Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 25

Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 25
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 25 RÁÐGARÐUR Skiparáðgjöf efh. hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna þess að Ófeigur VE sökk við bryggju í Huang Pu skipasmíðastöð- inni í Kína en fyrirtækið hannaði skipið. Í tilkynningunni er harmað að starfsmaður skipasmíðastöðvarinnar skuli hafa látist í slysinu en jafnframt vill fyrirtækið upplýsa eftirfarandi: „Það hefur verið vitað síðan í des- ember á síðasta ári að það vantaði ballest í skipið og hafa botngeymar þess því verið fullir frá sjósetningu. Skipasmíðastöðin gerði hallaprófun 19. desember sl. Útreikningar úr prófuninni staðfestu að skipið upp- fyllti ekki stöðugleikakröfur og var því skilyrði að botngeymar væru full- ir þar til bætt hefði verið ballest í það. Samkvæmt upplýsingum sem okkur hafa borist frá Kína, var ástæðan fyr- ir slysinu sú að skipasmíðastöðin hafði tæmt flesta af botngeymum skipsins. Skipið hallaðist við þetta, vatn flæddi inn um ófrágengið op á síðunni og skipið fyllti.“ Ballest vantaði í Ófeig VE NIÐURSTÖÐUR vetrarleiðangurs Hafrannsóknastofnunarinnar sýna almennt tiltölulega háan hita og seltu í sjónum allt í kringum landið en rannsóknaskipið Bjarni Sæmunds- son var í sjórannsóknaleiðangri á miðunum umhverfis landið 12.–26. febrúar sl. Ástandið fyrir sunnan og vestan land var með líku sniði og 2000 en þó heldur heitara fyrir austan- verðu Norðurlandi og Austurlandi. Þetta er því fjórði veturinn í röð með ríkjandi hlýsjávaráhrifum á norður- miðum. Helstu niðurstöður hita- og seltu- mælinga voru þessar: Sjávarhiti fyrir Suður- og Vesturlandi var 5–6°C, sem er í góðu meðallagi, og seltan var há eins og verið hefur frá síðari hluta árs 1997 (35,00–35,20). Hlýsjórinn að sunnan var þannig með líkum styrk og undanfarin miss- eri. Út af Vestfjörðum var hitinn 4–6°C og seltan yfir 35,0. Fyrir Norð- urlandi gætti hlýsjávarins austur fyr- ir Langanes (>3°C) og almennt var ástand sjávar á norðurmiðum eins og veturinn 2000, þ.e. bæði tiltölulega hlýtt (2–5°C) og salt (34,7–35,0). Skil- in við kalda sjóinn að norðan voru úti yfir landgrunnsbrún. Fyrir Austur- landi var sjávarhiti um 3°C og selta um og yfir 34,7, sem er heldur hærra en í meðallagi. Skil kalda sjávarins að norðan og hlýja sjávarins að sunnan voru út af Lónsbugt líkt og oft áður. Hitastig við botn á landgrunninu umhverfis landið var 5–7°C sunnan- lands og vestan nema næst landi þar sem var kaldara, 3–4°C fyrir Norður- landi, lækkandi austur á bóginn, og 2–3°C austanlands, allt heldur heit- ara en 2000. Í leiðangrinum voru einnig gerðar kolefnis- og snefilefnamælingar og sýnum var safnað fyrir Geislavarnir ríkisins. Að auki var safnað sýnum af karfa í tengslum við alþjóðlegt sam- starfsverkefni. Leiðangursstjóri á rs. Bjarna Sæ- mundssyni var Héðinn Valdimarsson og skipstjóri Ingi Lárusson. Hlýrri sjór fjórða árið í röð MJÖG góð loðnuveiði var undan Krísuvíkurbjargi í gær og var loðn- an á hægri hreyfingu austur á bóg- inn, öfugt við það sem sjómenn eiga að venjast. Góð loðnuveiði var fyrir austan land í fyrrinótt, skammt ut- an Hornafjarðar, en loðnan veiðist þar einungis á nóttunni sem einnig kemur sjómönnum á óvart. Faxi RE var á landleið til Þor- lákshafnar í gær með fullfermi, um 1.500 tonn, og hefur skipið þá veitt um 15.000 tonn á aðeins 13 dögum. „Það hefur verið mokveiði úr þess- ari vestangöngu allan sólarhring- inn. Losunarmöguleikarnir eru góðir fyrir okkur á meðan veiðin er hér fyrir vestan og það hefur því verið þægilegt að sækja í þetta á meðan tíðin er góð,“ sagði Ólafur Einarsson skipstjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. „Menn eru alltaf að kasta á sömu torfuna og núna verðum við bara að gæta þess að fá ekki of mikið því þá springur nótin. Loðan sígur núna austur með landinu en venjulega kemur hún að austan og gengur vestur með. Þetta er ágætt fyrir okkur sem löndum hérna á vestari endanum. Það er farið að sjást töluvert af hrognum í loðnunni og því styttist stöðugt í vertíðarlokin. Það er samt engin leið að segja til um hvenær hún hættir að veiðast.“ Aðeins voru fjögur loðnuskip að veiðum fyrir austan land í gær- morgun og fengu þau góðan afla austan við Hrollaugseyjar í fyrri- nótt. Veiðin er hins vegar aðeins á nóttunni en loðnan leggst til botns í birtunni. Þetta er óvenjulegt á þessum árstíma, að sögn Sigurðar Sigurðssonar, skipstjóra á Erni KE. „Allt nýtt fyrir manni“ „Þetta er allt saman nýtt fyrir manni og hefur maður þó verið við þetta lengi. Ég hef ekki áður séð svona mikið af loðnu koma í vest- urgöngunni og hér fyrir austan er venjulega veiði allan sólarhringinn þegar loðnan er komin upp á grunnið. Hér er heilmikil torfa en hún leggst til botn í birtunni. Við gengum um 600 tonn í þremur köstum undir ljósaskiptin og sprengdum meira að segja nótina í einu kastinu. Það munar miklu ef það er hægt að fá góðan afla hér fyrir austan líka því það er löng sigling á löndunarhafnir á Austur- landi frá miðunum fyrir vestan.“ Loðnan í austurgöngunni virðist vera komin töluvert skemur í hrygningu en sú fyrir vestan. Heil- frysting á loðnu hófst hjá Síld- arvinnslunni í Neskaupstað í gær og verið er frysta loðnu á Jap- ansmarkað hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði. Japansfrystingu hef- ur hins vegar verið hætt vest- anlands en hrognavinnsla er nú komin í fullan gang í Vest- mannaeyjum. Hjá Ísfélagi Vest- mannaeyja er nú til dæmis verið að frysta hrogn á Japansmarkað, auk þess sem framleiðsla á sykursölt- uðum hrognum fyrir Svíþjóð- armarkað er nú meiri en und- anfarin ár. Loðnan kemur enn á óvart Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vinnsla á loðnuhrognum er nú í fullum gangi í Vestmannaeyjum og nóg að gera, eins og sjá má á þessum starfsstúlkum Ísfélags Vestmannaeyja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.