls er áætlað að verja 76,5
milljónum króna til endurbyggingar
gatna en stærstu verkefnin á því sviði
eru endurgerð göngugötunnar í
Hafnarstræti sem hafist verður
handa við nú í vor. Byrjað verður á
göngugötunni og áformað að verja til
endurbyggingar hennar 50 milljónum
króna á árinu. Þá verður Lækjargata
endurbyggð og gengið frá svæði við
Landsbankann.
Óskir um verkefni á þessu sviði
námu 138,5 milljónum króna en meðal
verkefna sem var frestað voru Hafn-
arstræti við Samkomuhús, stæði við
Minjasafn, gata við Amtsbókasafnið
og Strandgata, auk þess sem endur-
gerð Ráðhústorgs bíður betri tíma.
Til nýbygginga gatna og holræsa
verður á árinu varið 73,5 milljónum
króna. Mest fer í Borgarhverfi við
Klettaborg eða 33 milljónir króna og
21 milljón í Giljahverfi IV, þá verða
tvær götur gerðar í Nesjahverfi og
aðkoma gerð að Naustahverfi.
Að venju munu malbikunarvélar
vera á ferðinni í sumar en samkvæmt
áætluninni á að malbika fyrir 32 millj-
ónir króna. Meðal annars verða
starfsmenn bæjarins á ferðinni í
Holta-, Mið- og Mosateig, þá liggur
fyrir að malbika við Skessugil og Vík-
urgil, Hafnargötu, Mýrarveg, Lang-
holt, Borgarbraut og Gleráreyrar.
Til gangstétta og -stíga fara 15,5
milljónir króna á árinu og eru þeir
víða um bæinn. Nýjar götur og end-
urbætur í hesthúsahverfi munu kosta
10 milljónir króna og 13 milljónum
króna verður varið til umferðarör-
yggismála, einkum til gerðar 30 kíló-
metra hverfa. Ýmis verkefni kosta 6
milljónir króna.
Rúmar 60 milljónir
í fráveituframkvæmdir
Loks má nefna að í ár verður 61
milljón króna varið til fráveitufram-
kvæmda, m.a. verður byggð dælustöð
við Silfurtanga en 30 milljónir króna
fara í það verkefni í ár. Önnur verk-
efni á þessu sviði eru tenging dælu-
stöðvar við lagnakerfi og yfirborðs-
lagnir sem og lokaframkvæmdir við
aðveitulagnir að dælustöðinni við Silf-
urtanga. Grjótvörn umhverfis lóð fyr-
ir hreinsistöð norðan Sandgerðisbót-
ar kostar 15 milljónir króna en við
hana verður unnið í sumar.
Aldrei jafnmikið
um framkvæmdir
Akureyrarbær samþykkir framkvæmdaáætlun gatnagerðar fyrir árið 2001
ÚTNEFNING á íþróttamanni
Íþróttafélagsins Þórs árið 2000 fer
fram á morgun, laugardag, kl. 15 í
Hamri, félagsheimili Þórs.
Alls voru 10 íþróttamenn tilnefndir,
þ.e. frá skíðadeild, handknattleiks-
deild, knattspyrnudeild, körfuknatt-
leiksdeild og taekwondo-deild. Eftir-
taldir íþróttamenn voru tilnefndir:
Áslaug Eva Björnsdóttir, Ásta Árna-
dóttir, Brynjar Hreinsson, Eggert
Gunnarsson, Hafsteinn Lúðvíksson,
Hlynur Eiríksson, Ingvar Steinars-
son, Óðinn Ásgeirsson, Þorvaldur
Sigurðsson og Þórdís Úlfarsdóttir.
Þórsarar og velunnarar eru boðnir
velkomnir.
Íþróttamaður
Þórs útnefndur
ÞRIÐJA ljóðakvöld ársins verð-
ur í Húsi skáldsins á Sigurhæð-
um í kvöld, föstudagskvöldið 26.
janúar, og hefst það kl. 20.30.
Húsið er opið frá kl. 20 til 22. Er-
lingur Sigurðarson forstöðu-
maður mun þar flytja ljóð af
ýmsu tagi, svo sem á hvern hátt
menn hafa tekist á við almættið í
kveðskap í gegnum tíðina.
Ljóðakvöld