Morgunblaðið - 09.03.2001, Síða 14
FRÉTTIR
14 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AÐGENGI ferðamanna að lítt
þekktri náttúruperlu austan við
Selvogsheiði, skammt norðan Þor-
lákshafnar, hefur verið stórbætt
með uppsetningu 8 metra langs
stiga ofan í hellinn Arnarker í
Leitahrauni. Hellirinn er tæplega
500 metra langur og er sæmilega
vítt til veggja víðast hvar, þótt
áhugasamir hellakönnuðir þurfi að
skríða í þrengslum á einstaka stað.
Það voru félagar í Hellarann-
sóknafélagi Íslands sem fengu
styrk frá Umhverfissjóði versl-
unarinnar til verkefnisins.
Stiginn var settur upp í nóv-
ember síðastliðnum og jafnframt
var gengið frá bílastæðum skammt
undan hellinum með styrk frá Ölf-
ushreppi. Stefnt er að því að setja
upp veðurþolið upplýsingaskilti um
jarðfræði hellisins, ferðafólki til
fróðleiks, að loknum mælingum og
rannsóknum á hellinum.
„Svolítið varhugaverður hellir“
Geysifallegar ísmyndanir blasa
við er inn í hellinn er komið, sem
geta um leið verið varasamar reki
menn höfuðið í grýlukerti sem
hanga niður úr loftum eða tærnar í
misháar ísmyndanir upp úr gólfi
hellisins, sem er á köflum flughált.
Fólk þarf að hafa gott ljós með-
ferðis og vera á góðum skóm og
hjálmur myndi ekki spilla fyrir.
Hellirinn Arnarker telst þó ekki
erfiður yfirferðar en getur í ljósi
af framansögðu verið varhuga-
verður.
„Þessi hellir er svolítið erfiður
og því er varhugavert að fara um
hann nema menn sýni fullkomna
aðgæslu,“ segir Sigurður Sveinn
Jónsson, formaður Hellarann-
sóknafélagsins. „Menn geta misst
fótanna og lent á hvössu grjóti og
grýlukerti geta líka dottið á fólk.“
Arnarker er meðal þeirra rúm-
lega 30 hella landsins sem eru
lengri en 300 metrar og hefur ver-
ið þekktur um langan tíma. Félag-
ar í Hellarannsóknafélaginu vinna
nú að mælingum á hellinum og
jafnframt kortlagningu hans. „Það
gerum við með áttavita, hallamæli
og málbandi. Við veljum mæli-
stöðvar í hellinum, mælum á milli
þeirra og teiknum upp grunnkort
sem sýnir legu hans, helstu breidd-
ir og stærðir,“ útskýrir Sigurður.
„Þegar staðreyndir um þetta liggja
fyrir komum við aftur og bætum
inn öðrum smáatriðum sem eiga að
vera á kortinu. Við vinnum að
söfnun þessara upplýsinga til að út
búa upplýsingaskilti fyrir ferða-
fólk, sem verður sett niður við veg
í vor eða sumar í samvinnu við Ölf-
ushrepp.“
Myndaðist við gos
á Reykjanesskaga
En hvernig myndast hellir eins
og Arnarker? Sigurður hefur að
sjálfsögðu svar við því, enda er
hann jarðfræðingur að mennt og
vinnur hjá Orkustofnun. „Arn-
arker myndaðist við gos í gígnum
Leitum, hér á Reykjanesskaga fyr-
ir 4–5 þúsund árum. Þetta er eitt
fárra hrauna á Reykjanesskaga
sem rann til beggja átta, norðurs
og suðurs. Þetta er sama hraunið
og rann niður með Bláfjöllum og
niður Elliðaárdalinn. Arnarker
myndaðist þannig að hraunið rann
eins og á frá eldvarpinu og ein-
skorðaðist við ákveðinn farveg á
yfirborðinu eins og svo oft gerist.
Stundum myndast þak á þessa far-
vegi og þá rennur hraunið í lok-
aðri rás. Hraunið rann síðan eftir
göngunum og þegar gosið hætti,
lækkaði í hraunánni. Göngin
tæmdu sig í kjölfarið með því að
hraunið rann út og eftir stóð „rör-
ið“. Þegar frá leið storknaði
hraunið og olli nokkru hruni inni í
hellinum, að því er virðist við kóln-
unarsamdrátt hraunsins.“
Sigurður bætir því við að jarð-
skjálftarnir í júní á síðasta ári
virðast ekki hafa valdið mælanlegu
hruni í Arnarkeri, sem gæti styrkt
þá tilgátu að hellar hrynja einkum
á myndunartíma þeirra.
Félagar í Hellarannsóknafélag-
inu eru um 70 talsins og hefur
félagið gefið út 7 tölublöð af árs-
ritinu Surti frá stofnun félagsins
árið 1989. „Félagar hafa gaman af
ævintýramennskunni sem fylgir
þessu félagsstarfi. Að uppgötva
nýjan helli er nokkuð sem gleymist
seint. Þegar við fundum Lofthelli í
Mývatnssveit árið 1989 þurftum
við að brjóta okkur leið inn í hann.
Þetta er 5 þúsund ára gamall hellir
og það að vera fyrstur til að kanna
slík náttúrufyrirbæri og vita aldrei
hvað bíður manns í myrkrinu
handan við næsta horn er vægast
sagt ævintýralegt,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Jakob Þór, Sigurður Sveinn og Guðmundur við hellismunnann. Ljósin á hjálmum þeirra ganga fyrir sérstöku gasi og eru hentugri en rafhlöðuljós.
Arnarker
kemst á kortið
Áður þurfti að síga á vað ofan í hellinn en það heyrir sögunni til.
Stiginn í hellinum er 8 m langur og ætti að verða ágæt samgöngubót.
Fallegar ísmyndanir eru í hellinum. Á myndinni eru félagar í Hellarann-
sóknafélagi Íslands, frá vinstri: Einar Júlíusson, Guðmundur B. Þor-
steinsson, Sigurður Sveinn Jónsson og Jakob Þór Guðbjartsson.
Aðgengi stórbætt að hellinum
Arnarkeri og kortlagning hans hafin
Ekki stend-
ur til að
hætta við
ferðina
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval-
Útsýn hefur ekki áform uppi um
að hætta við fyrirhugaða ferð til
Bretlands um páskana sem upp-
haflega var auglýst sem „bænda-
ferð“. Nú hefur nafni ferðarinnar
verið breytt í „söguferð“ þar sem
ferðaskrifstofunar telur ferðina
hafa verið mistúlkaða í fjölmiðlum.
Ekki hafi staðið til að heimsækja
bændabýli í Bretlandi, heldur fyrst
og fremst borgir og frægar sögu-
slóðir, auk þess sem örfáir af þeim
þrjátíu ferðamönnum sem hafa
bókað sig eru bændur. Landbún-
aðarráðherra og formaður Bænda-
samtakanna höfðu hvatt til þess að
hætt yrði við ferðina vegna gin- og
klaufaveikinnar sem geisar á Bret-
landseyjum.
Þórir Jónsson, deildarstjóri hjá
Úrvali-Útsýn, sagði við Morgun-
blaðið að yfirdýralæknir hefði haft
samband við ferðaskrifstofuna og
fengið upplýsingar um ferðina.
Hefði hann ekki talið ástæðu til að
hætta við.
Ódýrar rútuferðir
„Ef aðstæður breytast og við
fáum fyrirmæli um það frá heil-
brigðisyfirvöldum að hætta við
ferðina þá munum við að sjálf-
sögðu taka það til greina,“ sagði
Þórir.
Hann sagði að „bændaferð“ væri
samheiti eða hugtak yfir ódýrar
rútuferðir með fararstjórn til Evr-
ópu sem farnar voru á árum áður
á vegum samtaka bænda 1-2 sinn-
um á ári. Ferðirnar hefðu verið
vinsælar en á seinni árum hefðu
færri og færri bændur farið, þrátt
fyrir að nafnið hefði haldist. Ekki
væri farið á bændabýli og þeir sem
færu t.d. á fótboltaleik gætu verið
í meiri snertingu við bændur uppi í
stúku en í ferð sem þessari.
Ferðin til Bretlands er farin í
tengslum við beint leiguflug til
Blackpool á vesturströndinni en
þangað eru um 100 Íslendingar að
fara vegna árlegrar danskeppni.
Farið verður ásamt fararstjóra í
rútum til Blackpool, Liverpool,
York, Chester, Hull og Grimsby,
svo nokkrir staðir séu nefndir, og
tekur ferðin níu daga.
„Bændaferð“ hjá Úr-
vali-Útsýn til Bretlands
orðin að „söguferð“
Flugfélag Ís-
lands fækkar
flugferðum til
Hornafjarðar
FLUGFÉLAG Íslands hefur
ákveðið að fækka flugferðum til
Hafnar í Hornafirði og verður frá
og með næstkomandi mánudegi,
12. mars, einungis boðið upp á 6
flugferðir í viku milli Reykjavíkur
og Hafnar í stað 12 áður. Í vetr-
aráætlun félagsins verður nú flog-
ið einu sinni á dag alla daga vik-
unnar nema laugardaga. Í
sumaráætlun er aftur gert ráð fyr-
ir tveimur ferðum á dag til Hafnar
ef eftirspurn verður nægileg.
Ástæða þessarar fækkunar
ferða er slæm sætanýting á þess-
ari flugleið á síðastliðnum mán-
uðum. Undanfarin ár hefur Flug-
félag Íslands fjölgað ferðum til
Hafnar nokkuð og leiddi það til
mikillar fjölgunar farþega. Á síð-
ustu fjórum til fimm mánuðum
hefur farþegum hins vegar fækkað
á flugleiðinni og hefur sætanýting
því versnað mjög mikið og er þess
vegna nauðsynlegt að grípa til
þessara aðgerða nú.
♦ ♦ ♦