Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 26
LISTIR 26 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ármúla 21, 533 2020 Handklæðaofnar Mikið úrval handklæðaofna á baðherbergið. Stærðir frá 60-181 cm. Áferð: Hvít eða krómlituð. Verð frá kr. 11.605. JÁ, HAMINGJAN er heitið á nýjuleikriti sem frumsýnt verður á Litlasviði Þjóðleikhússins í kvöld. Leik-ritið, sem er eftir Kristján Þórð Hrafnsson, fjallar á gamansaman hátt um alvarlegan árekstur tveggja bræðra. Óvænt- ur atburður verður til þess að þeir standa augliti til auglitis og þurfa að takast á um ýmsa grundvallarþætti þess að vera mann- eskja – sem er ekki létt verk fyrir þá, þar sem þeir hafa ólíkan tjáningarmáta, tala á ská hvor við annan, fara í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut, grípa á lofti orð hvor frá öðrum til þess að beina samtalinu inn á brautir sem þeir telja sig ráða við og svo framvegis, eins og verða vill í samskiptum náskyldra einstaklinga. Það má kannski segja að þeir séu að rembast við að vera heiðarlegir – á sinn óheiðarlega hátt. „Já,“ segir höfundurinn, Kristján Þórður Hrafnsson, „það má segja að verkið fjalli um baráttu einstaklingsins fyrir því að hafa stjórn á lífi sínu og tilfinningum – en kannski líka um það hvað mannleg samskipti geta verið flókin – og um sársaukann og gleðina í mannlegum samskiptum. Það má orða það þannig að sá eldri trúir því að hægt sé að takast á við lífið kerf- isbundið og rökrænt, en sá yngri treysti á innsæi og brjóstvit. Þetta er í rauninni leikrit um ólíkar leiðir fólks til að takast á við lífið.“ Langar til þess að hreyfa við fólki og kannski það hver eigi að stjórna lífi yngra bróðurins? „Já, þar erum við kannski komin að spurningunni um það hversu nálægt við er- um tilbúin til að hleypa öðrum einstakling- um að okkur.“ Þú beitir húmor og tilgerðarleysi til þess að fjalla um mjög alvarleg og flókin málefni og afhjúpa flatneskjulegt og eintóna gild- ismat samfélagsins – og ert þar kominn langt út fyrir þann ramma að hægt sé að segja að verkið fjalli aðeins um átök tveggja bræðra. „Já, það má kannski segja um verk- ið að það sé tilraun til þess að takast á við stórar og mikilvægar spurningar en á óvenjulegan og vonandi skemmtilegan hátt. Mig langar til þess að hreyfa við fólki og ég trúi því að hægt sé að snerta fólk og vekja það til umhugsunar án þess að ganga fram af því. Ég trúi því að hægt sé að hreyfa við fólki með húmor, jafnvel þótt verkið sé fullt af sársauka.“ Skilgreiningarárátta Í og með má segja að þú sért að deila á hinn svokallaða sjálfshjálpariðnað. „Margt í leikritinu er leikur að þeirri orð- ræðu og þeim klisjum sem fólk notar gjarn- an yfir tilfinningar sínar og líf. Þetta er leik- ur að tungumálinu. Í brennidepli er sú árátta mannsins að skilgreina tilfinningar sínar og líf sitt. Á vissan hátt eru þetta vangaveltur um of- urtrúna á tæknihyggju nútímans hvað varð- ar mannleg samskipti, ofurtrúna á nauðsyn þess að takast á við tilfinningar á kerfis- bundinn hátt. Þetta eru vangaveltur um þörf fólks í nútímaheimi fyrir andlegt líf. Og þetta eru ekki síst vangaveltur um þá til- hneigingu fólks til að skilgreina allan mann- legan breyskleika sem einhver vandamál.“ Og svo fjallar þetta um húmorinn, alvör- una, listnautnina, – og alla þá ófyrir- sjáanlegu þætti sem leynast djúpt í manns- sálinni, hvort sem það eru skoðanir eða tilfinningar. Kristján Þórður Hrafnsson er með þessu verki að fylgja eftir einþáttungi sínum, Leitum að ungri stúlku, sem hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni fyrir há- degisleikhús í Iðnó sem Leikfélag Íslands efndi til. Með hlutverk bræðranna fara þeir Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreinsson. Lýs- ingu hannar Ásmundur Karlsson, höfundur leikmyndar og búninga er Helga I. Stef- ánsdóttir og leikstjóri er Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld leikritið Já, hamingjan eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Súsanna Svavars- dóttir ræddi við höfundinn um dýpt- ina og flækjurnar í samskiptum tveggja einstaklinga og tilhneigingu mannsins til þess að einfalda og skil- greina mannlega þætti og reyna að troða þeim inn í kerfi. Morgunblaðið/Jim Smart Óvæntur atburður verður til þess að bræðurnir standa augliti til auglitis ... ... og þurfa að takast á um ýmsa grundvallarþætti þess að vera manneskja. Kristján Þórður Hrafnsson Sársaukinn og gleðin í mann- legum samskiptum MÁLEFNI Leikfélags Íslands og væntanlegra samstarfssamninga er borgarráð hefur samþykkt að gerðir verði við 2-3 sjálfstæð leikhús í Reykjavík með sérstakri fjárveitingu til þriggja ára hafa verið til umræðu á síðum Morgunblaðsins undanfarna daga. Fram hefur komið að stjórnendur Leikfélags Íslands telja sig þurfa 50 milljónir í opinberan styrk og er hug- mynd þeirra sú að að ríki og borg skipti þessum stuðningi á milli sín til helminga. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins nemur núverandi styrkur ríkis og borgar til allrar starfsemi sjálfstæðra leikhúsa á landsvísu um 31 milljón á þessu ári og með árlegri hækkun frá Reykjavík- urborg samkvæmt samþykkt Borg- arráðs verður heildartalan orðin 45 milljónir árið 2003. Þá er reyndar ekki gert ráð fyrir neinni hækkun á framlagi ríkisins frá því sem nú er. Í Reykjavík eru starfrækt þrjú sjálf- stæð leikhús sem halda úti samfelldri starfsemi á ársgrundvelli í sérstöku húsnæði. Auk þeirra eru starfandi ýmsir leikhópar í borginni sem ekki hafa í nein ákveðin hús að venda með sýningar sínar. Leikhúsin þrjú eru Leikfélag Íslands, sem stofnað var 1996, og rek- ur starfsemi sína í Iðnó samkvæmt sérstökum samningi við Reykja- víkurborg og einnig í eigin húsnæði í Loftkastalanum við Seljaveg. Kaffi- leikhúsið í Hlaðvarpanum við Vest- urgötu er annað og loks Mögu- leikhúsið, sem stofnað var 1990 og hefur undanfarin ár haft aðalbæki- stöð sína í eigin leik- húsi, Möguleikhúsinu við Hlemm, en stór hluti starfsemi leik- hússins byggist á leik- ferðum um land allt. 260 sýningar á ári Pétur Eggerz er einn af stjórnendum Möguleikhússins og hann sagði í samtali við Morgunblaðið að Möguleikhúsið hefði skapað sér ákveðna sérstöðu í íslensku leikhúslífi með því að sérhæfa sig í sýning- um fyrir börn og unglinga og ávallt lagt áherslu á íslenskt frumsamið efni. „Við höfum algjöra sérstöðu hvað þetta varðar. Frá upphafi höf- um við frumsýnt 19 ný íslensk barna- leikrit og erum nú að hefja æfingar á því tuttugasta. Árlegur fjöldi áhorf- enda leikhússins síðustu árin hefur verið um 18-20 þúsund. Sýningar- fjöldi hefur verið 260 þegar mest er á einu ári. Þá eru ekki tald- ar með sýningar annarra leikhópa sem sýnt hafa í leikhúsinu við Hlemm. Við keyptum húsnæðið hér við Hlemm fyrir nokkrum árum án nokk- urs utanaðkomandi stuðnings. Stuðningur opinberra aðila við leik- húsið hefur alltaf verið lítill, 2-4 milljónir á ári þegar best lætur og stundum ekkert. Við höf- um hins vegar lagt mikla áherslu á samstarf við skólana í landinu og starf- semi okkar byggist að verulegu leyti á leikferðum milli allra grunn- og leikskóla landsins en þó ekki síst í Reykjavík. Árangurinn af þessu starfi er mjög áþreifanlegur þar sem sýningar okk- ar eru oft einu leiksýningarnar sem börnin hafa haft aðgang að. Á það sérstaklega við um börn á lands- byggðinni. Núna erum við t.a.m. með fjórar sýningar í leikferðum utan Reykjavíkur auk sýninga í Möguleik- húsinu við Hlemm um helgar.“ Sníða sér stakk eftir vexti Pétur sagði ennfremur: „Fullyrð- ingar stjórnenda Leikfélags Íslands um að það hafi áunnið sér þann sess að njóta forgangs við styrkveitingar opinberra aðila eru sérkennilegar í ljósi þess að lengst af hafa þeir hælt sér af því að geta rekið leikhús án op- inberra styrkja. Nú hafa þeir komist að því að það er ekki hægt og þá telja þeir sjálfsagt að leikhús þeirra njóti forgangs til styrkveitinga og upp- hæðirnar sem þeir fara fram á eru hærri en veitt er til alls málaflokks- ins. Þá hafa stjórnendur Leikfélags Íslands haft uppi orð um væntanlegt hlutafjárútboð í fyrirtæki sínu. Þeir segjast ennfremur hafa gert rekstr- aráætlun til 5 ára þar sem reiknað er með að fyrirtækið skili hagnaði í lok tímabilsins. Það er fáheyrt að einka- fyrirtæki sem rekið er á þessum for- sendum skuli gera tilkall til opinbers stuðnings og maður hlýtur að spyrja á hverju rekstraráætlunin sé byggð og hvort hagnaðarvon væntanlegra fjárfesta sé fólgin í hlutdeild í þeim 50 milljónum af opinberu fé sem fyrir- tækið er að óska eftir. Kjarni málsins er þó sá að í Reykjavík eru starfandi fleiri sjálf- stæð leikhús en Leikfélag Íslands, leikhús sem hafa sniðið sér stakk eft- ir vexti, notið lítilla opinberra styrkja en talið eðlilegt að sækja um slíkan stuðningi eftir öðrum leiðum en í gegnum fjölmiðla,“ sagði Pétur Egg- erz. Pétur Eggerz Möguleikhúsið er eitt af sjálfstæðu leikhúsunum í Reykjavík „Leikhús sem hefur algjöra sérstöðu“ Taska aðeins 750 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.