Morgunblaðið - 26.01.2001, Side 40

Morgunblaðið - 26.01.2001, Side 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnar Val-geirsson fæddist 16. janúar 1913 á Kjalveg, Neshreppi á Snæfellsnesi. Hann lést á Kanarí- eyjum 9. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Valgeir Narfi Guðjónsson, f. 13. febrúar 1890, d. 1918, og Sigríður J. Bjarnadóttir, f. 16. nóv. 1882, d. 2.5. 1964. Systkini Gunnars eru: Elías Valgeirsson, f. 3.2. 1912, og Valentína Valgeirsdótt- ir, f. 29.6. 1914, d. 29.1. 1939. Hinn 3. júní 1938 kvæntist Gunnar Jónu Skaftadóttur, f. 17.3. 1915, d. 23.6. 1946. Börn þeirra eru: 1) Ólafur Gunnarsson, Helga Magnúsdóttir, f. 24.10. 1942, og eiga þau fjögur börn. Börn Olgu og Gunnars eru: 1) Jóna Guðrún Gunnarsdóttir, f. 5.4. 1950, hennar maður er Stefán Þormar Guðmundsson, f. 25.3. 1946, og eiga þau fimm börn. 2) Halldóra Birna Gunnarsdóttir, f. 17.5. 1952, hennar maður er Guð- mundur M. Björnsson, f. 15.2. 1953, og eiga þau þrjú börn. Ungur að árum var Gunnar settur í fóstur að Laugabóli við Ísafjarðardjúp og var þar til 16 ára aldurs. Veturinn 1931–1932 var hann í Héraðsskólanum að Laugarvatni, en fór eftir það að stunda sjóinn og fór síðan í Stýri- mannaskólann árið 1937–1938. Gunnar var stýrimaður og skip- stjóri á ýmsum bátum og eftir að hann kom í land vann hann við ýmis störf, meðal annars sem verkstjóri á Kirkjusandi. En síð- ustu starfsár sín vann hann hjá Olíufélaginu hf. Útför Gunnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. f. 14.10. 1938, kona hans er Guðríður Jónsdóttir, f. 27.11. 1937, og eiga þau þrjú börn en eitt af þeim er látið. 2) Gunnar Gunnarsson, f. 21.4. 1940, kona hans er Ester Gunn- arsdóttir, f. 24.12. 1942, og eiga þau fjögur börn. 3) Anna Gunnarsdóttir, f. 6.10. 1942, hennar maður er Gunnar Bergmann, f. 11.6. 1945 og eiga þau fjögur börn. Seinni kona Gunnars var Olga Bergmann Bjarnadóttir, f. 20.1. 1915, d. 12.9. 1983, þau giftust 3. júlí 1947. Barn hennar er Þórður Bergmann Þórðarson, f. 23.2. 1941 og kona hans er Tengdafaðir minn til 38 ára, Gunnar Valgeirsson, lést á ferðalagi með „kátu fólki“ á Kanarí 9. janúar sl. Jarðneskar leifar hans voru fluttar heim 16. janúar á afmæl- isdaginn hans. Hann hefði orðið 88 ára. Þegar ég lít yfir þessi 38 ár kem- ur margt upp í hugann. Mín fyrstu kynni af honum voru snögg og óvænt. Hann kom erinda inn á vinnustað minn og var þar á tali við yfirmann minn. Þegar ég leit þar inn kallaði hann: „Er þetta stelpan sem strákurinn minn er að skjóta sér í?“ Hann var þarna að skila af sér báti sem hann hafði sótt til Þýskalands fyrir kunningja sinn sem átti útgerð hérna í Ólafsvík. Gunnar stundaði sjóinn frá unga aldri, fyrir og eftir að hann lauk námi við Stýrimannaskólann, og farnaðist vel þótt hann kæmist oft í hann krappan. Hann var eftirsóttur sökum dugnaðar og hversu næmur hann var að meta aðstæður til sjós. Um hann sagði Guðmundur Gunnlaugs- son: „Og næst Guði er það honum að þakka, að við urðum til frásagnar af þessari ferð.“ Þarna segir Guð- mundur frá í Brimfaxa, blaði Landssambands smábátaeigenda, 1998. Gunnar og Guðmundur voru skip- verjar á Tjaldi SE 175 á leið frá Danmörku til Íslands í kolbrjáluðu veðri. Skipstjórinn, sem var óvanur svo smáum bátum, bað þá Gunnar, sem var stýrimaður, að taka við. Það gerði hann og í var komust þeir við St. Magnus Bay. Þær urðu margar slíkar, sjóferð- irnar hans. Oft þegar hann sagði okkur frá hrakningum sínum voru þær sögur lyginni líkastar. En hans lífsmottó var að standa sig og að bjarga sér sjálfur. Oft þótti mér hann harðneskju- legur en þegar ég fór að kynnast æviferli hans skildi ég að líf hans hafði oft snúist um það að „duga eða drepast“. Ungur missti hann föður sinn í sjóinn og stuttu seinna var honum komið í fóstur að Laugabóli við Ísa- fjarðardjúp hjá Gunnari og Höllu (skáldkonu). Þar var hann í átta ár og allan þann tíma sá hann aldrei móður sína eða systkini. Frá Laugabóli fór hann til náms í hér- aðsskólann á Laugarvatni. Fyrri konu hans, Jónu, tengdamóður minni, kynntist ég því miður ekki en hún var góð og falleg kona, blessuð sé minning hennar. Gunnar var við vinnu sína til sjós þegar sú harmafregn kom, að kona hans væri látin, hún hafði þá um árabil verið mjög veik. Þetta var þungur harmur fyrir hann og börn- in. En seinni konu hans, Olgu, kynntist ég vel og reyndist hún mér vel. Blessuð sé hennar minning einnig. Það var alltaf gaman þegar þau komu í heimsókn hingað vestur á Trabantinum sínum. Þá var spilað við okkur öll, mömmu, Steina og Jónas og farið í heimsókn til Ella, bróður Gunnars, og Helgu og spjall- að um heima og geima og sagðar sögur! Eitt sinn er við hjónin ásamt vinum okkar vorum á ferðalagi austur á Hellu og bíllinn bilaði hringdum við suður í Gunnar og báðum hann að kaupa varahlut fyrir okkur. Þá vildi ekki betur til en svo að blessaður karlinn var bíllaus en honum fannst það ekkert mál. „Ég hjóla bara og redda þessu,“ sagði hann og það gerði hann. Við erum oft búin að hlæja að þessu og dást að því hvað hann brást vel við þrátt fyrir aðstæður. Þetta var Gunnar Valgeirsson. Hjá Kirkjusandi hafði hann fjölda starfsfólks og stjórnaði þar með sömu festu og hann hafði gert til sjós. Margt af þessu fólki hefur sagt mér að það sé honum alltaf þakklátt fyrir uppeldið! Oft sagði hann við mig, með trega: „Ég hef eignast fimm börn og tvær eiginkonur. Og þegar börnin mín fæddust var ég úti á sjó og líka þegar ég missti konurnar.“ Eftir að börnin fluttust að heim- an bjó hann einn á Hrísateignum. Og þegar hann var hættur að vinna var hann duglegur að finna sér gleðistundir. Hann spilaði mikið, fór í sund á hverjum degi, hafði einnig gaman af að dansa og ferðast. Sér til fylgdar átti hann góða vinkonu, Ingibjörgu, og vil ég færa henni bestu þakkir fyrir góð kynni og það hversu góð hún reyndist Gunnari. Mig langar með þessum fáu orð- um að þakka tengdaföður mínum fyrir samfylgdina. Þessi ár hafa verið mér lærdómsrík og dýrmæt. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, – líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Fjölskyldu Gunnars og Ingi- björgu votta ég samúð mína og bið algóðan Guð að blessa minningu hans. Ester Gunnarsdóttir. Gunnar Valgeirsson tengdafaðir minn lést hinn 9. janúar sl. Sannarlega er hægt að segja að það hafi komið manni í opna skjöldu þrátt fyrir allt og allt og háan aldur. Aldurinn í sjálfu sér skiptir ekki svo miklu þegar heilsan er í góðu lagi eins og hún var hjá Gunnari. Gunnar fæddist 16. janúar 1913 á Snæfellsnesi og var tekinn í fóstur vestur í Ísafjarðardjúp fimm ára gamall. Þetta voru erfiðir tímar sem ég held að Gunnar hafi komist vel frá vegna dugnaðar hans og hörku sem einkendi hann allt hans líf. Kynni okkar hófust á árunum 1978–79 er ég kynnist dóttur hans Önnu sem síðar varð eiginkona mín. Gunnar vann við ýmis störf en var fyrst og fremst sjómaður í húð og hár enda heiðraður á sjómannadag- inn fyrir störf sín til sjós. Þær voru margar sjóferðirnar sem hann kom með okkur á Eyvindi KE síðustu 10 til 15 árin og hafði skipshöfnin alltaf jafn gaman af. Gunnar hafði marga góða kosti til að bera, nægjusemi skemmtilega og örugga framkomu, kvartaði aldrei og var sjálfum sér nógur allt þar til yfir lauk. Hann gat sagt manni sömu sögurnar aftur og aftur og hafði ég alltaf jafn gam- an af. Gunnar var einstakur maður í mínum augum og hefði ég viljað hafa margt af þeim ágætu kostum sem hann hafði til að bera. Hlut- irnir þvældust aldrei fyrir þessum heiðursmanni enda fannst mér stundum að hann væri 20–30 árum yngri en hann var. Mig langar einn- ig að geta þess að fyrir um 13 árum kynntist Gunnar skemmtilegri og yndislegri konu Ingibjörgu Júlíus- dóttur og var hún hans besti vinur og félagi. Við hjónin viljum þakka Ingibjörgu innilega fyrir hennar stóra og gefandi þátt í lífi hans því hún var honum mikils virði og veit ég að söknuður hennar er mikil eins og allra þeirra sem þótti vænt um Gunnar. Guð blessi minningu hans. Gunnar Bergmann. Dag einn fyrir nokkru fengum við frændsystkinin þá fregn að Gunnar afi væri dáinn. Þar sem við erum í skóla í Danmörku leið nokk- ur tími þar til fregnin barst til okk- ar. Okkur brá mjög mikið þegar við heyrðum að afi væri látinn, hann sem var svo hress þegar við fórum, eins og hann var vanur að vera. Alltaf þegar við komum að heim- sækja hann tók hann vel á móti okkur, gaf okkur brjóstsykur, harð- fisk og kók og sagði okkur fræknar sögur af sjálfum sér, sem maður fékk aldrei leið á, af því að hann sagði þær af svo mikilli innlifun og gleði. Við munum aldrei gleyma því hversu lífsglaður og duglegur mað- ur hann var. Hann fór alltaf í sund, dansaði reglulega og spilaði með vinkonu sinni, henni Ingibjörgu. Hann keyrði um allt og neitaði að láta stjana við sig. Við erum sorgmædd yfir að hann skuli vera farinn frá okkur og að geta ekki verið með fjölskyldunni núna. Við huggum okkur við það að hann hafi dáið í friði og án sárs- auka. Sendum okkar bestu kveðjur með þakklæti fyrir allt. Jóna og Þorsteinn. Elsku afi minn, það tók mig sárt þegar ég fékk fréttirnar um að þú værir farinn frá okkur. Mér fannst þetta svo fjarstæðukennt því að ég keyrði þig upp á flugvöll nokkrum dögum áður og þá varstu fullur af lífi og hlakkaðir til að njóta lífsins á Kanaríeyjum. Það er ómetanlegt að hafa fengið að njóta allra jólanna með þér. Þú þreyttist aldrei á að segja okkur sögur frá því þú varst á sjón- um og þá naustu þín líka best og varst í essinu þínu. Ég þreyttist heldur aldrei á að hlusta á þig og fannst allar þessar sögur mjög at- hyglisverðar og heillandi. Sögur frá þeim tíma sem ég vissi lítið um en gat skyggnst inní gegn- um sögurnar þínar. Ég bar mikla virðingu fyrir þér, þú varst búinn að sjá svo mikið og gera svo mikið um ævina, þú varst líka alltaf svo ánægður með allt þitt. Ég minnist þess líka hversu skemmtilegar stundirnar voru austur á Laugar- vatni og þegar komið var í heim- sókn á Hrísateiginn í kandís og mjólk. Það væri hver maður stoltur að hafa átt svona lífsglaðan og ynd- islegan afa. Minningin um hlýjan og yndisleg- an mann mun ávallt vera í hjarta mínu, svo lengi sem ég lifi. Jóhann Axel. Seinnipart þriðjudagsins 9. jan- úar barst mér sú sorgarfrétt að Gunnar afi minn væri dáinn. Ég ætlaði ekki að trúa því því að hann var alltaf svo hress og kátur þó svo að hann væri að verða 88 ára gam- all. Það var alltaf svo mikið að gera hjá honum og hann hélt sér vel í formi með því að fara í laugarnar á morgnana og út að dansa á kvöldin með eldri borgurum. Ég man er ég var lítil hvað það var gaman á Hrísateignum, ég bjó í kjallaranum með foreldrum mínum og litla bróður, en var stöðugur gestur uppi hjá afa og ömmu. Það var alltaf svo gott að fara upp til þeirra, þá sérstaklega til að borða harðfiskinn hans afa með miklu smjöri og drekka með honum mysu sem okkur fannst alveg ofboðslega holl og góð, en svo laumaði maður sér eftir á í skúffuna til hans í stof- unni þar sem var að finna kandísinn góða og „afa“-brjóstsykurinn. Eitt af því sem við afi höfum átt sameiginlegt í gegnum tíðina er það að okkur þykir svo gaman að spila og það voru svo sannarlega ófáar stundirnar sem fóru í það á Hrísa- teignum. Þar sátum við oft þrjú saman, ég, amma og hann og spil- uðum Manna sem mér fannst of- boðslega skemmtilegt og alltaf heyrðist í afa. „Já, hún er seig stelpan!“ er ég var með hæsta spil- ið. En ein af ógleymanlegustu stundunum var líklega það er afi hóaði allri fjölskyldunni saman í eina viku á hverju sumri, í Esso- bústaðina á Laugarvatni, það fannst okkur barnabörnunum svo spenn- andi og bústaðurinn var yfirleitt troðfullur og sofið í öllum hornum, enda voru þar hátt í 30 manns í allt. Afi gleymdi aldrei veiðistönginni sinni og fór með alla strákana í veiðitúr niður að á og þeir komu svo heim með vænan feng er allir gæddu sér á um kvöldið. Já, afi minn, þær eru ógleyman- legar stundirnar sem við höfum átt með þér, það var alltaf svo gaman að fá þig í heimsókn og síðasta heimsókn þín til okkar á Blöndu- bakkann var annan í jólum. Þú varst svo góður og hafðir voðalegar áhyggjur af fólkinu í kringum þig og ég man er þú varst alltaf að hringja heim til mömmu eftir að ég kom heim frá Svíþjóð til að athuga hvort ég væri nú ekki komin með vinnu og varst að benda á nokkrar atvinnuauglýsingar sem þú sást í blaðinu svo ég yrði nú ekki atvinnulaus. Takk fyrir það, elsku afi minn, að hugsa svona vel um mig, ég hugsa mikið til þín núna og sakna þín verulega mikið. En ég veit að þú ert í góðum höndum hjá Olgu ömmu sem hefur svo sannarlega tekið vel á móti þér eins og svo allir hinir er farnir eru yfir móðuna miklu. Hvíl þú í friði, elsku afi minn, og við sjáumst síðar. Þín Berglind. Jæja, þá hefurðu kvatt mig og okkur,elsku Gunnar afi, en þú hverfur aldrei úr hjarta mínu né sálu. Þær stundir sem við áttum sam- an var það besta sem hefur hent mig á þeim stutta tíma sem ég hef lifað, þá sérstaklega þeir tímar er við fórum saman á Skodanum þín- um til Ólafsvíkur. Ég beið eftir því að sjá bílinn renna í hlað og sjá þig stíga út með hattinn á höfðinu og kalla: „Ertu að koma, Nonni minn?!“ Þú hafðir alltaf nammi og brjóst- sykur í hanskahólfinu þegar við fór- um og ég var svo montinn þegar þú vissir hvað öll fjöll og bóndabæir hétu á leiðinni. Laugarvatn, Esso-bústaðirnir, hvernig er hægt að gleyma því þeg- ar þú komst með bláu veiðistöngina þína? Við fórum ávallt snemma morguns niður að á til að veiða. Þú hélst í hönd mína svo ég dytti ekki og meiddi mig og þú fórst á undan yfir stigann til að taka á móti mér. Við fórum alltaf á sama stað, á sama stein ár eftir ár, en þau verða víst ekki fleiri. Þú varst sá maður er ég sagði mest frá og öllum þínum sögum og hvort sem þú ýktir þær eða ekki, eru þær sannar í mínum huga. Ég skal ávallt vera seigur fyrir þig, elsku afi minn, og mína ynd- islegu dóttur Elvu Sóley Schulin. Við tvö verðum alltaf þín börn og hennar ömmu sem þú ert vonandi búinn að hitta aftur. Megir þú hvíla í friði, elsku Gunnar afi. Þinn einlægi dóttursonur, Jón Bjarni (Nonni). Þriðjudaginn 9. janúar síðastlið- inn frétti ég það að Gunnar afi minn hafi látist. Ég sakna hans mjög mikið því mér þótti og þykir mjög vænt um hann og hann mun aldrei hverfa úr huga mínum. Elsku afi minn, ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna hjá Olgu ömmu. Þín er sárt saknað og ég kveð þig hér með með nokkrum ljóðlínum: Ég er einn, ég er einn, – sál mín allslaus og hljóð. Langt frá upprunans æð Þjáist eirðarlaust blóð. Þjáist vængur þinn, vor? Kannski verð ég of seinn, Kannski dey ég í dag, Kannski dey ég hér einn. Ég vil heim – ég vil heim yfir hyldjúpan sæ, – heim í dálítinn dal, heim að dálitlum bæ. Hver vill bera mig blítt um hinn bláheiða geim? Ó, þú blíðasti blær! Vilt þú bera mig heim? Allt er ljóð – allt er ljóð Þar sem lynghríslan grær, þar sem víðirinn vex, þar sem vorperlan hlær. – Þar sem afi minn bjó, þar sem amma mín dó, undir heiðinni há, vil ég hvíla í ró... (Jóhannes úr Kötlum.) Hvíl í friði, elsku afi. Þín Birna. Hinn 9. janúar sl. barst okkur sú harmafregn að Gunnar afi væri fall- inn frá. Kapteinninn hafði stigið úr brúnni í hinsta sinn. Nú siglir hann lygnan sjó á fjarlægum miðum ef- laust af sömu eljusemi og áður fyrr. Afi var ósérhlífinn og hörkudugleg- ur skipstjóri til margra ára og sigldi um heimsins höf. Til eru frásagnir af hetjudáðum hans og áræði við sjómennsku og skipstjórn. Afi kom ávallt vel fyrir og yfir honum bjó mikil reisn. Hann var í raun kapt- einn á sínu skipi löngu eftir að hann hóf störf í landi og sterkur leiðtogi. Eftir að starfsævi hans lauk var afi vel heilsuhraustur og bar árin tign- arlega. Því kom það flestum á óvart að hann félli frá svo snögglega. Afi hefði orðið 88 ára hinn 16. janúar sl. en útlit hans og framkoma benti eindregið til að hann væri talsvert yngri. Afi var ávallt félagslyndur maður og hrókur alls fagnaðar. Það upplifðum við síðast á nýársdag árið 2000 þar sem hann fór á kostum með sögum og frásögnum af ýmsum toga frá liðinni tíð. Þá skemmti hann öllum viðstöddum með leiftr- andi frásagnargleði. Afi var tvígift- ur en missti báðar eiginkonur sínar er hann var staddur á hafi úti. Sjálf- GUNNAR VALGEIRSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.