Morgunblaðið - 09.03.2001, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KJÖRIÐ tækifæri hefur gefist síð-
ustu daga fyrir yngstu kynslóðina
að leika sér úti í snjónum nú þegar
dagarnir lengjast stöðugt. Þeir eru
vel nýttir og heilu snjóhúsin rísa á
skömmum tíma, en þessir ungu
krakkar voru einmitt að búa sér til
eitt slíkt við Brekkuskóla í fögru
vetrarveðri gærdagsins.
Morgunblaðið/Kristján
Byggingaframkvæmdir í snjónum við Brekkuskóla við Laugargötu, áður Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Snjóhúsin
rísa eitt
af öðru
TÓNLEIKAR verða haldnir í
Laugaborg næstkomandi laugardag,
10. mars. Þar koma fram nemendur
píanódeildar Tónlistarskólans á Ak-
ureyri og flytja íslenska og erlenda
samtímatónlist. Tónleikarnir hefjast
kl. 14 og er aðgangur ókeypis.
Tónleikar í
Laugaborg
ÞAÐ VAR mikið fjör í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á miðviku-
dagsmorguninn þegar þangað
streymdu mæður með börn sín að
fagna 10 ára afmæli mömmumorgna
í kirkjunni. Í tilefni dagsins voru
veglegar veitingar á borðum og ým-
islegt var sér til gamans gert, en
börnin voru á fleygiferð um sali og
ganga með leikföng af ýmsu tagi.
Berglind Rafnsdóttir, ein mæðr-
anna, sagði að mömmumorgnar
væru ávallt á miðvikudagsmorgnum
frá kl. 10 til 12 og þangað mætti allt-
af nokkur kjarni, konur sem væru
heima með ung börn, allt frá unga-
börnum og upp í 6 ára gömul. „Það
er misjafnt hvað margir mæta, fer
svolítið eftir veðri og vindum, en oft-
ast er þetta góður hópur sem mætir
hér með börnin sín og allir hafa
mjög gaman af,“ sagði Berglind.
Fastur punktur
Hún sagðist vera heima við með
ung börn sín og sér þætti afar mik-
ilvægt að fá tækfæri til að hitta aðr-
ar konur og bera saman við þær
bækur um ýmislegt það er varðar
uppeldi barna. „Börnunum þykir
líka afar spennandi að koma hingað
og hitta aðra krakka og leika sér við
þá,“ sagði Berglind en hún sagðist
ekki vera með sín börn á leikskóla
og því skipuðu mömmumorgnarnir
mikinn sess í hugum barnanna sem
hlökkuðu til þessara samveru-
stunda. „Þetta er fastur punktur í
okkar lífi,“ sagði hún. „Þetta er góð
leið til að brjóta svolítið upp daglega
lífið og einnig kjörið tækifæri fyrir
mæður ungra barna að fara út af
heimilinu og hitta aðrar konur í
svipuðum sporum, menn lokast þá
ekki alveg af á heimilunum.“
Karlmennirnir
tregir til að mæta
Berglind sagði að feður væru
meira en velkomnir og reynt hefði
verið að fá þá til að taka þátt í þess-
um samverustundum í kirkjunni, en
treglega gengið fram til þessa. „Það
hefur gerst að hingað hafa komið
karlmenn en það er því miður fátítt.
Þeir eru innilega velkomnir og við
viljum gjarnan að þeir séu með okk-
ur í þessu,“ sagði Berglind og bætti
við að ef til vill skapaði foreldra-
orlofið færi á að þeir kæmu í kirkj-
una.
Einu sinni í mánuði kemur gestur
og flytur erindi og hefur verið
fjallað um margvísleg málefni. Nú
síðast kom Björn Gunnarsson
barnalæknir og ræddi um ofbeldi
gegn börnum og þá hefur Eygló
Aradóttir barnalæknir komið í vet-
ur og rætt um „hita, hósta og hor í
nös.“ Síðar í þessum mánuði mun
María Jónsdóttir í Kompaníinu
koma og fjalla um starfsemina sem
þar fer fram. Mömmumorgnarnir
eru yfir vetrartímann og lýkur
starfinu jafnan með grillveislu í
Kjarnaskógi.
Fjör í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á 10 ára afmæli mömmumorgna
Morgunblaðið/Kristján
Það var líf og fjör á mömmumorgni í Akureyrarkirkju að morgni mið-
vikudagsins þegar haldið var upp á 10 ára afmæli slíkra samkoma.
Börnin sem koma í kirkjuna eru allt frá ungabörnum og upp í 6 ára.
Kjörið tækifæri
til að bera
saman bækurnar
SÝNINGAR eru nú að hefjast að nýju á barnaleikritinu
„Tveir misjafnlega vitlausir“, sem er samvinnuverkefni
Leikfélags Akureyrar og Vitlausa leikhópsins. Um er að
ræða trúðaleik eftir Aðalstein Bergdal en tónlistin er eftir
Skúla Gautason. Þeir félagar koma þar fram í hlutverkum
Skralla og Lalla bróður hans.
Fjórar sýningar voru á leikritinu um jólin í Samkomu-
húsinu, en nú verða sýningar í Deiglunni í Grófargili. Trúð-
unum þykir ekki verra að hafa börnin ögn nær sér en slíkt
tækifæri skapast í Deiglunni.
Þá hefur tekist samvinna með leikfélaginu, leikhópnum,
Gilfélaginu og Vigni Þormóðssyni veitingamanni á Karól-
ínu og verður boðið upp á leiksýningu, kakó, muffins og
sleikjó eða það sem þeir félagar Skralli og Lalli kalla
„kakómuffinssleikjótrúðasýningu“ og er allt innifalið í
miðaverði, sem nú er 1.000 krónur. Einn heppinn áhorf-
andi fær í lok hverrar sýningar geisladiskinn „Tveir mis-
jafnlega vitlausir“, trúðabol og úttekt á Karólínu.
Fyrsta sýning í Deiglunni verður á sunnudag, 11. mars,
kl. 15 en miðasala verður líkt og áður í Samkomuhúsinu,
nema hvað miðar verða seldir í Deiglunni sýningardaga.
Skralli og Lalli
í Deiglunni
Morgunblaðið/Kristján
ÍSLANDSMÓTIÐ í í dorgveiði fer
fram á Ólafsfjarðarvatni á morgun,
laugardaginn 10. mars. Mótið hefst
kl. 11 og stendur til kl. 16. Veitt
verða glæsileg verðlaun og fer
verðlaunaafhending fram á Hótel
Ólafsfirði strax að móti loknu.
Skráning keppenda verður á
Hótel Ólafsfirði frá kl. 9.30 á morg-
un og er öllum heimil þátttaka.
Skráningargjald er 800 krónur en
frítt er fyrir 12 ára og yngri. Mótið
er haldið í samvinnu við At-
vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar,
Hótel Ólafsfjarðar og Ólafsfjarð-
arbæjar.
Mótshaldarar benda á að Ólafs-
fjörður hefur upp á ýmislegt að
bjóða og nefna í því sambandi
Náttúrugripsafnið, troðnar göngu-
skíðabrautir á frosnu vatninu og
sundlaugina í íþróttamiðstöðinni.
Þá fer Fjarðargangan, opið skíða-
göngumót, fram í Ólafsfirði um
helgina.
Íslands-
mótið í
dorgveiði í
Ólafsfirði
NÝTT vikublað, AK-vikublað, hef-
ur göngu sína á Akureyri innan tíð-
ar en fyrsta tölublaðið kemur út 22.
mars næstkomandi. Fjölmynd, sem
gefur út AK-tímarit gefur blaðið út.
Gunnar Sverrisson einn eigenda
Fjölmyndar sagði að blaðinu yrði
dreift inn á hvert heimili á Ak-
ureyri og við Eyjafjörð. Hann sagði
að efni blaðsins yrði fjölbreytt, þar
yrðu fréttir, umfjöllun um íþróttir,
veiði, Formúlu 1, stutt viðtöl af
ýmsu tagi og þá yrði þar einnig
birt sjónvarpsdagskrá næstu viku.
„Ástæðan fyrir því að við ætlum
að gefa út vikublað er sú að við höf-
um fundið fyrir ánægju lesenda
AK-tímarits sem fengið hefur góð-
ar viðtökur. Fólk er ánægt með út-
lit og framsetningu efnis í tímarit-
inu, en því munum við reyna að
halda einnig í blaðinu, sem verður
gefið út í A-4 broti,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að um yrði að ræða
hentugan og hagnýtan upplýsinga-
og auglýsingamiðil fyrir Eyjafjarð-
arsvæðið.
Gunnar og Halla Bára Gestsdótt-
ir hófu útgáfu AK-tímarits síðast-
liðið haust og störfuðu þá tvö við
útgáfuna, en nú eru starfsmenn 6
talsins í fullu starfi og sagðist
Gunnar vona að fleiri bættust jafn-
vel við síðar.
Nýtt vikublað hefur
göngu sína á Akur-
eyri innan tíðar
LISTDANSSKÓLI Íslands stend-
ur fyrir helgarnámskeiðum í vor í
ballett og nútímadansi, en stjórn-
andi og kennari á þessum nám-
skeiðum er Asako Ichihasi.
Asako rak Ballettskóla Akureyr-
ar til nokkurra ára, en hefur nú
gengið til liðs við Listdansskóla Ís-
lands.
Þetta er liður í að kynna starf-
semi Listdansskólans og er ætl-
unin í framhaldi af þessum nám-
skeiðum að hefja samfellda
listdanskennslu á Akureyri næsta
haust. Námið við Listdansskólann
er metið inn í kennslu grunnskóla
og einnig er það metið til eininga í
fjölbrautaskólum og sem valgrein-
ar í menntaskólum. Tilgangur
námsins er að mennta dansara og
einnig undirbúa nemendur undir
frekara nám við listaháskóla.
Námskeiðin verða haldin í KA-
heimilinu og verður fyrsta nám-
skeiðið um næstu helgi, 10. og 11.
mars. Innritun og allar nánari
upplýsingar um námskeiðin og
Listdansskólann eru veittar á
skrifstofu skólans alla virka daga
frá kl. 9–17.
Námskeið í ballett
og nútímadansi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦