Morgunblaðið - 26.01.2001, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 25
laudamus, sem er um sextánhundruð
ára gamall í núverandi mynd. Hann
á sitt lag í kaþólska kirkjusöngnum
en auk þess hafa þúsundir tónhöf-
unda spreytt sig á að tónsetja þetta í
gegnum aldirnar, venjulega til þess
að fagna eða minnast einhverra stór-
atburða. Þess vegna fannst mér text-
inn eiginlega tilvalinn í því samhengi
sem hér var.“
Jón segir verkið vera í anda lof-
söngs og dálítið hátíðlegt á köflum.
„Þetta er ekki nein framúrstefnu-
músík. Ég býst við að það megi kalla
þetta rómantískt verk, mestan part
með einhverju innslagi af kirkjulegu
barokki.“
Jón, sem kallaður hefur verið
fyrsti módernistinn í íslenskri tón-
NÝTT verk eftir Jón Þórarinsson
tónskáld verður frumflutt á tónleik-
um í Grafarvogskirkju í kvöld, kl.
20.30. Kirkjukórar Reykjavíkurpró-
fastsdæmis eystra halda sameigin-
lega tónleika ásamt kammersveit og
einsöngvurum. Að sögn Kjartans
Sigurjónssonar, orgelleikara og eins
aðstandenda tónleikanna, er efnt til
samvinnu af þessu tagi í því augna-
miði að gefa kórunum, sem allir eru
litlir, tækifæri til að takast á við
stærri verk. Tónleikar af þessu tagi
eru haldnir annað hvert ár og er þá
jafnan frumflutt eitt íslenskt verk.
Á efnisskránni verður m.a. kant-
ata eftir J.S. Bach fyrir kór, ein-
söngvara og hljómsveit, Magnificat
eftir Vivaldi og fjögur íslensk verk,
Ó, undur lífs eftir Jakob Hallgríms-
son við texta Þorsteins Valdimars-
sonar, Syng Guði dýrð, syng Drottni
þökk eftir Pál Ísólfsson við texta
Tómasar Guðmundssonar og Lof-
söngur eftir Sigfús Einarsson við
texta úr 90. Davíðssálmi.
Frumflutningur verks Jóns Þór-
arinssonar verður síðast á dag-
skránni en það er samið við lofsöng-
inn Te Deum laudamus (Þig Guð
lofum vér). Ólíkir stjórnendur og
söngstjórar stjórna verkunum. Tón-
leikarnir verða endurteknir laugar-
daginn 27. janúar kl. 18.
Rómantískt kórverk
Verk Jóns Þórarinssonar sem
flutt verður á tónleikunum er samið
að beiðni kirkjukóranna fyrir tón-
leikana. Jón segir hér vera um að
ræða eitt stærsta verk sem frumflutt
hefur verið eftir hann lengi. „Það var
leitað til mín á árinu 1999 um að
semja verkið,“ segir Jón. „Þetta er
fyrst og fremst skrifað sem kórverk.
Ég fékk sjálfdæmi um að velja mér
texta og valdi einn af elstu helgi-
söngvum kristninnar, Te Deum
listarsögu, hefur látið hafa það eftir
sér að hann hafi gerst íhaldssamari í
tónsmíðum með árunum, en hann er
nú 83 ára að aldri. „Jú, það á sjálf-
sagt við í þessu tilfelli. Ætli maður sé
ekki að taka til í sálarhirslunum,“
segir Jón og bætir við að hann sé
glaður og þakklátur fyrir að hafa
getað komið þessu frá sér, kominn á
þennan aldur, og vonar að menn hafi
ánægju af verkinu.
Kirkjukórar flytja nýtt verk eftir Jón Þórarinsson
„Ætli maður sé ekki að
taka til í sálarhirslunum“
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Þórarinsson tónskáld ásamt kirkjukórunum á æfingu
í Grafarvogskirkju þar sem hið nýja tónverk hans verður frumflutt.
MYNDBÖND mánaðarins heitir
mjög eftirtektarverð sýning fjórtán
listamanna, flestra ungra, í Gallerí
Reykjavík, Skólavörðustíg. Þau El-
ín Helena Evertsdóttir, Elínborg
Halldórsdóttir, Guðfinna Hjálmars-
dóttir, Gunnhildur Hauksdóttir,
Haraldur Karlsson, Hugleikur
Dagsson, Jóhann G. Bjargmunds-
son, Ólöf Björg Björnsdóttir, Ragn-
ar Kjartansson, Sirra Sigurðardótt-
ir, Jón Sæmundur Auðarson, Guðni
Gunnarsson, Pétur Már og Tinna
Guðmundsdóttir bjóða til marg-
breytilegrar myndbandaveislu með
tveim stórum tjöldum og þrem
skermum.
Þetta er opin sýning og stór-
skemmtileg því hvarvetna er að
finna eitthvað sem kallar á athygli
gestsins. Um leið og hann kemur
niður stigann er hann gripinn inn í
samverkandi skjávarp svo hann
tekur ósjálfrátt þátt í hreyfimynd-
inni á tjaldinu. Á öðru tjaldi rúllar
hvert verkið eftir annað og gefur
góða mynd af hugðarefnum lista-
mannanna.
Ef til vill er það tímanna tákn að
einungis eitt verkið er landslags-
verk. Hin fjalla um manninn, mann-
eskjuna eða sjálfsmyndina í einni
eða annarri mynd. Það er engu að
síður greinilegt að hver og einn leit-
ar sinna eigin leiða í tjáningu þó svo
að mest beri á verkum sem með
einhverjum hætti tengjast líkaman-
um.
Ef spurt er hvers vegna áherslur
skjálistarmanna eru jafn líkamlegar
og sjálfhverfar og raun ber vitni er
því til að svara að einmitt þannig
semur skjálistin sig að hefðinni, svo
sem málaralistinni. Um hvað hefur
myndlistin snúist síðustu aldirnar,
ef ekki líkamann, sálina, sjálfið og
samskipti mannanna?
Fyrirkomulagið í Gallerí Reykja-
vík er eftirtektarvert. Salurinn
hentar ágætlega fyrir svona upp-
ákomur. Hægt er að krækja sér í
bolla af kaffi og njóta svo mynd-
bandasýninganna í ró og næði, eða
spjalla við viðstadda. Myndbönd
mánaðarins sanna ótvírætt að mikill
sköpunarkraftur leynist í ungum
listamönnum, og hitt að þeir hræð-
ast ekki frjóa tilraunastarfsemi.
Vonandi verður þetta ekki í síðasta
sinn sem svona sýning er haldin í
Gallerí Reykjavík.
Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson
Hluti af myndbandarennslinu sem nú stendur yfir í Galleríi Reykjavík.
Myndbönd
mánaðarins
MYNDLIST
G a l l e r í R e y k j a v í k
Til 28. janúar. Opið virka daga frá
kl. 13 - 18; laugardaga frá kl. 11-17
og sunnudaga frá kl. 14-17.
MYNDBÖND & SKJÁLIST
14 SÝNENDUR
Halldór Björn Runólfsson
Útsala Útsala
Pipar & salt, Klapparstíg 44