Morgunblaðið - 09.03.2001, Síða 35

Morgunblaðið - 09.03.2001, Síða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 35 VÁLYND veður á Austfjörðum um helgina urðu til þess að undirritaður sá sér þann kost vænstan að keyra á Egilsstaði þegar kom að hléi á sýningu Reyðfirðinga á Ærsladraugnum. Sat svo þar veðurtepptur í þrjá daga, en það er önn- ur saga. Allavega er það sem hér er ritað byggt á því sem fyrir augu bar fyrir hlé og verður að skoðast í því ljósi. Ærsladraugurinn hans Cowards ætlar að vera þaulsætinn gestur í íslenskum leikhúsum. Segir ekki þjóðtrúin að draugar magnist í hundrað ár, haldi sér í aðra öld og lognist svo út af á hundrað árum? Ærsladraugurinn barst hingað 1946 og á því langt eftir enn, ef við trúum kerlingarbókunum. En frekar er nú af honum dregið þykir mér, svo rótfastur sem hann er í menningu og leikhústísku ritunartímans. Og þó Coward þyki hnyttinn höfundur í sínu ættlandi þá skilar sú mælska sér heldur takmarkað í þýð- ingu Torfeyjar Steinsdóttur. Leikstjórinn ís- lenskar nöfn persóna og flytur atburði til í tíma og rúmi (sýningin virðist gerast í litlum bæ austur á fjörðum í nútímanum) sem gengur upp að ýmsu leyti, en annað verður óhjákvæmilega ankannalegt. Rithöfundur nokkur vill sækja sér fróðleik um starfsemi miðla og fær einn slíkan til að halda fund á heimili sínu. Ekki tekst betur til en svo að látin eiginkona hans vaknar upp og neitar að yfirgefa hann aftur. Heldur setur þetta háttarlag hennar spennu í seinna hjónaband höfundarins og var það þó hvergi nærri gott fyrir. Skemmtilegur útgangs- punktur sem verður á stundum nokkuð lopa- teygður í meðförum höfundar, og því miður enn frekar í sýningu Reyðfirðinga. Eftir góða byrj- un þar sem margir leikarar áttu fína spretti datt snerpan nokkuð niður, þegar nær hefði verið að herða á. Mest var gaman að Gíslunni Jóhannsdóttur sem gerði kostulega undirlægju úr Vilborgu læknisfrú og það gustaði af Ingunni Indriða- dóttur í hlutverki miðilsins. Samleikur Elíasar Geirs Eymundssonar og Hafdísar Sjafnar Harðardóttur var og sannfærandi, rithöfundur- inn og frúin áttu greinilega í nógu miklum erf- iðleikum í samlífinu þó draugurinn Elva bættist ekki þar við. Aðalheiður Kristjánsdóttir var ágætlega draugaleg í því hlutverki, en misráðin þótti mér tæknibrellan sem notuð var til að sýna drauginn lengi vel og ég vil ekki ljóstra upp hver er. Hún gerði mótleikurum draugsins heldur erfitt að athafna sig. Gaman hefði verið að sjá hvort brellan var endurnýtt eftir hlé þegar fjölg- ar í flokki framliðinna í verkinu, en það lukkaðist því miður ekki. Eftir stendur að Reyðfirðingar eiga greinilega öflugan flokk leikenda sem hefði gert enn skemmtilegri sýningu ef gerðar hefðu verið ákveðnari kröfur um snerpu og kraft. Kröfur sem ég er ekki í vafa um að þau hefðu staðið undir. Konan mín heitin LEIKLIST L e i k f é l a g R e y ð a r f j a r ð a r Höfundur: Noel Coward. Þýðandi: Torfey Steinsdóttir. Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Þorsteinn Bachmann. Leikendur: Aðalheiður Kristjáns- dóttir, Elías Geir Eymundsson, Gíslunn Jó- hannsdóttir, Guðmundur Már Beck, Hafdís Sjöfn Harðardóttir, Helena Rós Rúnarsdóttir og Ingunn Indriðadóttir. Félagsheimilinu Félagslundi, laugardaginn 3. mars 2001. ÆRSLADRAUGURINN Þorgeir Tryggvason TÓNLEIKAR kirkjukóra og organ- ista í Borgarfjarðarprófastdæmi, er marka lok kristnihátíðar í héraðinu, verða á morgun, laugardag. Tónleikarnir verða í safnaðar- heimili Akranesskirkju og hefjast kl. 16. Á dagskránni er fjölbreytt tón- list, m.a. passíusálmalög, verk eftir Bach, Wagner, Wesly og Kodály. Aðgangur er ókeypis. Tónleikar á Akranesi KAREN Ósk Sigurðardóttir opnar sýningu í Galleríi Nema hvað að Skólavörðustíg 22c í kvöld kl. 20. Hún sýnir þar litla leirkalla, mál- verk, teikningar og óróa. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga á milli 14 og 18. Hún stendur til 22. mars. Leirkallar í Nema hvað TÓNLEIKAR verða haldnir í Hótel Borgarnesi á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar á sunnudag kl. 20.30. Gestir þess verða að þessu sinni söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdótt- ir, sópran, Bergþór Pálsson, baríton, Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeist- ari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Veislutríóið en í því eru Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, Sig- urður Snorrason, klarínettuleikari, og Páll Einarsson, kontrabassaleik- ari. Að þessu sinni verður blandað saman tónlist frá Vínarborg, m.a. eftir Strauss og Lehár, og hins vegar söngleikjum af Broadway, m.a. eftir Gershwin og Lloyd-Webber. Söngur í Borgarnesi Sigrún Hjálmtýsdóttir Bergþór Pálsson ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ÞAÐ er hljómsveitin Tríngúl sem leikur á Ozio við Lækjargötu á sunnudagskvöld en hana skipa þeir Þorgrímur Jónsson bassaleikari, Er- ik Quick trommuleikari, Ómar Guð- jónsson gítarleikari, Eyjólfur Þor- leifsson tenór-saxófónleikari og Birkir Freyr Matthíasson trompet- leikari. Leikin verða djasslög úr öllum átt- um í útsetningum hljómsveitarmeð- lima. Með annars verður flutt lagið Hr.7 eftir trompetleikara sveitarinn- ar. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Miðaverð er 600 kr. og miðanum fylgir frír drykkur. Sunnudags- djass á Ozio ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.