Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 27
Nú færir nýjasta tækni þér húðina sem þig lang-
ar í. Finndu hana. Ótrúlega mjúk og slétt. Sjáðu
hana. Ótrúlega björt og jafnlit. Og þá eru líka
öll smávandamál húðarinnar - svitaholur, fínar
línur, flögnun og roðablettir - úr sögunni með
þessari nýju náttúrulegu aðferð. Skin-Refinishing
Complex. Idealist. Húðumhirða í æðra veldi.
Estée Lauder útsölustaðir: Clara Kringlunni, Sara Bankastræti, Lyfja Lágmúla,
Lyfja Garðatorgi, Lyfja Laugavegi, Lyfja Hamraborg, Lyfja Setbergi,
Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáranum, Hagkaup Spönginni,
Lyf og heilsa Austurstræti, Apótek Keflavíkur, Hjá Maríu Hafnarstræti og
Gleratorgi Akureyri.
Draumahúðin þín. Sjáðu, finndu, fáðu hana.
Estée Lauder kynnir Idealist Skin Refinisher
KIICHI Miyazawa, fjármálaráð-
herra Japans, sagði í gær að fjár-
hagur ríkisins væri að hruni kominn
vegna mikilla skulda. Ummæli hans
urðu til þess að gengi jensins lækk-
aði og hefur ekki verið lægra gagn-
vart Bandaríkjadollar í nítján mán-
uði. Nýjar hagtölur, sem birtar voru
í gær, bentu einnig til þess að hætta
væri á verulegum efnahagssam-
drætti í landinu síðar á árinu.
Hreinskilið mat fjármálaráðherr-
ans á afleiðingum skuldasöfnunar-
innar vegna gríðarlegra útgjalda
ríkisins síðastliðinn áratug kom
mörkuðunum á óvart. „Fjárhagur
ríkisins er afbrigðilegur um þessar
mundir og nálægt hruni,“ sagði
Miyazawa á fundi með fjárlaganefnd
efri deildar japanska þingsins. „Við
þurfum að rétta efnahaginn við í
stað þess að reyna aðeins að hljóma
jákvæðir í ummælum okkar,“ bætti
ráðherrann við og ýjaði að því að
stjórnin yrði að skerða félagslegar
bætur eða hækka skatta.
Ummæli fjármálaráðherrans urðu
til þess að gengi jensins lækkaði
gagnvart dollarnum og hefur ekki
verið lægra frá júlí 1999. Miyazawa
hefur verið hlynntur því að gengi
jensins lækki til að útflutningurinn
aukist en hann neitaði því í gær að
markmiðið með ummælunum hefði
verið að stuðla að gengislækkun.
Horfur á minni fjárfest-
ingum fyrirtækja
Hagrannsóknastofnun Japans
skýrði frá því í gær að dregið hefði
úr vélbúnaðarpöntunum japanskra
fyrirtækja um 11,8% í janúar frá
mánuðinum áður. Fylgst er grannt
með slíkum pöntunum þar sem þær
gefa vísbendingar um fjárfestingar
fyrirtækja um það bil hálfu ári síðar.
Áður hafði verið skýrt frá því að
viðskiptajöfnuður Japans hefði verið
óhagsstæður í janúar í fyrsta sinn í
fjögur ár og nýju upplýsingarnar um
pantanir fyrirtækja eru enn ein vís-
bendingin um að minnkandi hag-
vöxtur í Bandaríkjunum og mörgum
Asíuríkjum hafi skaðað japönsk út-
flutningsfyrirtæki verulega.
Nýju hagtölurnar urðu til þess að
hagfræðingar tóku að endurskoða
spár sínar um fjárfestingar jap-
anskra fyrirtækja á næstu mánuð-
um, en þær höfðu stuðlað að hæfi-
legum hagvexti á síðasta ári.
„Fjárfestingar fyrirtækja munu
snarminnka í apríl, maí og júní og
halda áfram að minnka í júlí, ágúst
og september,“ sagði Takuji Okubo,
hagfræðingur Goldman Sachs. „Við
teljum þó að þær aukist aftur eftir
það til næsta árs.“
Efnahagssamdrátturinn torveld-
ar stjórninni að grynnka á skuldum
Japans, sem eru orðnar meiri en
nokkurs annars iðnríkis og hafa þeg-
ar orðið til þess að lánskjör ríkisins
hafa versnað. Búist er við að Yoshiro
Mori, einn óvinsælasti forsætisráð-
herra í sögu Japans, láti af embætti
á næstunni og nýju hagtölurnar
sýna að eftirmaður hans tekur við
eitruðum bikar.
Búist er við að stjórnin kynni í dag
tillögur sem miða að því að styrkja
efnahaginn og hlutabréfamarkað-
inn, en gengi hlutabréfa í japönskum
fyrirtækjum hefur lækkað að und-
anförnu og ekki verið jafn lágt í 15
ár.
Jenið veikist vegna ummæla Miyazawa fjármálaráðherra
Segir fjárhag Japans
að hruni kominn
Kiichi Miyazawa, fjármálaráð-
herra Japans (t.v.), og Yoshiro
Mori forsætisráðherra hlýða á
ræðu á japanska þinginu.
Tókýó. Reuters, AFP.
Reuters
ZHU Rongji, forsætisráðherra
Kína, hélt því fram í gær, að „trufl-
aður“ maður hefði valdið sprenging-
unni í skóla í Fanglin í suðaust-
urhluta landsins í fyrradag en hún
varð tugum manna að bana, aðal-
lega börnum. Neitaði hann því, að
börnin hefðu verið neydd til að
vinna við flugeldagerð þvert ofan í
það sem haft er eftir læknum, öðr-
um embættismönnum, ýmsum fjöl-
miðlum og foreldrum sjálfra
barnanna.
Zhu sagði á fréttamannafundi í
Peking, að „geðveill maður og fullur
heiftar“ hefði komið með stóran
poka fullan af sprengiefni í skólann
og kveikt í honum. Hefði hann átt
við einhvern hjúskaparvanda að
stríða að því er Zhu sagði og hann
fullyrti, að aldrei hefði nein flug-
eldagerð átt sér stað í skólanum.
Foreldrar barnanna, aðrir íbúar,
embættismenn í bænum og fjöl-
miðlar þar segja hins vegar, að
nemendurnir hafi verið neyddir til
þess árum saman að búa til flugelda
og fyrir það hafi kennararnir fengið
þóknun frá flugeldafyrirtæki í bæn-
um. Haft er eftir lækni, að börnin
hafi verið að koma fyrir kveikiþræði
í flugeldunum þegar sprengingin
varð.
Bærinn lokaður
fréttamönnum
Zhang Minggeng, sem missti son
sinn og dóttur í sprengingunni,
sagði, að yfirlýsing Zhus væri hluti
af yfirhylmingu stjórnvalda. „Þetta
er lygi. Yfirvöldin eru hrædd við
sannleikann. Þess vegna fá frétta-
menn ekki að koma til bæjarins.
Vissulega var fullorðinn maður í
skólanum að vinna við flugeldagerð-
ina og hann týndi lífi. Það amaði þó
ekkert að honum og við þekktum
hann öll.“
Foreldrar barnanna sem létust
segja, að þeim hafi nú þegar verið
greiddar rúmlega 300.000 ísl. kr. í
bætur fyrir hvert barn en þau krefj-
ast opinberrar rannsóknar. Þeir
segja, að börnin hafi verið sektuð
neituðu þau að vinna við flugeldana
og það kom líka fram á vefsíðum op-
inberra fjölmiðla.
Kínverska fréttastofan Xinhua
segir, að 41 maður hafi týnt lífi í
sprengingunni en foreldrarnir
segja, að 54 hafi farist, þar af fjórir
kennarar. Skólastjórans er hins
vegar saknað og er talið að hann
hafi flúið burt.
Peking. AP, AFP.
Foreldrar barnanna saka
stjórnvöld um yfirhylmingu
Forsætisráðherra Kína segir „truflaðan“ mann hafa
valdið sprengingu sem varð tugum skólabarna að bana
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.