Morgunblaðið - 09.03.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 09.03.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna Kvenfélags Garðabæjar Konur og íþróttir Á MORGUN verðurhaldin ráðstefnaum konur og íþróttir í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ og hefst hún klukkan 10 árdegis og lýkur 17.30. Ráðstefnan er haldin á vegum Kven- félags Garðabæjar, en for- maður þess félags er Sig- urlaug Garðarsdóttir Viborg, hún var spurð hvað ætti að fjalla þarna um í sambandi við konur og íþróttir? „Talað verður um al- hliða hreyfingu og gildi hreyfingar fyrir konur á öllum aldri. Einnig verður rætt um þátt kvenna í keppnisíþróttum, sem mörgum þykir harla rýr.“ – Eru konur enn á eftir körlum hvað snertir þátttöku í al- hliða hreyfingu? „Já, ég tel að svo sé. Það þarf að gefa konum meiri hvatningu til þess að þær skilji mikilvægi þess að hreyfa sig reglulega, bæði hvað varðar almennt heilsufar og vel- líðan, ekki síst þegar árin færast yfir.“ – Er mikið framboð á alls kyns líkamsrækt í Garðabæ? „Já, við erum með líkamsrækt- arstöðvar og mikið starf er stund- að á vegum íþróttafélagsins Stjörnunnar. Við erum með sund- laug, aðstaðan er því frábær en það skortir á að konur notfæri sér hana. En þessi ráðstefna er ekki haldin bara fyrir konur í Garða- bæ, hún er öllum opin, við hvetj- um allar konur sem tök hafa á að koma og fræðast um gildi hreyf- ingar.“ – Hverjir tala á ráðstefnunni? „Hansína B. Einarsdóttir mun halda erindi sem hún kallar: Kon- an sem leiðtogi. Logi Ólafsson íþróttaþjálfari talar um mismun- inn á þjálfun kvenna og karla. Lín- ey Halldórsdóttir sviðsstjóri af- rekssviðs ÍSÍ mun segja frá baráttu Ólympíuhreyfingarinnar fyrir bættum hlut kvenna í íþrótt- um. Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur talar um fram- tíðarsýn og næringu. Vanda Sig- urgeirsdóttir þjálfari talar um kosti og hindranir í þjálfun stúlkna. Hildur Thors heilsu- gæslulæknir talar um áhrif hreyf- ingar á heilsu kvenna. Í lokin verða pallborðsumræður sem Jó- hanna Vigdís Hjaltadóttir frétta- maður stýrir. Heiðursgestur ráð- stefnunnar verður Kristín Rós Hákonardóttir margfaldur ólymp- íuverðlaunahafi.“ – Verður eitthvað annað á dag- skrá en fyrirlestrar og umræður? „Já, fimleikadeild Stjörnunnar verður með „hléleikfimi“, léttur hádegisverður verður snæddur og reiddar fram léttar veitingar í lok- in.“ – Hvers vegna tókuð þið ykkur til og undirbjugguð þessa ráð- stefnu? „Við fengum styrk úr 19. júní sjóði um kvennahlaup og þá feng- um við hugmyndina um að virkja kvenfélagið á nýjum vettvangi og sóttum um styrk úr sjóðunum og fengum 150 þúsund krónur. Kvenfélagið átti af- mæli í gær, á alþjóðlegum bar- áttudegi kvenna, og varð 48 ára. Félagið var stofnað af hressum konum í Garðahreppi 1953 og ennþá eru lifandi nokkrar af stofnfélögum. Kvenfélag Garða- bæjar er mjög fjölmennt félag og virt í bæjarfélaginu, það er jafn- framt eitt stærsta kvenfélag á landinu. Í því er mikið af ungum konum og við kvenfélagskonur Garðabæjar höfum sannreynt að ungar konur hafa mikinn áhuga á starfi kvenfélaga.“ – Hvert er aðalstarf félagsins? „Markmið félagsins er að styrkja líknarstarfsemi, einkum í Garðabæ. Einnig lætur félagið sig varða menningarmál og allt sem styður bætt mannlíf í bænum.“ – Hefur það verið mikið starf að undirbúa þessa ráðstefnu um kon- ur og íþróttir? „Já, undirbúningurinn hefur verið geysilegur. Það var skipuð ráðstefnunefnd og í henni starfa Lovísa Einarsdóttir íþróttakenn- ari, Valgerður Jónsdóttir hjúkr- unarfræðingur og Barbara Wdowiak skrifstofumaður. Þessar konur hafa borið hita og þunga af undirbúningi ráðstefnunnar sem félagskonur hafa haft mikinn áhuga á og leggja sitt af mörkum við, svo sem við framreiðslu há- degisverðar og annarra veitinga. Sem og sjá félagskonur um skrán- ingu á ráðstefnuna og allt annað sem henni tilheyrir. “ – Hvað telur þú að mætti verða helst til hvatningar fyrir önnum kafnar nútímakonur svo þær gefi sér meiri tíma til að stunda íþrótt- ir? „Ég tel að fræðsla fyrst og fremst muni skila árangri á því sviði, fræðsla um gildi þess að hreyfa sig. Með reglubundinni hreyfingu er hægt að koma í veg fyrir marga sjúkdóma, má þar t.d. nefna bein- þynningu, offitu og tengda sjúkdóma.“ – Hvað er á döfinni í félagsstarfi Kvenfélags Garðabæjar? „Við komum svo sem víða við og erum með reglubundið starf, við hittumst mánaðarlega og þá er tekið á ýmsum málum. Við höfum undanfarin ár styrkt Hjálparstarf kirkjunnar, verið með reglubund- ið starf fyrir eldri borgara í bæn- um og höfum staðið fyrir ýmsum námskeiðum fyrir félagskonur, t.d. tölvunámskeiðum.“ Sigurlaug Garðarsdóttir  Sigurlaug Garðarsdóttir Viborg fæddist í Reykjavík 5. apríl 1949. Hún lauk stúdents- sprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, öldungadeild, og vann um skeið hjá Mjólkursam- sölunni en nú er hún starfsmaður hjá Danfoss hf. sem áður var Héðinn, en þar starfaði Sig- urlaug áður. Hún hefur tekið talsverðan þátt í félagsmálum, var í langan tíma í JC-hreyfing- unni og er formaður Kvenfélags Garðabæjar og á sæti í stjórn Kvenfélagasambands Íslands. Sigurlaug er gift Haraldi Erni Haraldssyni skipasmiði og eiga þau samtals þrjú börn. Hreyfing get- ur komið í veg fyrir marga sjúkdóma KRINGUM 80 milljónir króna hafa nú borist í landssöfnun Krabbameinsfélags Íslands en framlög hafa verið að berast áfram síðustu daga. Söfnunarátakið stóð síðastliðinn laugardag og söfnuð- ust þá 75,4 milljónir króna. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, tjáði Morgunblaðinu að fyrirtæki jafnt sem einstaklingar væru enn að leggja fram skerf en söfnunarsím- arnir, 750 5050 og 907 5050, eru enn opnir og út mánuðinn verður unnt að koma framlögum á fram- færi á Netinu og á reikninga nr. 502001 í bönkum og sparisjóðum. Guðrún segir lokatölur því ekki verða á hreinu fyrr en um næstu mánaðamót. Söfnunarféð hefur komið inn eft- ir ýmsum leiðum en einna stærst- ur hluti þess fékkst er sjálfboða- liðar úr hreyfingum Kiwanis- og Lionsmanna, ásamt félögum í krabbameinsfélögum, gengu í hús síðastliðinn laugardag. Komu alls inn 32,5 milljónir króna á þann hátt. Nefna má til gamans að af 22,1 milljón króna sem söfnuðust þannig í Reykjavík voru 2,4 millj- ónir í mynt. Um söfnunarsímana komu alls inn 34 milljónir króna frá einstak- lingum og fyrirtækjum, 1,5 millj- ónir komu gegnum Netið og fyr- irtæki og ýmsir aðilar hafa alls lagt um 12 milljónir króna inn á söfnunarreikninga. Eins og fyrr segir verður hægt að koma framlögum til skila út mánuðinn. Guðrún Agnarsdóttir segir að á næstu dögum og vikum verði ráðstöfun fjárins skipulögð en það verður notað til þess að efla starfsemi Krabbameinsfélagsins, m.a. þjónustu við krabbameins- sjúklinga, og efla forvarnir. Um 80 millj- ónir króna hafa safnast Enn berast framlög í landssöfnun Krabbameinsfélags Íslands HAFNARFJARÐARBÆR hefur auglýst eftir tilboðum í faglegt starf leikskóla og grunnskóla í Áslandi, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar. Í auglýsingunni, sem birtist á heil- síðu í Morgunblaðinu, kemur fram að með þessu móti sé einkaaðilum gert kleift að bjóða á heildstæðan hátt í allt faglegt starf í grunnskóla og leikskóla í Áslandi en tilgangur- inn sé fyrst og fremst að leita nýrra leiða til að þróa, efla og auðga skóla- starf í Hafnarfirði. Ætlunin er að semja til þriggja ára í fyrstu með möguleika á framlengingu til 5 ára í senn í allt að 23 ár alls. Auglýsingin tekur bæði til leikskólans og grunn- skólans í nýju hverfi og er unnt að bjóða í annan hvorn skólann eða báða. Í grunnskólanum er boðin út öll kennsla og stoðþjónusta tengd kenn- urum og nemendum í daglegu skóla- starfi auk skrifstofuhalds. Í leikskól- anum er boðinn út allur faglegur rekstur leikskólans. Við mat á tilboð- um ráða hlutföllin 60% fyrir faglega þætti og 40% fyrir fjárhagslega þætti, að því er fram kemur í auglýs- ingu Hafnarfjarðarbæjar. Tilboðum þarf að skila eigi síðar en 6. apríl nk. Auglýst eftir tilboð- um í einka- rekna skóla HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Landsbanka Íslands hf. af kröfum fyrirtækis er vildi rifta kaupum á víxlum, sem gefnir voru út af Kaup- félagi Þingeyinga, á þeirri forsendu að við sölu víxlanna hefði bank- anum ekki getað dulist hvert stefndi með fjárhag KÞ. Hæstirétt- ur taldi skilyrði riftunar ekki fyrir hendi, þar sem það teldist ekki galli á seldri kröfu að skuldari reyndist ekki fær um að greiða hana á gjald- daga. Fyrirtækið keypti um miðjan mars 1999 tvo víxla af Landsbank- anum, sem Kaupfélag Þingeyinga hafði gefið út, og var kaupverðið tæpar 10 milljónir króna. Gjalddagi víxlanna var 3. júní sama ár. Um miðjan maí var haldinn aðalfundur KÞ og varð alvarleg fjárhagsstaða félagsins þá lýðum ljós. Stjórn félagsins var veitt umboð til að óska eftir heimild til greiðslustöðvunar. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að lánardrottnum með samningskröfur var boðin greiðsla á 78% krafna sinna og fyrirtækið á því 7,8 millj- ónir inni hjá KÞ upp í kröfur sínar. Fyrirtækið lýsti yfir riftun á víx- ilkaupunum á þeim forsendum að ólíklegt væri að krafan fengist greidd. Söluverð víxlanna hefði ver- ið langt yfir raunvirði þeirra og Landsbankanum sem viðskipta- banka KÞ hefði ekki getað dulist hvert stefndi. Hæstiréttur sagði það ekki skilyrði til riftunar og bætti við að þar sem fyrirtækið reisti dómkröfur sínar eingöngu á að sér væri heimilt að rifta kaup- unum en ekki á að þau væru ógild eða að Landsbankanum bæri að greiða því skaðabætur bæri að sýkna bankann af kröfunum. Ekki galli þótt skuld- ari geti ekki borgað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.